Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Cherokee ofur Freyja
This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Guðmundur Jóhannsson 22 years, 2 months ago.
-
CreatorTopic
-
21.11.2002 at 19:48 #191809
Ég er með spurningu til Mumunds, 4.6 lítrar er það 4.0 lítrar vélinn með 4.2 lítra sveifarás og stöngum.Ef svo er væri gaman að fá að tala við þig.
Kveðja Magnús. -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
21.11.2002 at 20:08 #464474
Ég frétti að þessi bíll væri til sölu fyrir lítið og hann hefði jafnvel áhuga að skipta á sléttu ef hann kæmist yfir góðan Susuki "33 95-96 model.
Benni
Akureyri
21.11.2002 at 23:10 #464476Sæll,
Það er rétt hjá þér.
Þú mátt hringja í mig þegar þér hentar, 892 2422
Svo getur líka talað við Nonna á Bílvirkja hér á Akureyri, hann skrifa hér á spjallinu sem "kroni". Hann sá um breytingarnar á vélinni og reyndar bílnum líka.Læt hér fylgja samantekt á því helsta.
Vél:4,6L (280ci)238 hp @ 4400rpm, tog 319 lbft, @ 2500rpm.
Breytngar á vél: Sveifarás og stangir úr 258ci(4,2L), 0,030 yfirstærð stimplar úr 4.0L , Comp cams knastás (68-239-4) ásamt undirliftum, MP tvöfaldir gormar, 24lb,(39psi) spíssar, flækjur 2,5? opið púst, throttle boddí borað út um 6mm (58mm)Hér er svo vörunúmer á því sem ég keypti frá Summit.
CCA-68-239-4 CAM XTRME ENERGY 4X4 AMC 6CYL
FMS-M9593A302 Ford: 1986-95 5.0L Mustang, 24 lb./hr. fuel injectors 3/8 in.,
PSM-70-1191 Jeep: 1987-90 4.0L Cheerokee/Wagoneer, 1 1/2 in. primary tubes, black, header.
DCC-5249464 Valve springs
DCC-4452032 Chromemoly steel, valve spring retanersmbk mundi
A 826
21.11.2002 at 23:24 #464478Nei Benni kallin, Freyja er ekki föl enda ekki fyrir hvern sem er að eiga svona bíl, ég gæti alveg hugsað mér að ná mér í eina Sukku á 33" til að nota í ferðalög með ykkur Barbie strákum, þá væri nokkuð jafnvagi með okkur.
Ég hélt að þú værir farinn í nýliðaferðina í Reykjavík, ertu hættur við?
mbk.mundi
22.11.2002 at 00:34 #464480Nei er hún ekki um mánaðarmótin, það held ég allavega.
Skellir þú þér ekki bara með á tröllinu (Freyju) þ.e ef einhver snjór verður, það er nú ekkert sérstakt útlitið það líður að því að blómin fari að springa út í garðinum með þessu áframhaldi.
Kv.
Benni
22.11.2002 at 16:18 #464482Hvar fékstu spjald í trotle bodyið og hvernig er eyðslan td miðað við fyrir breitingu
22.11.2002 at 23:34 #464484Sæll,
Þórður (Doddi) rennismiður á Vélsmiðjunni Ásverk á Akureyri boraði út "boddyið" fyrir mig, hann bjó sér til plan (haldara) í bekkin til að smíða spjaldið, þetta er rosalega vel unnið hjá honum og eins og orginal.
Ef þú vilt fara í að bora "boddyið" út þá mæli ég hiklaust með honum, hann er búin að útbúa sig.mbk.
mundi
25.11.2002 at 17:27 #464486
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hafði gaman af þessu spjalli um "Stroker" útgáfu af 4.0 Jeep vélinni. Langaði að benda á meðfygljandi tengil þar sem farið er yfir það helsta í þessum efnum:
http://www.jeep4.0performance.4mg.com/photo3.html
Gaman væri að heyra meira um eyðslu o.fl. á "ofur Freyju".
Mbk – Ragnar
25.11.2002 at 19:43 #464488
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sælir.
Þessi vefur hérna http://www.jeep4.0performance.4mg.com/
er mjög góður. Sá sem á þennan vef heitir Dino og er svæfingarlæknir í Saudi Arabíu.Ég sendi honum fullt af e-mail þegar við Mundi vorum að smíða vélina í Ofur Freyju og hann var mjög hjálplegur.
Fæ reyndar e-mail frá honum í hverri viku um allt og ekkert.Kveðja Jón
25.11.2002 at 20:07 #464490Sælir,
Eyðsla í þessum "bransa" er svo afstæð, ég hef samanburð við aðra bíla nokkrum ferðum, svo mældi ég bílinn í sumarfríinu.
Á ferðalagi í sumar með tvo fullorna og tvö börn ásamt þungum tjaldvagni var eyðslan í fimm daga ferðalagi 17,1 l/100km.
Í septemberferð var tankað í Hrafnkelsdal eftir ca. 220km frá Akureyri, þarna fóru 33lítrar á bílinn, sá sem minns tók var með 29L, það var Toyota 90. Í heild fór ég með 210 til 220 lítra, félagi minn sem var á 80 Crueser á 44" fór með í þessari ferð rúma 200 lítra af olíu, færið á jökli var frekar þunkt, ég var sá eini á 36" og var framalega í röðinni þannig að slóðin var ekki þjöppuð.
Í bæjarsnatti sem er ekki mikil hjá mér þar sem Freyja er bíll sem ég nota helst í fjallaferðir er eyðslan örugglega mikil, 25 – 30 l/100km, enda eru stuttar vegalengdir á Akureyri og mikið um gangsetningar.
Þessi breyting á vélinni er alveg mögnuð, hún togar rosalega og aflið mikið, svo mikið að vélin er búin að snúa nyju mótorpúðana í sundur og slíta gengjurnar úr skiptingunni.
Slóðin sem þú bentir á skoðuðum við mikið meðan á breytingunum stóð, Nonni var svo í sambandi við þessa kalla og fékk góð ráð.
http://www.jeep4.0performance.4mg.com/mbk. Mundi
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.