Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Cherokee
This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Einar Steinsson 21 years, 1 month ago.
-
CreatorTopic
-
23.01.2004 at 20:06 #193559
AnonymousHefur einhver breitt nýasta útlitinu á Grand Cherokee fyrir 38 tommur og ef svo er eru til einhverjar myndir af þeim bíl í myndaalbúminu
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
23.01.2004 at 20:25 #485668
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sæll, nei ég er svona 99,98% viss um að enginn hefur breytt nýjasta bílnum fyrir 38". Það væri leiktæki sem skemmtilegt væri að sjá. Vonum að einhver dundi og hafi peninga í að prófa.
Jónas
23.01.2004 at 21:18 #485670Grand Cherokee með 2,7 lítra Benz vélinni væri örugglega þrælskemmtilegur.
Léttur bíll, hásingar (eftir því sem ég best veit) og hágæða þýskur dísilrokkur.Svo skemmir náttúrulega ekki að það stendur JEEP á húddinu…
24.01.2004 at 07:16 #485672
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ekkert dísel bull!!
Nýja boddíið, 360 í húddinu og bensíntanka upp að afturgluggum afturí, 38" dekk og þá er það komið, ekkert kjaftæði eingöngu AMERÍSKT
24.01.2004 at 09:15 #485674Heill sé siðasta ræðumanni.
Með sprækum bensín kveðjum.There is only one JEEP.
24.01.2004 at 13:58 #485676
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
heyr heyr!!
25.01.2004 at 04:09 #485678hvernig dettur mönnum þessi vitleysa í hug að reyna að breyta jeep þetta drífur ekket og er altaf bilað
25.01.2004 at 10:09 #485680
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
þetta er létt og plenty of power.. hlýtur að komast eitthvað áfram…
Síðan má ekki gleyma leðrinu…
Kv,
Jón þór
ég væri alveg til í svolles græju…
25.01.2004 at 10:20 #485682Þessir bílar hafa allt sem góður jeppi á að hafa; Hásing að framan og aftan, V-8 orginal sem eyðir minna/svipað af lítrum en flestir pattar og pæjur, og er undir tvemur tonnum.
Tveir vinir mínir eiga litla cherokeeinn á 33" og það sem þetta drífur á þeim dekkjum er ótrúlegt… Grand á 38" hlýtur að vera ultimate…Jeppi er ekki jeppi nema á honum standi JEEP.
25.01.2004 at 11:04 #485684
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Um leið og einhver varpar fram spurningu, eða minnnist á einhverja bíltegund, og vonast til að fá vitræn svör þá þeysir fram hópur vitleysinga og fer í sandkassaleik! Þetta er að standa heibrigðri umræðu hér fyrir þrifum…því miður.
Ekkert helvítis amerískt rusl!!!
25.01.2004 at 17:49 #485686Bjarni skrifar í pósti sínum: Hefur einhver breitt nýasta útlitinu á Grand Cherokee fyrir 38 tommur og ef svo er eru til einhverjar myndir af þeim bíl í myndaalbúminu.
Hann er ekki að spurja hvort Toy eða Jeep sé betra. Enda enginn vafi þar á ferð. Þannig að þetta var voða vitlaus skrif hjá þér…
Ég er einnig búinn að lesa síðustu pósta frá þér og þú talar bara í hringi… Í einum þráðinum ertu á móti patrol og segir að menn séu ruglaðir að vera með svoleiðis bíla… Í öðrum þræði segiru að menn eigi að kaupa nýjan galloper og setja durmax sem er amerískt, og þá sé maður kominn með allvöru jeppa. Sé ekki betur en þú sért með ameríska vél í þínum bíl og á leiðini að kaupa patrol…
Soldið skrítinn húmor. En það er svo sem í lagi
25.01.2004 at 18:41 #485688
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Mitt helzta markmið í lífinu er að vera alltaf á móti öllum! Þess vegna er konan farin frá mér, börnin tala ekki lengur við mig og allir vinir mínir, ja eða báðir, eru dauðir úr leiðindum.
En… Sannfæringin blívur. Ég hata amerísku vélina í jeppanum mínum, er að hugsa um að fá mér Patrol sem ég held að sé sterkur og stæðilegur jeppi og held ennþá að Galloper með Duramax sé góður kostur. Þar held ég að hégómlegheit landans og Glitnisvina séu helsta hindrunin á vegi þess að svoleiðis jeppi komi nokkurntímann á götuna. Athugið hinsvegar að það gerir ykkur ekki að meiri köllum að aka um á þessari tegund eða annarri. Hvaða fábjáni getur keypt hvaða bíl sem er. Hann verður eftir sem áður fábjáni. Sjáðu mig! Tökum dæmi: Vitleysingur fer í lörfunum til Sævars Karls og kaupir dýr jakkaföt. Hvað færa þau honum? Kannski drátt eða starf á bílasölu, en hann er eftir sem áður vitleysingur.
Hættið þessum hégóma og vitleysu. Munum bara að flest amerískt er rusl.
Skál,
Toyletti
25.01.2004 at 18:51 #485690Ég tel að Toylett sé framsóknarmaður fram í fingurgóma, annars er ég nokkuð sammála honum. Ég hef séð einn nýjan á 35" dekkjum og var hann bara nokkuð smart að sjá, þar sem hann stóð á bílastæði við kringluna. Ekki spurning ef nota á svona jeppa að hafa hann með 2.7 Benz, sem er gæða mótor frá evrópu.
Hlynur
25.01.2004 at 19:45 #485692Hér á heimilinu er Sprinter með svona vél, hún er 160 hross og torkar eins og ***skotinn, en eyðir bara 9 lítrum á hundraðið. Ég myndi nú kalla það ***víti gott
09.02.2004 at 01:45 #485694Einhver hérna var að tala um ameríska bíla og Grand Cherokee í sömu andrá. Það er eiginlega ekki alveg rétt. Bílarnir sem voru fluttir inn nýir af Jöfri og væntanlega þá líka þeir sem Ræsir flytur inn núna hafa aldrei til USA komið. Þeir eru smíðaðir í Austurríki.
Og t.d. hefur aldrei verið smíðaður neinn svona bíll með diselvél í USA, þá er eingöngu hægt að fá frá Austurríki.
Þetta gildir um Grand Cherokee og mig grunar að það sama gildi um "litla" Cherokee og Wrangler líka.
En bílarnir sem eru fluttir frá Ameríku eru náttúrulega jafn amerískir og Elvis.
Svo er náttúrulega stór hluti af Toyotum og Nissan sem eru að streyma til landsins í dag breskir eða spánskir, vissuð þið það?Einar Steinsson
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.