FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Búðarhálsvirkjun

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Umhverfismál › Búðarhálsvirkjun

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Jón G Snæland Jón G Snæland 16 years, 10 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 11.07.2008 at 09:29 #202653
    Profile photo of
    Anonymous

    Nú er verið að gera úr því skóna að, Búðarhálsvirkjun sé aftur komin í forgang.
    Hvað finnst félagsmönnum um það. Getur verið að hækkandi olíuverð verði til þess að ýta Norðlingaöldu veitu aftur í gang. Allavega ætti það að virka hvetjandi eftir að Búðarháls er kominn á flug. Er það gott eða slæmt að stökkva frekar inn á hálendið frekar er að bora áfram á forljótu Reykjarnesinu

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 13.07.2008 at 15:23 #625724
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    Ef af þessari virkun verður að veruleika þá munn fossar í ánni hverfa eins og Dyngur, það er alltaf seilst lengra en þörf krefur í svona löguðu til að trigga meira áframhald síða meir. Það er alltaf einkvað sem er blásið út til að skapa umræður um á meðan er læðst einkvað annað í skjóli nætur.Til að undi búa stæri Framkvæmd sem þeir hætta ekki við, það hefur reinslan sýnt .

    kv,,, MHN





    13.07.2008 at 20:49 #625726
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Búðarhálsvirkjun hefur ekki neitt með Dynk að gera og mun ekki skemma hann neitt. Búðarhálsvirkjun gengur svona ca út á að stífla Köldukvísl og Tungnaá og búa til lón í Þóristungum. Síðan verða boruð göng í gegnum Búðarháls og vatninu veitt útí Sultartangalón eftir notkun. Lónið verður nokkuð stórt og mun meðal annars drekkja Trippavaði á Köldukvísl og töluverðu gróðursvæði í Þóristungum. 2003 tók ég þessa mynd við fyrirhugað stöðvarhús Búðarhálsvirkjunar. https://old.f4x4.is/new/photoalbum/default.a … e/809/5617

    Góðar stundir





    13.07.2008 at 22:50 #625728
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Frá mínum bæjardyrum séð er æskilegt að virkjanaframkvæmdir séu settar á þau svæði sem þegar hafa verið tekin undir slíka landnotkun. Öll mannvirki sem tengjast þessari virkjun eru í næsta nágrenni við önnur virkjanamannvirki, lónið í næsta nágrenni við Hrauneyjarlón og Þórisvatn og stöðvarhúsið við Sultartangalón. Þarna er því ekki verið að ryðjast inn á ný svæði heldur verið að ná meiri nýtingu úr því svæði og þeim framkvæmdum sem þegar eru komnar. Eina sem hægt er að segja að tapist við þetta er Trippavað en það eru smámunir miðað við þær fórnir sem hafa verið færðar hingað til í virkjanaframkvæmdum.
    Það má vel vera að hægt sé að sannfæra mig um annað en hingað til hef ég verið frekar jákvæður gagnvart þessari framkvæmd.
    Á hinn bóginn má kannski deila um í hvað þessi orka eigi að fara, en það er allt annað spursmál sem ég ætla ekki að velta mér upp úr hér.
    Kv – Skúli





    13.07.2008 at 23:23 #625730
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég er sammála Skúla um Búðarhálsvirkjun. Þarna er allt meira og minna á kafi í vegum og mannvirkjum, og Trippavaðið er mér ekki svo kært, þótt vöð séu í miklu uppáhaldi hjá mér.

    Verr lýst mér á hugmyndir um virkjun við Bjalla, þótt ég viti ekki hvernig hún verði útfærð, en varla verður virkjað nema með þokkalegu lóni. Þá fer maður að hugsa um hvort Hófsvaði verði fórnað, og þá verður maður að gera eitthvað. Líklega er best að stofna Saving Hófsvað og fara í skæruhernað ef það stendur til.

    Góðar stundir





    14.07.2008 at 08:07 #625732
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Virkjunin sem slík er eitthvað sem flestum er væntanlega sama um á þessum stað. Hinsvegar kemur með Búðarhálsvirkun meiri hvati á að endurvekja Norðlingaölduveitu (sem eikur afköst virkjunarinnar verulega). Norðlingaölduveita var á sínum tíma sögð vera grundvöllurinn fyrir því að þessi virkjun væri hagkvæm.

    kv.
    Rúnar.





    14.07.2008 at 12:49 #625734
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Ég tek undir það með Skúla og Hlyn að það er litlu fórnað með því að klára framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun en það er líka rétt að þá eru líkurnar á að farið verði Norðlingaölduveitu orðanr meiri.

    En annars var Össur "froðusnakkur" Skarphéðinsson að lýsa því yfir nú í fréttum að hann ælaði að leggjast gegn því af fullum þunga að af Norðlingaölduveitu yrði og á sama tíma að Þjórsárver verði alfriðuð… Spurning hvort að þau orð eru einhvers verð…

    Benni





    15.07.2008 at 18:20 #625736
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Í dag var frétt um yfirlýsingu iðnaðarráðherra og er hún hérna fyrir neðan. Enn neðar er svo copy-paste af vefsvæði Umhverfisstofnunar sem Össur veitti eitt sinn forstöðu. Kv Ofsi

    24 Stundir þriðjudaginn 15 júlí 2008. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra lýsir því yfir í grein í Morgunblaðinu í gær að algjör friðlýsing Þjórsárvera yrði stórt skref í þágu náttúruverndar. Aðstoðarmaður hans staðfesti að Össur sé fylgjandi friðun þeirra sem þýðir að Norðlingaölduveita gæti ekki orðið að veruleika. ejg.
    .
    .
    .

    http://www.ust.is/Frodleikur/Fridlystsvaedi/nr/1283 Þjórsárver
    Víðáttumesta gróðurvin á miðhálendinu. Stingur í stúf við harðneskjulegt umhverfið. Gróskumiklar og fjölskrúðugar flæðilendur með afar fjölskrúðugu gróðurfari. Mestu varpstöðvar heiðargæsarinnar í heimi. Svokallaðar rústir eru sérkennilegar sífreramyndanir í jarðvegi sem geta orðið yfir metri að stærð. Örnefni minna á búsetu útilegumanna í gegnum tíðina. Fyrst lýst friðland 1981. Reglur endurskoðaðar 1987.
    Svæðið er verndað samkvæmt samþykkt um votlendi sem hefur alþjóðlegt gildi, einkum fyrir fuglalíf (Ramsar). Á tímabilinu 1. maí til 10. júní er umferð um varplönd heiðargæsar bönnuð.





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.