FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

brúsar?

by Baldur Gunnarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › brúsar?

This topic contains 18 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Baldur Gunnarsson Baldur Gunnarsson 21 years ago.

  • Creator
    Topic
  • 11.05.2004 at 22:34 #194342
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant

    sælt veri fólkið
    Getur einhver bent mér á hvar er hægt að fá ódýrustu eldsneytisbrúsanna? Er kannski hægt að fá eitthvað dót gefins hjá olíufélgunum? Er búinn að athuga á nokkrum stöðum og mér finnst þetta alltof dýrt, slagar upp í aukatank.

    Baldur – fátæki

  • Creator
    Topic
Viewing 18 replies - 1 through 18 (of 18 total)
  • Author
    Replies
  • 12.05.2004 at 00:31 #501833
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    starfsmannafélag ölgerðarinnar Egill skallagríms. er að selja mjög góða brúsa. sem eru á einhverja hundraðkalla man ekki nákvæmlega hvað. mjög ódýrir og góðir brúsar ég hef notað svoleiðis í nokkur ár.

    það er auglísing um þetta niðrí mörk með símanúmeri og svo geturu öruglega bara farið uppí ölgerð. (beint á móti select á suðurlandsveginum)





    12.05.2004 at 03:40 #501837
    Profile photo of Kári Alfreðsson
    Kári Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 37

    Það fást bensinbrúsar í Verkfæralagernum niðri í Skeifu
    og kosta 2900kr.
    Þetta eru þessir venjulegu 20L stálbrúsar sem við höfum
    verið að nota,svo eru líka til 10L á sama verði.
    Ég lenti þarna inn fyrir örfáum dögum og það er allt mögulegt þarna á mjög góðu verði.





    12.05.2004 at 07:19 #501841
    Profile photo of Páll Arnarsson
    Páll Arnarsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 494

    Ég hef líka verið að kaupa 60 ltr brúsa, undan rúðupissi, hjá olís, þea þar sem þeir eru með lagerinn fyrir rúðupiss, olíur og þessháttar. Þeir hafa verið að kosta einhverja hundraðkalla, man ekki hversu mikið. Hef líka fengið hjá þeim 80 ltr tunnu og krana til að setja á þetta. Þetta hefur virkað vel hjá mér en tekur auðvitað mikið pláss :(





    12.05.2004 at 11:53 #501845
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Væri hægt að fá að vita við hvern maður á að tala hjá olís eða einhverju öðru olíufélagi til að geta keypt svona brúsa ? Eða kannski fá númerið sem einhver er að tala um að sé niðri í Mörk (ég man eftir að hafa séð þessa auglýsingu en tók ekki niður númerið).





    12.05.2004 at 12:30 #501849
    Profile photo of Jón Snæbjörnsson
    Jón Snæbjörnsson
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 661

    um leið og þið borgið fyrir þessa brúsa-ölmusu hjá þessum olíukóngum, munið að þakka þeim fyrir styrkinn með lágt bensín sem og olíuverð undanfarinn misseri og hvetjið þá til að halda verðinu óbreyttu….:(

    kv
    jon





    12.05.2004 at 14:34 #501853
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    Ég mæli með brúsunum frá Ölgerðinni. Þeir eru til 20 l. og 50 l. minnir mig. 20 l. brúsarnir eru mjög þægilegir í notkun (lögunin er góð) og tapparnir eru mjög þéttir. Farið bara á skrifstofuna baka til við Ölgerðina og þeir beina ykkur áfram. 20 l. brúsi kostar ca 4-500 kr. minnir mig.

    Munið bara að þrífa vel út úr brúsanum með heitu vatni fyrir notkun. Þetta er óttalegt sull þessi bragðefni sem flutt eru inn til landsins í brúsunum. Mig langaði alla vega ekki Pepsí í nokkurn tíma eftir að ég lyktaði úr brúsanum :-)

    kveðja
    Agnar





    12.05.2004 at 21:40 #501857
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    mig minnir að í þessum brúsum séu litarefni, … allavegana minnir mig að meginuppistaðan í pepsíinu komi í duftformi, (það var einhverntíman einhver að segja mér allt um þetta þegar ég var að vinna þarna,var ekki beint að hlusta á hann)
    En aðalatriðið er að gróðinn af þessum brúsum fer allur í starfsmannafélagið, og bið ég alla um að styrkja þá, svo þeir geti nú keipt sér smá bjór (því að þeir fá ekki að smakka þegar þeir eru að framleiða þetta) ýmindið ykkur hvernig er að standa við færibænd allandaginn og horfa á bjórflöskur.





    12.05.2004 at 22:33 #501861
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Ég keypti um daginn þessa grænu járnbrúsa í Benna á 3000 kall. Finnst það frekar mikið ef starfsmannafélagið hjá Agli er að selja brúsa á 4-5000 sem hvað færu annars í ruslið.





    13.05.2004 at 00:51 #501865
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Höfundur: AgnarBen
    Fjöldi pósta: 173
    Ölgerðin
    Sent inn 12.5.2004 14:34:36

    ——————————————————————————–

    Ég mæli með brúsunum frá Ölgerðinni. Þeir eru til 20 l. og 50 l. minnir mig. 20 l. brúsarnir eru mjög þægilegir í notkun (lögunin er góð) og tapparnir eru mjög þéttir. Farið bara á skrifstofuna baka til við Ölgerðina og þeir beina ykkur áfram. 20 l. brúsi kostar ca 4-500 kr. minnir mig.

    Munið bara að þrífa vel út úr brúsanum með heitu vatni fyrir notkun. Þetta er óttalegt sull þessi bragðefni sem flutt eru inn til landsins í brúsunum. Mig langaði alla vega ekki Pepsí í nokkurn tíma eftir að ég lyktaði úr brúsanum :-)

    kveðja
    Agnar





    13.05.2004 at 00:52 #501869
    Profile photo of Sveinn Fannar Jónsson
    Sveinn Fannar Jónsson
    Member
    • Umræður: 11
    • Svör: 66

    Já bazzi verður maður ekki ónæmur fyrir bjór þegar maður vinnur með honum allan daginn.

    Ef eg væri að fylla á bjórflöskunar mundi eg setjast undir rörið og fylla mig……….:)





    14.05.2004 at 00:07 #501873
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    jah það kemur alltaf bros á mennina sem eru að vinna þarna þegar að maður minnist á starfsmanna sjóðinn, og hvað þeir ætli að kaupa sér mikinn bjór fyrir hann. Ég er nú bara að vinna þarna í rafmagninu einstaka sinnum, en alltaf langar manni nú í bjór þegar maður sér lagerinn þarna og sérstaklega lagerinn uppí áfengi það er all svakalega skemmtileg sjón.

    en brúsarnir kosta 400 kr stk eru 70 l og svo eru einhver minni tegund til sem ég man ekki hvernig er.

    niðrí mörk í kvöld var einhver að segja að einu brúsarnir sem sé hægt að treysta til að hafa inní bíl séu einhverjir svartir sleðabrúsar… hann var að meina að olían skemmi allar þéttingar á öllum öðrum brúsum. Ég hef ekki tekið eftir þessu sjálfur en vildi ég bara koma þessu á framfæri.

    það sem ég hef alltaf gert er að leggja þá á hliðina með tappan upp. Og hef ég þá ekki fyllt brúsana meir en svo að olían lyggi ekki á tappanum. ??? vona að þið skiljið hvað ég á við.

    hveðja Bæring





    14.05.2004 at 00:31 #501877
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Sælir

    Ég fór þarna í dag og fékk 30 lítra brúsa á 300 kr. Fína brúsa með góðum tappa og passa á gólfið fyrir aftan framsætin í Pajeró.

    Þeir áttu líka 20, 60 og 90 lítra brúsa.

    En það var nóg til þarna og þeir bara fegnir að losna við eitthvað af þessu.

    En þeir vildi hins vegar alls ekki að ég grynkaði á bjórlagernum hjá sér – ég bara skil þetta ekki…..

    Kveðja
    Benni





    14.05.2004 at 22:18 #501881
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Félagi minn var með svona svarta sleðabrúsa sem að bazzi talaði um, annar sprakk og 20L af olíu um allan bíl….!

    Það var ekki fögur sjón, það þurfti að stípa hann að innan og háþrýsti því ALLT, og þá meina ég ALLT, það þurfti nokkrar umferðir og þetta tók nokkra daga.





    17.05.2004 at 12:46 #501885
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant
    • Umræður: 158
    • Svör: 1709

    Sælir séu snillingar

    Það sullaðist aðeins úr einum brúsa í teppið
    á dömunni. Greinilegt að fleiri hafa lent í þessu
    ég er búin að rífa teppið úr með hvaða efni mæla menn með til að losna við fnykinn. Einhver fundið töfralausn ??

    kv
    pæji





    17.05.2004 at 12:53 #501889
    Profile photo of Jón Snæbjörnsson
    Jón Snæbjörnsson
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 661

    ég mundi tala við þá upp í tjónadeild hjá Sjóvá Almennum, þeir er með gengi sem sérhæfis sig í svona þrifum !!!

    kv
    js





    17.05.2004 at 13:17 #501893
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Hvernig er það er ekki hægt að fá seglpoka sem er hægt að setja brúsana í til að koma í veg fyrir svona tjón á teppum,eða annarskonar poka sem heldur ef eitthvað kemur uppá.

    kv JÞJ





    17.05.2004 at 14:57 #501897
    Profile photo of is
    is
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 994

    Er ekki besta lausnin að fá sér strax AUKATANK og
    hætta að nota þessa BRÚSA.

    Kalli.





    17.05.2004 at 15:49 #501901
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    … eiga bara pallbíl, og þá má alveg sullast aðeins úr brúsunum :)

    en stefnum við ekki allir á aukatank? þetta er bara spuring um krónur

    baldur
    Þ-455





  • Author
    Replies
Viewing 18 replies - 1 through 18 (of 18 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.