FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Brjálæði!!!

by Trausti Bergland Traustas

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Brjálæði!!!

This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Kristján Logason Kristján Logason 15 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 19.03.2010 at 09:46 #211541
    Profile photo of Trausti Bergland Traustas
    Trausti Bergland Traustas
    Participant

    Daginn.

    Ég fékk allt í einu þá flugu í höfuðið, hvort það borgaði sig fyrir mig að dísilvæða Grandinn.
    Hefur einhver framkvæmt þetta?
    Hvaða vélar gætu passa oní svona cirka?
    Hvað með 2,5 turbo frá MMC, Eða þessa 3B sem er auglýst hér á spjallinu? Nú eða 3,3L Gamla Nissan og þá með túrbínu? Landrover 5tdi?
    Einhverjar fleiri hugmyndir?

    Endilega kommenta á þetta. Kannski er þetta bara brjálæði eins og stendur í fyrirsögninni.

    Kv Trausti semerorðinnalvegsnar

  • Creator
    Topic
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)
  • Author
    Replies
  • 19.03.2010 at 10:44 #687480
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    Mig minnir að einhverjir af þessum bílum hafi komið með díselvélum. ertu búinn að prófa google, svo er hitt málið að þetta er allt saman hægt, þetta er bara vinna





    19.03.2010 at 10:58 #687482
    Profile photo of Trausti Bergland Traustas
    Trausti Bergland Traustas
    Participant
    • Umræður: 105
    • Svör: 381

    Einhverjir bílar með þessu bodyi komu held ég með benz dísiel vélum.
    Bíllinn er árgerð 93.





    19.03.2010 at 11:57 #687484
    Profile photo of Einar Steinsson
    Einar Steinsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 752

    1995-1998 árgerð (ZJ) kom með Ítalskri VM Motori 4 sílendra 2,5L 114 hö 300 Nm
    1999-2001 árgerð (WJ) kom með Ítalskri VM Motori 5 sílendra 3,1L 138 hö 384 Nm
    2001-2004 árgerð (WJ) kom með Mercedes Benz 5 sílendra 2.7L 161 hö 400 Nm
    2005-2010 árgerð (WK) kom með Mercedes Benz V6 3L 215 hö 512 Nm

    Bílar sem eru voru smíðaðir í Ameríku og fyrir Ameríkumarkað hafa aldrei verið smíðaðir eða seldir með dieselvélum, það eru einungis bílar sem eru smíðaðir í Austurríki fyrir Evrópumarkað sem koma með diesel.

    Til gamans má geta þess að einfaldasta leiðin til að sjá hvort Grand er framleiddur í Evrópu eða Ameríku er að skoða hvort mílu eða Km tölurnar eru stærri á hraðamælinum, í Evrópu bíl eru stórar Km tölur og litlar mílu tölur en öfugt í bílum sem framleiddir eru í Ameríku (gildir allavega fyrir 1993-1998 ZJ).





    19.03.2010 at 12:12 #687486
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Rosalega er ég viss um að hann hafi verið seldur nýlega í Ameríkuhreppi með V6 benz mótornum.
    Kannski einhver ruglingur í mér.
    En það á greinilega að fara að selja hann svoleiðis þar:
    "The 2010 Jeep® Grand Cherokee’s 3.0L V6 turbo diesel engine incorporates advanced technology that results in for excellent fuel economy and driving range."
    Af http://www.jeep.com





    19.03.2010 at 13:34 #687488
    Profile photo of Vésteinn Finnsson
    Vésteinn Finnsson
    Participant
    • Umræður: 5
    • Svör: 65

    Trausti minn þú notar bara Musso vélina þeir í Sang hreppi framleiða alla þessa hluti hvort sem er hún er líka mun hljóðlátari en allt þetta 4cil japan dót en hinsvegar er drifbúnaðurinn í cherokee sennilga helst til vekur allavega er 30 drifið að framan í musso veikasti hlekkurinn og er svo ekki bara 35 að aftan í Chrokee
    kv vesteinn





    21.03.2010 at 20:03 #687490
    Profile photo of Trausti Bergland Traustas
    Trausti Bergland Traustas
    Participant
    • Umræður: 105
    • Svör: 381

    Já sæll.
    Mussovélin kemur sterk inn. Er þetta nokkuð annað en eðal Bensmotor sem þarna um ræðir.
    Hvað snertir hásingar og drif hef ég ekki áhyggjur.





    21.03.2010 at 23:20 #687492
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Skiljanlegt að menn séu með svona vangaveltur vegna þeirra upphæða sem fara í bensínkaup þessa dagana. En áður en þú ferð útí svona verkefni ættir þú að gera kostnaðaráætlun sem tekur bæði á peninga- og vinnuhliðinni, þetta kostar töluvert og er mikil vinna. Svo er eitt sem þú þarft að hafa í huga. Einn af stóru kostunum við grandinn hjá þér er aflið, þar hefurðu eitthvað umfram flesta aðra bíla í þessum stærðarflokki. Ef þú setur í hann diesel vél í þeim dúr sem er talað um hér að ofan verður bíllinn hjá þér skuggalega líkur LC90, Pajero, Musso o.s.frv. Hann er álíka þungur og yrði jafn máttlaus, ertu til í að fórna forskotinu sem þú hefur í dag á þessa bíla???????

    Hvet þig til að hætta þessum pælingum og hafa bílinn áfram jafn öflugan og hann er í dag.

    kv. Freyr (sem fer á fjöll á bensín Cherokee 😉





    22.03.2010 at 17:30 #687494
    Profile photo of Heiðar Steinn Broddason
    Heiðar Steinn Broddason
    Participant
    • Umræður: 113
    • Svör: 839

    Sælir,það var einn sem setti 2,7tdi úr terrano í cherokee held reyndar eldra útlitið, var svo til sölu hér á 4×4,spurningum að grafa eigandan af honum upp og spurja útí hvað það hafi verið mikið mál

    kv Heiðar U119





    22.03.2010 at 20:14 #687496
    Profile photo of Magnús Bs
    Magnús Bs
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 80

    Ég skil ekkert í þessu að vera setja díselvél í Cherokee, var að koma úr stóruferðinni á mínum 280 hestafla, 8 gata cherokee sem var að eyða minna heldur en margur dísel bíllinn, sem dæmi var bíllinn fylltur í Hafnarfirði svo var brunað 161 km hingað og þangað.
    (Þó aðallega langkeyrsla) og komið við í Hrauneyjum og náði að troða þar á hann 22 lítrum.
    Já þetta er hið mesta brjálæði :)





    22.03.2010 at 22:10 #687498
    Profile photo of Einar Steinsson
    Einar Steinsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 752

    Þrátt fyrir að Jeep sé einhver allra mesta vélamella allra tíma þá hefur það aldrei farið þeim vel að vera með olíubrennara.





    22.03.2010 at 23:53 #687500
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    þetta er nú bara guðlast að ætla sér að framkvæma svona gjörning, einmitt hjartað í svoan bílum er hjartað. Að ætla að fara setja einhvern helvítis grútarbrenna sem ekkert gerir, hvað er það. Fyrir utan kostnað og vesen, og hedd, og túrbínur og,………. í staðinn fyrir að taka bara bensín og hafa gaman.

    Kv, Kristján





  • Author
    Replies
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.