This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Dagbjartur Vilhjálmsson 12 years ago.
-
CreatorTopic
-
23.10.2012 at 22:58 #224730
Sælir félagar og aðrir velunnarar.
Við vildum prófa aðeins að stokka upp á forsíðunni og hefðum viljað fá ykkur til að kjósa hér, sem og koma með ummæli um hvað ykkur finnst.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
23.10.2012 at 23:43 #759693
Þetta venst
24.10.2012 at 11:46 #759695Sælir.
Fyrir mitt leiti er ég óhress með þessa breitingu. Ég vil að tenglarnir verði lágrétt eins og þeir voru. Eins og þetta er núna verður stóri hvíti fréttareiturinn blindandi fyrir tenglana vinstra megin og maður sér þá illa. Fréttareiturinn er allt of stór fyrir efni sem hreifist nánast ekki neitt og maður er alltaf að lesa sömu fréttina.
Þær hanga þarna inni í einn, tvo til þrjá mánuði. Fréttir taka nánast hálfa forsíðuna á kostnað fræðandi tengla, spjalls og auglýsinga.
Það er ekki alveg að marka þótt ég sé þessu mótfallinn því við erum að þessari vinnu fyrir félagsmenn.
Skráið ykkur nú inn félagsmenn og greiðið atkvæði að ykkar áliti og tjáið ykkur hér á þræðinum.
Kv. SBS.
24.10.2012 at 12:39 #759697Ég ætla að nota síðuna í nokkra daga og kommenta svo á breytingarnar, ekkert að marka svona "first impression".
kv. Freyr
24.10.2012 at 23:15 #759699Góðan daginn,
svona fljótt á litið er ég nokkuð sammála Sigurði. En eins og Freyr segir er rétt að skoða þetta í rólegheitunum.
En enn og einu sinn vil ég nefna eitt sem ég sakna mjög af gömlu síðunni……………. Það var þannig að eins og nú í auglýsingum og spjallinu þá sást kannski bara hluti af fyrirsögninni og var þá nóg að færa bendirinn yfir fyrirsögnina á BIRTIST HÚN ÖLL. Í dag þá þarf maður að opna auglýsinguna til að átta sig á hvað er verið að selja eða tala um. Stundum eitthvað helvítis drasl sem maður hefði ekki opnað ef fyrsögnin hefði birst og maður hefði vitað hvað um var að vera !!!!
Gott væri ef þetta yrði tekið til athugunar !!
Kveðja Hjörtur og JAKINN.is
24.10.2012 at 23:51 #759701
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Þetta form nýtir heldur ekki nema rétt rúmlega helming af breiddinni af nútíma skjám. Hlutföllin á síðunni eru einhvern veginn ekki að passa á hæð og breidd.
kv
Grímur
26.10.2012 at 17:27 #759703Ég er nokkuð sammála SBS, þetta er ekkert sérstakt og ekki þægileg uppröðun. Það er hinsvegar gott að einhver sé að gera tilraunir með hvað félagsmönnum fellur í geð, prik fyrir það vefnefnd.
En af því að það er nú verið að tala um vefinn þá langar mig ógurlega mikið til að varpa fram hugmynd varðandi myndaalbúmið. Þegar verið er að fletta í gegnum myndir, sem margar hverjar eru býsna skemmtilegar, þá njóta þær sín ekki. Ég mundi vilja sjá "FancyBox" pluginið sem birtir myndirnar í fljótandi glugga, í stærð sem browserinn er í. Það er, ef þú ert með vefsíðuna í glugga þé verður myndin alltaf inni í glugganum, ef þú setur vefsíðuna í fullscreen þá verður myndin mun stærri. Dæmi um þetta má sjá á minni myndasíðu sem er á [url=http://myndir.mannheimar.is/index.php/Vetrarmyndir/safn_vetur:30z4vjss]http://myndir.mannheimar.is[/url:30z4vjss] Þegar smellt er á mynd sprettur hún upp í glugga, síðan til að fletta er smellt á píluna hægra- eða vinstra megin nú eða bara pílurnar á lyklaborðinu. (Vefsíðan er e.t.v. hæg þar sem tölvan stendur á gólfinu heima hjá mér)
Til þess að fá félagsmenn til að vera virkari í að setja inn myndir þá verður að vera gaman að skoða myndirnar og þær þurfa að njóta sín.
Bara svona hugmynd, get sent nánari útfærslur ef óskað er eftir því.
06.11.2012 at 00:08 #759705Nú er kominn smá reynsla á þetta nýja útlit. Ég verð að segja að ég kann ekki enn að meta breytingarnar. Það sem ég (og sennilega yfirgnæfandi meirihluti notenda) skoða lang mest er spjallið og auglýsingarnar og því er óheppilegt að sjá það ekki þegar forsíðan birtist, það er verra að þurfa alltaf að fletta niður. Eins og einhver nefndi hér að ofan nýtir síðan skjáinn ekki vel, hjá mér er t.d. skjárinn ekki nema um 60% nýttur, í flestum tölvum sem ég nota nýtist hann þó betur en alls ekki allur.
Annars er þetta í mínum huga ekki stórt atriði og ef þetta hentar betur á einhvern hátt, t.d. fyrir vefnefndina þá er ég bara sáttur með þetta…..
Að lokum langar mig samt að minnast á eitt sem ég sakna af síðunni síðan "í gamla daga". Það væri gott ef hægt væri að smella á myndirnar sem birtast á forsíðunni og komast þannig beint í viðkomandi albúm.
Kveðja, Freyr
06.11.2012 at 22:34 #759707Mér finnst vanta viðburðadagatal sem er aðgengilegt öllum deildum.
06.11.2012 at 23:44 #759709Vá hvað þetta er allt annað,
Ég hef ekki notað f4x4 síðuna mjög lengi, mér þótti hún svo afskaplega fráhrindandi orðið.
það er aldrei að vita nema maður fari að venja komu sína inn hérna aftur.
mbk
Dabbi
óvirkur jeppakall 😉
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.