FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

breyting og búnaður

by Gunnar Freyr Freysson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › breyting og búnaður

This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra Guðbrandur Þorkell Guðbra 21 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 17.01.2004 at 20:35 #193477
    Profile photo of Gunnar Freyr Freysson
    Gunnar Freyr Freysson
    Participant

    sælir snillar!

    ég er að standsetja fyrsta jeppann minn og vantar nokkrar upplýsingar.
    er að breyta grand cherokee ´93 fyir 36″ hvernig hlutfall hentar nú best?? (dana 35)
    það vantar líka betri lýsingu (kastara) á bílinn, hvað er svona ágætt til að byrja með, ekki of dýrt en samt ekkert drasl og hvar er best að staðsetja þá??

    EF einhver af ykkur hefur breytt svona bíl væri gaman að vita smá! ég er að hugsa um að færa afturhásinguna aftur um 4-5 cm, hvað er hentugt að hafa stífurnar (efri og neðri) langar?? og með jafnvægisstöngina, er ekki í lagi að lengja hana með því að sjóða bút inn á milli???

    gott væri að fá góð ráð frá ykkur, og sjáumst svo á fjöllum.

    Takk, Freyz

  • Creator
    Topic
Viewing 2 replies - 1 through 2 (of 2 total)
  • Author
    Replies
  • 17.01.2004 at 21:35 #484650
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Af því að ég var að leita mér að kösturum um daginn get ég bent þér á eitt. Í bílasmiðnum uppi á Höfða fást kastarar sem eru mjög svipaðir Light Force ljósum (sem ku gott) á 6.200 kr. stk. Þeir koma með 55 w perum en þola 100 w.

    Þeir eru til með glæru gleri og eiga að koma í næstu viku með bláu.

    Ég er allavega að hugsa um að skella mér á þessa bláu – enda fáránlega lítið verð ef þeir eru þokkalegir. Bláa glerið mun hentugra fyrir snjóakstur en aðrir litir – en ég renni reyndar blint í sjóinn með það sjálfur þar sem ég hef enga reynslu af bláu gleri.

    Hvað varðar staðsetningu eru sjálfsagt til ótal misvísandi biblíur um það eins og annað – en mín reynsla er sú að öflugustu og mest notuðu kastararnir eigi að vera framan á bílnum (grillhæðin hefur hentað mér ágætlega hingað til) frekar en á toppnum, þar sem það er óþægilegt í löngum akstri að lýsa upp húddið og snjókomu beint fyrir framan framrúðuna.

    Á toppinn er hinsvegar fínt að setja annað sett til að nota ef þú vilt lýsa yfir eitthvað sem þú kemur að (t.d. snjóskafl eða á).

    Reynsla mín af þokuljósum er svo æði misjöfn og í raun eru þau gagnlaus nema það sé mikið og gott ljós af þeim (mér finnst gult þokuljós betra en glært og gullperur gefa einna besta "þoku"’ljósið að mínu mati) en þau hef ég haft neðarlega og utarlega á þeim bílum sem slíkan búnað hafa haft. Ég hef beint þeim þannig að þau lýsa í raun ekki beint fram fyrir bílinn, heldur eilítið til hliðar, og treysti á þau til að finna vegkanta í mjög lélegu skyggni.

    Vona að þetta hjálpi eitthvað – en treysti jafnframt á að aðrir kveði sér hljóðs um sína skoðun, svo að þú hafir við fleiri en einn að styðjast.

    Kv.
    Einar.





    17.01.2004 at 22:47 #484652
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Það er nú þvílíkt reglugerðafargan frá Brüssell varðandi aukaljós að það hálfa væri nóg. Það virðist einhver hópur fólks hér á landi líka vera haldið fóbíu gagnvart þokuljósum og gestist í einhverju bölvuðu rugli ef það sér slík ljós á bíl. Nú, en varðandi toppljós er ég ekki alveg á sama máli og granigamli varðandi þau. Það er nú þetta með að lýsa upp kófið – aðalljósin á bílnum eru nú duglegust við það. Það er einhvernveginn eins og þegar maður er með augun fyrir neðan aðalgeislann, þá virðist manni sem ljósið getu nýtst betur í skafrenningi og dimmviðri. Flutningabílstjórarnir eru a.m.k. mjög sáttir við þetta fyrirkomulag, en af einhverjum ástæðum er leyft að nota þesskonar ljós við akstur með háljósum á flutningabílum en ekki á jeppum. Drottinn einn má vita af hverju. Okkur ber að hafa hlífar á þeim við venjulegan akstur skv. reglugerðinni. Ég tek hinsvegar undir það með granigamli að til þess að þokuljós nýtist sem best þurfa þau að vera neðarlega. Best finnst mér linsuljós og var einn af þeim sem þótti Hella DE ljós virka vel í dimmviðri meðan þau fengust. "Fiskaugaljós" virka álíka vel, einkum með gullperu. Áþekk ljós komu standard á Pajero 2800 GLS og virka vel að mínu mati. Ég á einhversstaðar í skúrnum tveggja geisla aukaljós frá PIAA, sem voru ansi góð þegar dimmt var á jörð og í fjallaferðum. Ég hef ekki prófað blá aukaljós, en hef heyrt mína kunningja sem hafa prófað þau láta vel af þeim. Þó eru menn ekki á einu máli um hvernig þau virka í skafrenningi.





  • Author
    Replies
Viewing 2 replies - 1 through 2 (of 2 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.