This topic contains 31 replies, has 1 voice, and was last updated by Halldór Gunnlaugur Hauksson 18 years, 11 months ago.
-
CreatorTopic
-
13.12.2005 at 10:39 #196856
Sælir félagar norðan heiða. Ég er að kanna hug manna til ferðar í Réttartorfu með brennuefni fyrir Þrettándagleðina. Hugmyndin er að fara að morgni 29 des n.k. Eru einhverjir lausir þá?
Kveðja Erlingur Harðar
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
13.12.2005 at 16:12 #535874
Ég ætti að geta komist. Ég ætla að bleyta dekkin á Tacomunni og Lúther ætlar að koma sérstaklega með til athuga hvort ég komist alla leið. Ég veit reyndar ekki hvort hann er að spá í Tacomu í staðin fyrir þennan Ford klett sem hann var að spá í. Mig svona grunar það bara svo að hann verði ekki minni maður.
kv
Halli Gulli
13.12.2005 at 17:44 #535876ég er sennilega tilbúin fara í þessa ferð. ég hef ekki komið þarna áður svo mig langar sjá skálan og testa bíllinn betur í leiðinni:)
kv.
Erling T. Erlingsson
13.12.2005 at 21:05 #535878Já ég er ánægður með ykkur. Dagsetningin er ekkert heilög held ég. Best væri ef allir kæmust þennan dag þar sem hann hefur verið skipulagður en ef flestir komast einhvern annan dag þá endilega látið vita. Kanski má fara tvær ferðir! Við fórum um helgina upp eftir og [b:1f5soc04][url=http://enigma.network.is/myndir/vinnuferd1205:1f5soc04]hér eru myndir úr þeirri ferð[/url:1f5soc04][/b:1f5soc04].
Kveðja [HTML_END_DOCUMENT][url=http://enigma.network.is/myndir:1f5soc04]Erlingur Harðar[url=][/url:1f5soc04][/url]
14.12.2005 at 00:50 #535880Sælir. Það væri bara mjög gaman að skreppa í þennan túr. Sá síðasti var góður og ég ætla að skoða dagatalið hjá mér með þetta.
kveðja Bjössi
23.12.2005 at 18:11 #535882Var að spá hvort menn séu ekki harðir á að fara upp í Réttartorfu 29 des. Var líka að velta því fyrir mér hvort maður fengi ekki að fljóta með ykkur "stóru jeppaköllum".
Jóla kveðja Pétur (o:
23.12.2005 at 18:35 #535884Ég er til og verð að athuga hvort að brettin sem við vorum að henda í land hjá okkur eru ekki einhversstaðar og grípa þau með. En verður ekki snjórinn bara farinn eftir hitakastið sem verðuir um jólin? Þetta er alveg ferlegt að fá ekki hvít jól!! Kv Stefán
23.12.2005 at 18:36 #535886Hvernig líst mönnum á að fara föstudaginn 7 jan á nýju ári eða jafnvel á laugardagsmorgun 8 jan. Þá virðast fleiri komast með og kerran þeirra Trukkana verður tilbúin. Þá er hægt að vera aðeins lengur og halda bara þrettándagleðina á laugardeginum.
Það er svo ekkert sem mælir á móti því að fara könnunarleiðangur í fljótið þann 29 og sjá hvort það er orðið helt. Að fara með stórar kerrur um hraunið er ekki auðvelt en allt er jú hægt.
Kveðja:
Erlingur Harðar
23.12.2005 at 18:38 #535888ER ekki um að gera að kíkja á þetta 29. ég er allavega klár.
23.12.2005 at 18:43 #535890"Bubbi litli" er klár 29 des en um að gera að fara upp eftir 29 með efni eða kíkka á fljótið. Síðan er Eiður Jónsson öruglega klár líka, þannig að þá erum við komnir með brennuefni á hjólum. (o:
Pétur
23.12.2005 at 18:46 #535892líður þér eitkvað illa
23.12.2005 at 18:48 #535894Bubbi manaði mig…. (o: Þú átt bjór inni hjá mér, þetta var undir beltisstað…
23.12.2005 at 18:50 #535896já ókei þér er fyrirgefið BARA ef ú stendur við BJORINN
23.12.2005 at 19:03 #535898Ef að líkum lætur verð ég kominn á sjó og er því frekar spentur fyrir að fara 29 og hver þarf kerru þegar Suburban er í boði, hann tekur lengi við og ansi mikið hægt að stafla í hann! Stefán
23.12.2005 at 19:05 #535900Mér skildist að þið eyfirðingar væruð svo uppteknir í flugeldasölu. Nei ég er ekkert að gugna á einu eða neinu. Ætli það verði ekki að vera alvðru bíll með ykkur kettlingunum svona til að ryðja brautina hehehehehe
Kveðja:
Erlingur Harðar
23.12.2005 at 19:13 #535902mjög uppteknir en tókum frá 29. til að aðstoða alla patrolana að komast í torfuna
23.12.2005 at 20:18 #535904Ertu þú að fara á fjöll til að aðstoða Patrol Eiður ??? Mig minnir að einhverjir aðrir hafi nú verið nokkuð mikið hjálparþurfi, og þótti nú ekki slæmt að fá að dingla aftaní Patrol.
SAS kveðja
Hlynur
ps: ég fer að gera mér ferð í Eyjafjörð með CB. Á líka eftir að sigra eina brekku þarna.
23.12.2005 at 20:30 #535906stundum held ég að við höfum ekki verið í sömu páska ferðinni. patrol hlungur. en er ekki viss um að rolan þín komis brekkuna umtöluðu allavegna gugnaðiru niður……….he he he he he he
Jólakveðja
Eiður
25.12.2005 at 09:37 #535908Fyrir þá sem eru smeykir við veðrið. Það er spáð froststillu og sól í Bárðardal 29 des. (reyndar öllu norðurlandi). (o: Já og gleðilega hátíð.
25.12.2005 at 12:57 #535910Gleðileg Jól ágætu jeppaeigendur.
Það verður örugglega fín þátttaka í þessari brennuferð en það er spurning hvort við eigum að hita aðeins upp fyrir hana og skreppa á Kaldbak og inn í Fjörður jafnvel bæði. En það þarf að vera eitthvað annað hitastig en er núna. Það er nálægt 10 gráðu hita og allt að bráðna. En í alvöru þá væri gaman að skoða þetta og fara að morgni 27. eða þess 28. ef betur viðraði þann dag,
Hvernig er annars spáin Pétur fyrir 27.?
Ég vil ekki að jeppinn hans Eiðs verði brenndur. Ég bara tapa á því.HG
25.12.2005 at 13:36 #535912Já endilega að fara eitthvað 27 des.
Benni
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.