FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Brennuferð

by Elías Þorsteinsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Skálamál › Brennuferð

This topic contains 19 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Elías Þorsteinsson Elías Þorsteinsson 18 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 26.12.2006 at 16:28 #199234
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant

    Hin árlega brennuferð Eyjafjarðardeildar í Réttartorfu verður farin laugardaginn 30. desember.

    Farið verður frá Leiru kl. 10:00.

    Félagar beðnir um að fjölmenna og taka eins mikið af brennuefni með sér sem þeir geta.

    fh. skálanefndar.
    Elli Þorsteins.

  • Creator
    Topic
Viewing 19 replies - 1 through 19 (of 19 total)
  • Author
    Replies
  • 26.12.2006 at 18:29 #572626
    Profile photo of Stefán Höskuldsson
    Stefán Höskuldsson
    Participant
    • Umræður: 63
    • Svör: 530

    Er ekki meininginn að koma saman fyrr og lesta bílana einhversstaðar? Er ekki einhversstaðar efni sem hægt er að komast í, kv Stefán





    26.12.2006 at 18:41 #572628
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    er einhver snjór á þessu svæði af viti? Við feðgar fórum nefnilega uppá Reykjaheiði í dag og þar er lítill snjór, og það litla sem er þarna er grjóthart! Hleyptum ekki einu sinni úr.
    En það væri gaman að heyra hvort það sé eitthvað að hafa þarna. Mig sárvantar nefnilega snjó til að leika mér í, búinn að vera í saltinu í borginni í allt haust og svo er snjórinn farinn þegar maður kemur loksins norður. Skelfilega erfitt líf.

    kv
    Baldur
    Þ-455





    26.12.2006 at 19:05 #572630
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant
    • Umræður: 158
    • Svör: 1709

    tóm hamingja





    26.12.2006 at 19:40 #572632
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Meiningin var sú að menn finndu sér efni t.d. deginum áður og lestuðu. Stebbi. heyrðu í Jörundi hjá Tætingu, hann er með eitthvað efni.

    Baldur. það er sennilega svipað snjómagn á leiðinni í Réttartorfu og á Reykjaheiðinni. Ég fór upp í "Torfu" um daginn þegar að snjóaði og helgina eftir uppi á Þeystareyki, Þá var svipað snjómagn á báðum stöðum.

    Hinsvegar eru meiri og stærri skaflar í hrauninu á Stórutunguleið en sennilega allt hart.

    Gaman væri að þið í Húsavíkurdeild slægjust í för með okkur uppeftir verðum sennilega hjá Fosshóli um kl 11.00. og að sjálfsögðu væri smá brennuefni vel þegið.

    Kveðja
    Elli.





    26.12.2006 at 20:42 #572634
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Elías, ætlar þú bara að sofa allan daginn? Sæll annars og gleðileg jól. Í fyrra var ég "Brennuferðastjóri" í fjarveru þinni og hittumst við allir kl: 08:00 og settum í bílana í sameiningu í myrkrinu… Þetta mæltist vel fyrir fannst mér. Er ekki rétt að tala við Jörund og fá hjá honum eiitthvað dót. Gangi það eftir, þá að hittast þar um 08:00 og setja í bílana. Bruna síðan uppeftir, losa, éta og keyra svo eitthvað!!! Hvað segið þið um það? Í fyrra brunuðum við í frábæru færi lang leiðina upp að Mosum. Veir náttúrulega ekkert hvernig fljótið er en eitthvað ætti að vera hægt að fara.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar
    Sem hlakkar mikið til ferðarinnar og að prófa nýju IPF kastarana…





    26.12.2006 at 20:43 #572636
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    … og ekki orð um að brennan hafi verið lítil í fyrra. Ég er jú bara "litli" Búðingur!!!

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    26.12.2006 at 20:45 #572638
    Profile photo of Víðir Lundi
    Víðir Lundi
    Participant
    • Umræður: 37
    • Svör: 325

    Hvað segið þið piltar hvenar verðið þið viss Fosshól??
    held að maður líti á torfuna með ykkur ef það er í lagi?
    Kv frá Húsavík

    Víðir L

    Gambri4x4





    26.12.2006 at 20:46 #572640
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Svo væri auðvitað gott ef áhugasamir skráðu sig hér.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    26.12.2006 at 20:48 #572642
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Hvað segirðu Stóri, hvenar verðum við við Fosshól… kl:10:00 ???

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    26.12.2006 at 20:52 #572644
    Profile photo of Víðir Lundi
    Víðir Lundi
    Participant
    • Umræður: 37
    • Svör: 325

    Ef færið er eitthvað svipað og á Reykjaheiðinni þá er hægt að fara á hvaða tæki sem er á Torfuna,hart var á heiðinni í dag allvega,’eg mæti á Torfuna og jafnvel með brennuefni nu ef í hart fer þá má aðveg láta karokee loga.
    Svona ef þið getið áhveðið ykkur hvenar þið verðið við Fosshól
    Kv
    Víðir L
    Þ412
    Gambri4x4





    26.12.2006 at 21:39 #572646
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    vegna þess að félagarnir á Dalvík Óskar, Mási og fleiri koma með 2 kerrur og verða á Akureyri á milli 9 og 10.

    Það er nægur tími og langskemmtilegast ef allir halda hópinn.

    Stefnum að því að fara frá Fosshóli kl 11:00.
    Vonast til að sjá Fugla og félaga með flullt af efni.

    Munið! að nú á brennan að verða stóóóóór.

    Bestu kveðjur.
    Elli.





    27.12.2006 at 14:30 #572648
    Profile photo of Jörundur H. Þorgeirsson
    Jörundur H. Þorgeirsson
    Member
    • Umræður: 3
    • Svör: 10

    Nóg er til af efni hjá Tætingu ehf.
    Elli ákveður lestunartíma og ég skal hafa til keðjusög ef snikka þarf til efnið.

    Jörundur 840-5705





    27.12.2006 at 15:45 #572650
    Profile photo of Elmar
    Elmar
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 81

    við sveitalúðarnir ætlum að drífa okkur með, erum að spekúlera hvort einhverjir séu að hugsa um að drífa sig á föstudagskvöldið???? heirði í bárdælingum í gær og það er hvítt yfir að sjá í Svartárkoti.
    kv.Elmar





    27.12.2006 at 17:54 #572652
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Mætum hjá Tætingu kl 16:00 föstudaginn 29. des og hlöðum bílana.

    Tæting ehf er efst við Súluveg rétt hjá bílavoginni.

    kveðja.
    Elli.





    27.12.2006 at 18:14 #572654
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Var að tala við Guðrúnu í Svartárkoti og sagði hún að aðeins væri snjór í lægðum og einhverjir skaflar á stöku stað.

    Sennilega er bara næstum sumarfæri og þá spurningin hvernig fljótið er. Um daginn kom krapastífla í fljótið og þegar hún brast varð 871 m3 rennsli um tíma en fór þó fljótt í normalrennsli, sennilega hefur fljótið flætt upp á veg að austan og tekið með sér jakahröngl svo og í bökkunum á vaðinu er sennilega jakahröngl.

    Það væri bara fínt ef einhverjir vildu fara könnunarleiðangur á föstudag til að skoða það að fara með brennuefnið (kerrur) yfir fljótið á laugardag.

    Bestu kveðjur.
    Elli.





    28.12.2006 at 09:55 #572656
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Bara að uppfæra.





    29.12.2006 at 10:29 #572658
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Ég vil minna menn á að þeir geta fengið efni hjá Tætingu ehf til að fara með upp í Réttartorfu.

    Hleðsla í bílana byrjar kl 16:00 í dag.

    Kveðja.
    Elli.





    29.12.2006 at 15:16 #572660
    Profile photo of Jörundur H. Þorgeirsson
    Jörundur H. Þorgeirsson
    Member
    • Umræður: 3
    • Svör: 10

    Styrmir Jörundsson tekur á móti öllum með "KEÐJUSÖG!!" kl 16:00 í dag.
    Það er mikið af efni til í háum haug en við munum róta hluta af því niður svo léttara verði að velja úr.

    ATH: hliðið inn á svæðið er lokað með keðju utan vinnutíma. Í kvöld og fyrramálið munum við ekki setja lás á keðjuna að norðanverðu svo þeir sem þurfi að lesta utan okkar vinnutíma geti komist í brennuefni.
    Endilega gangið frá keðjunni á sama hátt þegar þið farið.

    Bestu kveðjur og góða ferð, Jöri.





    30.12.2006 at 19:36 #572662
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    til allra sem þátt tóku í brennuferðinni.
    Um 50 manns mættu á 23 bílum og er það nýtt met í brennuferð.

    Bestu kveðjur.
    Elli.





  • Author
    Replies
Viewing 19 replies - 1 through 19 (of 19 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.