FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Brennuefni í Réttartorfu

by Elmar

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Brennuefni í Réttartorfu

This topic contains 28 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Björn Pálsson Björn Pálsson 17 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 26.12.2007 at 11:08 #201446
    Profile photo of Elmar
    Elmar
    Participant

    Gleðilega hátíð góðir félagar.
    Jæja eru menn ekki búnir að sanka vel að efni aðsér til að fara með uppí Réttartorfu 29 des. til að við getum gert enn stærri brennu en í fyrra???
    kv Elmar

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 28 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 26.12.2007 at 12:11 #607732
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Sæll Elmar. Já það er vissulega komin tími til að hugsa um brennuferðina árlegu, ekki má hún klikka. Ég á nú ekkert efni á brennuna en er vel liðtækur til að koma því á bíl. Ég er sjálfur hálf bíllaus og óska hér með eftir fari með einhverjum. Við þurfum að ákveða stað til að hittast á, svo að allir séu vel upplýstir hvar og hvernig þetta fer fram. Ég veit ekkert hvernig færið er uppeftir en ef það er fært fyrir 31" RAM þá kem ég á mínum þó að ég telji það ekki skynsamlegt.
    Það vantar sem sagt stað og stund, einnig hvernig færið er til þess að allir viti hvaða bílar komast með. Ég hef fulla trú á að flestir bílar komist þetta.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    26.12.2007 at 20:11 #607734
    Profile photo of Stefán Höskuldsson
    Stefán Höskuldsson
    Participant
    • Umræður: 63
    • Svör: 530

    Já hvernig er það, er skipulag á þessu á höndum Skemtiferðanefndar eða skálanefndar? Eða er þetta óskipulagt ferðalag? Ég hef ekkert brennuefni en vilja til farar og fararskjóta, þó hann taki nú ekki mikið efni má setja nokkrar spýtur og eitthvert rusl inn. Þeir sem hafa skipulagningu á höndum ættu endilega að setja inn nánari skýringar á ferðinni. Kv Stefán





    26.12.2007 at 20:15 #607736
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    að ef einhverjir taki með sér pappakassa líka til að flíta fyrir að ná upp eld (geima þá inni fram að bálkveldi. Er ekki bara ágætt að legja af stað frá leyrunesti kl.13.00 eða vilja menn fara fyrr af stað?





    26.12.2007 at 21:20 #607738
    Profile photo of Hilmar Ingimundarson
    Hilmar Ingimundarson
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 227

    Ég er til ef þið haldið að 35tommu hilux komist hef aldrei komið þarna svo það væri gaman að kíkja get tekið töluvert af drasli á pallinn
    kv Hilmar





    27.12.2007 at 01:29 #607740
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Venjan hefur verið að hittast um 09:00 einhverstaðar og lesta bílana. Ég er nokkuð viss um að það er fullt af efni í Tætingu hjá Jörundi, er ekki búinn að tala við hann. Brottför er síðan ekki seinna en 11:00 þaðan eða frá Leirunesti. Það tekur tíma að keyra uppeftir og losa bílana. Síðan hefur verið tekin rúntur ef tími, færi og birta leyfir eitthvað út í buskann.
    Hverjir munu koma í þessa ferð? Nú er raunar svo komið að allar ferðir hafa fallið niður vegna þáttökuleysis, ég trúi ekki að þessi árlega ferð okkar falli niður núna. Í fyrra voru um 30 bílar eða meira í ferðinni.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar





    27.12.2007 at 01:53 #607742
    Profile photo of Stefán Höskuldsson
    Stefán Höskuldsson
    Participant
    • Umræður: 63
    • Svör: 530

    Síðasta skipulagða ferð var ekki feld niður en þátttakan var lítil, eða 2 bílar!!!





    27.12.2007 at 11:07 #607744
    Profile photo of Pétur Róbert Tryggvason
    Pétur Róbert Tryggvason
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 190

    Ég er klár í að fara og bubbi bróðir líka, alveg spurning að hafa ykkur stubbana saman á bíl Elli.. :)
    Það er fínt að fara klukkan 11 frá Leirunesti og hafa möguleika á að keyra eitthvað. Ég hafði hugsað mér að gista, fyrst við erum að fara þarna upp eftir á annað borð.

    Já og þetta er ekkert mál fyrir 35" Hilmar

    Þeir sem ætla. (gista)
    Pétur + 3 og gista
    Bubbi
    Elmar + 3
    Stefán
    Hilmar





    27.12.2007 at 12:02 #607746
    Profile photo of Stefán Höskuldsson
    Stefán Höskuldsson
    Participant
    • Umræður: 63
    • Svör: 530

    Er ekki seint að fara af stað kl 11? Birtan er það stutt að ætti ekki að fara fyrr til að ná birtunni á leiðinni uppeftir og geta notað hana til einhvers þegar uppeftir er komið, frekar enn að fara frá Ak þegar birtan er langt kominn? Ég er sammála Ella hér að ofan, að við höfum verið komnir í að hlaða bílana upp úr 9 til að komast af stað ekki seinna en 9 30 eða svo. En er búið að tala við Jörund um efni eða er einhver með efni annarsstaðar? Kv Stefán





    27.12.2007 at 12:02 #607748
    Profile photo of Baldur Pálsson
    Baldur Pálsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 186

    Sælt veri fólkið ég kem með samt ekki á Crúser…
    Veit einhver hvort á að fara fljótið eða hraunið ég verð staddur upp í sveit.





    27.12.2007 at 14:45 #607750
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Sælir félagar,

    Svona er dagskráin. Mæting hjá Jörundi í Tætingu kl. 09:00 að morgni 29. des. Jörundur er með fullt af efni og er hann staðsettur hjá öskuhaugunum. Mæli með að menn hafi stöðvarnar opnar, á rás 52 VHF, fyrir kl. 09:00 ef einhverjar spurningar eru.
    Áætluð brottför úr bænum er þá 10:00.
    Takið með ykkur sög ef þarf að búta eitthvað niður. Atvinnumenn í smíðum hljóta að eiga svona nýmóðins græjur eins og batterys hjólsög. :-)

    kveðja,

    Formaðurinn





    27.12.2007 at 14:50 #607752
    Profile photo of Hilmar Ingimundarson
    Hilmar Ingimundarson
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 227

    En ef maður býr nú ekki svo vel að eiga vhf stöð?
    ég er bara með gamla cb með am mótun

    kv Hilmar





    27.12.2007 at 15:45 #607754
    Profile photo of Stefán Höskuldsson
    Stefán Höskuldsson
    Participant
    • Umræður: 63
    • Svör: 530

    Jæja gott að komið er plan fyrir morgunin, en er eitthvað vitað um ástand á fljótinu og hvaða leið á að fara uppeftir? Stefán





    27.12.2007 at 16:34 #607756
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Í hlýindunum fyrir jólin komu tveir flóðtoppar í Fljótið, upp á 300 og 400 rúmmetra á sekúndu. Fljótið hefur þá örugglega rutt sig og er væntanlega opið núna með ísskörum og jakastykkjum á bökkunum. Ég held því að ráðlegast sé að fara Stórutunguleið.

    Grétar





    27.12.2007 at 21:07 #607758
    Profile photo of Jóhann Jóhannesson
    Jóhann Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 51
    • Svör: 330

    Ég mæti
    Kv Jóhann





    28.12.2007 at 08:09 #607760
    Profile photo of Pétur Róbert Tryggvason
    Pétur Róbert Tryggvason
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 190

    Það er fallegt veðrið…





    28.12.2007 at 15:38 #607762
    Profile photo of Stefán Höskuldsson
    Stefán Höskuldsson
    Participant
    • Umræður: 63
    • Svör: 530

    Og ekki er spáin síðri……….





    28.12.2007 at 16:15 #607764
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Það virðist ætla að vera nokkuð góð þátttaka í ferðinni eins og undanfarin ár. Það er engin skilda að taka efni hjá Jörundi. Ef menn hafa eitthvað timbur í garðinum þá er sjálfsagt að taka það með. Nokkrir ætla að gista þannig að þetta verður bara gaman.
    Minni aftur á stað og tíma. Timbur hjá Jörundi í Tætingu, kl. 09:00, brottför áætluð kl. 10:00.

    kv,

    Formaðurinn





    28.12.2007 at 17:12 #607766
    Profile photo of Víðir Lundi
    Víðir Lundi
    Participant
    • Umræður: 37
    • Svör: 325

    já en er einhver skylda að taka brennuefni með???er ekki alveg í góðu að renna með bara ef manni langar í jeppa ferð???

    Víðir L

    Gambri4x4





    28.12.2007 at 17:56 #607768
    Profile photo of Stefán Höskuldsson
    Stefán Höskuldsson
    Participant
    • Umræður: 63
    • Svör: 530

    Víðir, ég skil formanninn þannig að það sé, og reyndar veit, að það er ekki skylda að koma með brennuefni og öllum sé velkomið að renna með, en áttu ekki smá fjöl í garðinum svona til að sýnast!! Kv Stefán
    p.s. þar sem margar spýtur koma saman er gott bál!!!





    28.12.2007 at 20:51 #607770
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Ég kem með 2 pappakassa (brúna)





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 28 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.