FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

breiting á patrol 93 árg

by Snorri Einarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › breiting á patrol 93 árg

This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Jón Garðar Helgason Jón Garðar Helgason 16 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 17.10.2008 at 19:54 #203078
    Profile photo of Snorri Einarsson
    Snorri Einarsson
    Member

    sælir félagar þarf að fá smá ráð er að fara að breita pattanum mínum á 38″ hann er á 33″ hvað þarf ég að gera? og er erfitt að skera úr? á kantana en hvernig veit ég hvað á að skera mikið úr?

  • Creator
    Topic
Viewing 1 replies (of 1 total)
  • Author
    Replies
  • 18.10.2008 at 12:46 #631282
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Patrolinn minn er þannig breyttur að það er búið að setja einhverja landcruisergorma undir hann að framan og 10cm klossa að aftan. Stýfufestingarnar að framan voru síkkaðar um einhverja cm og balancestangarendarnir lengdir um það sem nemur hækkuninni. Eitthvað þarf að eiga við hleðslujafnarann til að hann virki rétt og annaðhvort færa demparafestingarnar eða sjóða stubba á demparana til að þeir höndli hækkunina.

    Það þarf að færa samsláttinn til að hann geir gagn á móti dekkjastærðinni.

    Þessi hækkun er tæplega nóg. Hún dugar fínt í allan venjulegan akstur og bíllinn er góður og þægilegur fjölskyldubíll jafnvel í kaupfélagssnattið en það vantar enn pínulítið uppá að maður geti tekið almennilega á honum í aksjón á fjöllum. hugsanlega leysi ég það einhverntíma með svolítilli bodýhækkun, tommu eða tvær.

    Þegar þú klippir úr áttu að vita að það er engin eftirsjá í brettunum sem á annað borð fara undir kantinn. Þeim meira sem þú fjarlægir þeim mun betra. Eitthvað þarf sjálfsagt að eiga við hvalbakinn og eða sílsinn og það þarf að vanda sig í frágangi á því. Mundu bara að víkka ca eina tommu til viðbótar við það sem dekkið nær því að þú bætir einhverri klæðningu og hugsanlega drullusokk við og síðan er ótrúlegt hvað hjólasellið gengur mikið til í átökum.

    Kv Jónsi





  • Author
    Replies
Viewing 1 replies (of 1 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.