FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Blazer afturhásing

by Hafliði Jónsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Blazer afturhásing

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson Jón Hörður Guðjónsson 20 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 24.01.2005 at 23:36 #195338
    Profile photo of Hafliði Jónsson
    Hafliði Jónsson
    Participant

    Sælir spekingar. (afsakið ef að ykkur finnst þetta kannski frekar eiga heima í auglýsingum)

    Pabbi er svo óheppinn að eiga bíl með amerískri afturhásingu. Og núna er brotið í henni drifið….

    Okkur skilst að hún sé undan gömlum stórum blazer jeppa. Á henni er spjald sem stendur á 41-11. (hvað þýðir það)

    Ef að einhver lumar á svona hásingu eða getur sagt okkur hvar er best að leita að dóti í þetta væri gott að fá einhverjar vísbendingar.

    Það kæmi jafnvel til greina að kaupa svona hásingu með læsingu…

    Kv. Haffi

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 24.01.2005 at 23:59 #514622
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Líklegt er að 41-11 þýði að það séu 41 tönn á kambi og 11 tennur á pinjón sem gerir 3.73 hlutfall. Þetta eru orginal hlutföllin í mínum bíl, ég á bæði dana 30 og dana 35 drif með þessum hlutföllum.

    -Einar





    25.01.2005 at 00:22 #514624
    Profile photo of Hrolfur Árni Borgarsson
    Hrolfur Árni Borgarsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 878

    Gamli maðurinn er nú frekar lánsamur með hásingu en ég veit ekki með bílinn (hvað er það annars?)
    Algengar GM hásingar undir jeppum eru 10,12 og 14 bolta og þekkjast með því að telja boltana sem halda lokinu á drifinu.
    14 bolta er til full floating og semi floating.
    Allt nokkuð góðir gripir.
    Kveðja jeepcj7





    25.01.2005 at 00:32 #514626
    Profile photo of Hafliði Jónsson
    Hafliði Jónsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 410

    Hásingin góða er undir Benz 309 húsbíl!

    Hún var víst mixuð undir hann til að fá hærra drifhlutfall en boðið var uppá í benz hásinguna.

    Þegar drifið brotnaði var orginal benz hásing sett undir aftur og bíllinn er allur hinn verri. Þannig að nú er ætlunin að gera blazerinn upp og koma honum undir aftur.

    Bíllinn var notaður heillengi eftir að það fóru að koma smellir í drifið og þessvegna skilst mér að hún hafi litið frekar illa út að innan…

    Þannig að ef að ég tel boltana sem halda lokinu á hásingunni þá vita allir dellukallar hvað ég er að tala um og mér ætti að ganga vel að finna í þetta varahluti eða aðra notaða hásingu?

    Kv. Haffi





    25.01.2005 at 09:31 #514628
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Þú ættir að spjalla við hann Óðinn, s. 820-8240, hann á örugglega eitthvað dót handa ykkur á góðu verði.

    Þú getur talið boltana og komist að því hvaða hásing þetta er, en þær eru mismunandi sterkar. 10 bolti (stærri) er eilítið veikari en 12 bolti. Legan við pinjóninn er veikleiki í 12 boltanum (þ.e. 12 bolta jeppahásingunni, 12 bolta fólksbílahásingin er sterkari).

    Ef ég væri þú þá myndi ég nota tækifærið og reyna að redda mér 14 bolta fljótandi, hásingar gerast ekki mikið sterkari.

    JHG





    25.01.2005 at 12:29 #514630
    Profile photo of Hafliði Jónsson
    Hafliði Jónsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 410

    Takk fyrir þetta, við skoðum þessa hásingu aðeins betur. Teljum bolta o.s.fr. Og svo hringi ég kannski í Óðinn.

    En við viljum ekki skipta um hásingu þarsem að á þessa er búið að smíða breikkanir o.fl. þannig að hún passi undir bensann þannig að við viljum bara fá eins.

    kv. Haffi





    25.01.2005 at 16:05 #514632
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    10, 12, og 14 bolta hásingar fást allar jafn breiðar. Þú þarft því lítið annað að gera en að skrúfa. Það er möguleiki að þú þyrftir að breyta drifskafti og örugglega þarft þú að fá annan hjöruliðskross.

    Sannfærðu karlinn um að fá sér 14 bolta fljótandi, þá þarf hann aldrei að hafa áhyggjur af þessu meir :)

    JHG





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.