FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Bingóferð, fréttir?

by Hörður Bjarnason

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Bingóferð, fréttir?

This topic contains 9 replies, has 8 voices, and was last updated by Profile photo of Sverrir Kr. Bjarnason Sverrir Kr. Bjarnason 11 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 22.02.2014 at 12:09 #452789
    Profile photo of Hörður Bjarnason
    Hörður Bjarnason
    Participant

    Eru einhverjar fréttir af bingóförum?

  • Creator
    Topic
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)
  • Author
    Replies
  • 22.02.2014 at 14:58 #452794
    Profile photo of Jón Ólafsson
    Jón Ólafsson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 32

    Ferðin gekk vel í gærkvöldi, bæði Kerlingafjalla megin og Sóleyjarvað. Frekar lítill snjór, vindbarðir skaflar og hálka. Fórum smá rúnt í morgun. Bingóið byrjar 15:30.
    Blíðuveður smá norðan gola.

    Viðhengi:
    1. IMG_1825.jpg
    2. IMG_1833.jpg
    3. IMG_1835.jpg
    4. IMG_1837.jpg
    5. IMG_1838.jpg




    24.02.2014 at 09:17 #452821
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Frábær ferð í alla staði með frábærum ferðafélögum.





    24.02.2014 at 10:31 #452822
    Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson
    Sveinbjörn Halldórsson
    Keymaster
    • Umræður: 87
    • Svör: 859

    Sæl.
    Þetta var ein skemmtilegasta ferð sem ég hef farið, ferðafélagarnir allir frábærir. Allt tókst eins og best verður á kosið og ekkert sem skyggði á gleðina. Maturinn var frábær og eiga þeir Logi og Rúnar heiður skilið fyrir þeirra framlag. Grillunin gekk vel þrátt fyrri norðangarra sem reyndi allt sem hann gat til að tefja fyrri. Ég óska öllum vinningshöfum til hamingju með vinningana og fyrirtækjunum sem gáfu vinningana (Verkfærasalan, Bílanaust, Bílabúð Benna, Ölgerðin, A-4, Safalinn, Landsbanki Íslands og Paulsen) ber sérstaklega að þakka, vinningarnir voru glæsilegir.
    Enn og aftur Takk fyrir mig.
    Kveðja
    Sveinbjörn Halldórsson.





    24.02.2014 at 11:15 #452824
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Vildi koma á framfæri þakklæti fyrir frábæra Bingo ferð. Einar Sól fær sérstakar kveðjur, en hans var sárt saknað. Þið sem stóðuð að matargerð og undirspili á kvöldvöku gerðuð þessa ferð einstaka og eftirminnilega. Það greinilegt að skálanefnd hefur unnið kraftaverk í Setrinu og óvíða sem er að finna jafn vandaðan og flottan fjallaskála. Vinnan sem skálanefnd lagði af mörkum um helgina var mikil og þið eigið mikinn heiður skilið fyrir ykkar framlag, bæði við skálann í gegnum árin og sem gestgjafar um helgina. Takk fyrir mig :)





    24.02.2014 at 11:35 #452825
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Hjartanlega sammála síðustu ræðumönnum. Myndir koma fljótlega úr ferðinni og auðvitað á vefsíðunna okkar. :)





    24.02.2014 at 11:40 #452826
    Profile photo of Halldór Freyr Sveinbjörnsson
    Halldór Freyr Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 62

    Hér er eitt frægt atriði úr ferðinni. Reyndar náði ég því ekki alveg nógu vel því ég var að reyna að forða mér frá í leiðinni.

    Viðhengi:
    1. patrol-1.wmv
    2. patrol-11.wmv




    24.02.2014 at 12:39 #452829
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Það er nú ekki oft sem Patrol-ar eiga ógleymanlegust augnablikin , He He He

    En hérna er mynd af skemmdunum eftir annað ógleymanlegt atvik, þegar við feðgar fengum prjónandi Willys aftan á okkur í Kerlingarfjöllum .

    Viðhengi:
    1. IMG_1358.jpg




    24.02.2014 at 14:43 #452950
    Profile photo of Jón Ólafsson
    Jón Ólafsson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 32

    Logi og Rúnar í skálanefnd nýttu tækifærið þrátt fyrir norðan 20 m/sek og -7°, fóru uppá þak á nýju skemmunni og skrúfuðu hatt á loftræstinguna. Einstakt að sjá samvinnuna, annar hélt hattinum í rokinu með skrúfurnar í munnvikuna, meðan hinn týndi skrúfurnar útúr félaga sínum og skrúfaði hattinn fastann.

    Viðhengi:
    1. IMG_1828.jpg
    2. IMG_1830.jpg




    25.02.2014 at 21:36 #453107
    Profile photo of Sverrir Kr. Bjarnason
    Sverrir Kr. Bjarnason
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 172

    Ég vil þakka formanninum og skálanefndarmönnum öllum fyrir góða og skemmtilega helgi. Maturinn var afar góður og vel framreiddur og allt meðlæti, þurrt og vott til fyrirmyndar.
    Bingó-fordrykkurinn smakkaðist virkilega vel. Söngurinn og gítarleikurinn um kvöldið setti punktinn aftan við afbrags helgi með góðum félögum. Kærar þakkir.





  • Author
    Replies
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.