FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Biluð bíldrusla

by Heiðar Gunnarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Biluð bíldrusla

This topic contains 8 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Stefán Dal Stefán Dal 16 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 20.03.2009 at 18:39 #204072
    Profile photo of Heiðar Gunnarsson
    Heiðar Gunnarsson
    Participant

    Ég varð fyrir þeirri „skemmtilegu“ lífsreynslu í dag að renault beyglan mín hrækti úr sér kerti með gengjum og öllu held ég. Er einhver snillingur sem veit hvað er hægt að gera í þessu helst fyrir lítinn aur??

  • Creator
    Topic
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)
  • Author
    Replies
  • 20.03.2009 at 19:32 #644022
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Það fæst örugglega kitt í þetta….Snittappi og nokkurskonar gormur / insert sem skrúfað er í. Aðal málið er að reyna að framkvæma aðgerðina án þess að skilja mikið af álsvarfi eftir inni í brunahólfinu. Gerði þetta á Subaru fyrir mörgum árum án þess að taka heddið af og virkaði bara vel.
    Ef einhver lumar á góðu trixi til að grípa svarfið þá væri ekki galið að pósta því hér, mig minnir samt að ég hafi látið vélina standa með annan ventilinn opinn og ryksugað á fullu á meðan snittað var, upp með snittappanum.

    mín 2 cent

    kv
    Grímur





    20.03.2009 at 19:54 #644024
    Profile photo of Heiðar Gunnarsson
    Heiðar Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 3
    • Svör: 8

    Takk fyrir svarið, núna veit ég að þetta er ekki alveg vonlaust.





    20.03.2009 at 19:56 #644026
    Profile photo of Jóhann Davíð Barðarson
    Jóhann Davíð Barðarson
    Member
    • Umræður: 27
    • Svör: 154

    Virkar mjög vel að maka vel af koppafeiti á borinn og snitttappann, og hreinsa það reglulega og setja nýja feiti.
    Það ætti að grípa svarfið.





    20.03.2009 at 20:43 #644028
    Profile photo of Ólafur Ragnarsson
    Ólafur Ragnarsson
    Member
    • Umræður: 46
    • Svör: 216

    þetta heitir helicole minnir mig sem er notað til að búa til nýjar gengjur. Mikið notað í skipavélaviðgerðum, og fæst minnir mig í fossberg og reyndar víða annars staðar.

    Tel rétt að nefna að þegar búið er að setja þessar gengjur í, þá er alveg hægt að skrúfa kertið úr og í aftur og aftur án þess að þetta skemmist.
    en aldrei skal fara með snitttappa á helikol gengjur eftir að þær eru komnar í. hætt við því að draga allt draslið út aftur

    kveðja Ólafur





    20.03.2009 at 21:41 #644030
    Profile photo of Ari Þráinsson
    Ari Þráinsson
    Participant
    • Umræður: 3
    • Svör: 338

    var til kerta viðgerðar sett í gamla Bilanaust var bara skrúfað í gamla gatið sem var skemmt og sett kerti með minni legg í gatið virkaði vel í skellinöðrur





    20.03.2009 at 23:20 #644032
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 236

    Mér hefur oft fundist best að leita í smiðju Leó M en ég get bent þér t.d. á fara á google og leita eftir: kertagengjur leoemm:

    Til að stytta og með tilvísun í leoemm.com þá kemur þetta fram:

    Skemmist gengjurnar getur þú átt 3ja kosta völ (eftir því hve heppnin er mikil): Í fyrsta lagi: Gengjurnar aflagast: Sérstakur snitttappi er til fyrir kertagengjur. Í öðru lagi: Gengjurnar ónýtar: Innsetningargengjusett er til í stærri bílabúðum með snitttappa og ísetningargengjum (Helicoil). Í þriðja lagi: Meiri kemmdir: Taka þarf heddið af og fara með á vélaverkstæði.

    Kv. Sigurður

    P.s. Ef þú notar snitttappa þá þarf að passa það hann snúi upp þ.e. að svarfið leiti upp en ekki niður en slíkan tappa er t.d. hægt að fá hjá Isol





    21.03.2009 at 10:34 #644034
    Profile photo of Heiðar Gunnarsson
    Heiðar Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 3
    • Svör: 8

    Ég þakka öll góðu ráðin. Ég er að vona að þetta verði ekki of mikið vesen. Það er greinilegt að maður á góða að í þessu klúbb :)

    Kv. Heiðar





    21.03.2009 at 16:32 #644036
    Profile photo of Stefán Dal
    Stefán Dal
    Member
    • Umræður: 21
    • Svör: 425

    Ég lenti í því að skemma skrúfgang fyrir kerti í Hilux. Ég snittaði bara og startaði svo smá með ekkert kerti í. Það ætti að blása megninu upp.

    .

    Það er hinsvegar ekkert að marka, Hilux gengur nátturulega á öllu, þar á meðal svarfi.





  • Author
    Replies
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.