FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Bilting

by Kristmann Hjálmarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Umhverfismál › Bilting

This topic contains 22 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Logi Már Einarsson Logi Már Einarsson 17 years, 9 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 15.08.2007 at 11:55 #200646
    Profile photo of Kristmann Hjálmarsson
    Kristmann Hjálmarsson
    Member

    Sælir kauðar.
    Var að tala við mann sem er að hefja innflutning á biltingakendum búnaði hvað varðar eldsneitisnotkun og útblástur bíla.
    Þetta er tvennskonar búnaður, búnaður1 og búnaður2 og er eingöngu búnaður1 í boði fram að áramótum en þá kemur búnaður 2.

    Búnaður1 virkar þannig að í húddið er settur búnaður sem er tengdur rafgeimi og í vatnshólf er sett vatn og ákveðið efni. Síðan framleiðir þessi búnaðu einhverskonar vetnisgas sem er dælt inn á soggrein bílsins fyrir framan síu.
    Þessi búnaður virkar best í 4strokka bíl en eithvað verr í 8strokka en er að gefa uþb. 50% bensín sparnað og einhverja aflaukningu.

    Búnaður2, er hvarfakútur sem settur er í stað gamla hvarfakútsins sem í bílnum er, og einnig sett sérstak efni í bensíntank ásamt bensíni/dísel.
    þegar útblástur kemur inn í hvarfakútinn breytir hann útmblæstrinum í plasma (frumefni sín) og dælir þeim aftur inn á eldsneitiskerfi bílsins.
    Þetta var prófað á 8strokka bensín bíl og komst hann 9falda þá vegalengd á bensíntanknum á við það sem hann fór án búnaðar en er þó gefið upp 3-5sinnum meiri nýtni með búnaðinn.
    Og til að toppa það allt þá verður útblástur bílsinns 100% hreint loft.
    Allar upl. um þetta er að finna á http://www.ges.is
    og vil ég benda á að ég er ekki hagsmunaraðili heldu eingöngu að benda á ótrúlega biltingakendann búnað ef hann virkar sem skyldi.

    Kveðja Kristmann

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 22 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 15.08.2007 at 12:29 #594634
    Profile photo of Bjarni Gunnarsson
    Bjarni Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 1462

    Ég á líka brúsa af snákaolíu sem ég get selt þér…
    Þetta hljómar of gott til að vera satt og í flestum tilfellum er það raunin, en ef þetta virkar þá verð ég víst að éta hattinn minn.
    –
    Bjarni G.





    15.08.2007 at 13:33 #594636
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Ekki er alveg samræmi í upplýsingum um þennan PICC hvarfakút sem á að gefa 9-falda (*) vegalengdina sem þú ferð á hverjum lítra. [b:2upccyjb][u:2upccyjb][url=http://befreetech.com/xcart/product.php?productid=16176&partner=mmhi:2upccyjb]Hér[/url:2upccyjb][/u:2upccyjb][/b:2upccyjb] stendur að hann verði ekki fáanlegur fyrr en 2008, það er ennþá verið að hanna hann. Á íslensku síðunni er síðan talað um að það taki svo langan tíma að smíða hvern og einn…

    -haffi

    (*) Íslenska siðan talar um 5 faldan nýtingu, en enska síðan 9 falda. hummmmmmm





    15.08.2007 at 13:33 #594638
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Hmmmmm, 100% hreint loft í útblæstri, ef þetta er sannleikanum samkvæmt þá held ég nú að þetta hlyti að hafa ratað á forsíðu Moggans eða sem fyrsta frétt í sjónkanum því með þessu væru menn víst að leysa svona nokkurnveginn öll heimsins vandamál.





    15.08.2007 at 14:07 #594640
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta er gömul tækni, þú kaupir bara spliff, donk og gengur, hellir spliffinu á tankinn og tengir donkið við olíuverkið og svo þarftu bara að passa upp á að tæma eldsneytistankinn á 500 km fresti.

    Það er örugglega ýmislegt hægt að gera til að bæta eldsneytisnýtingu og minnka mengun, en maður er allavega orðinn orðinn mjög tortrygginn á svona undralausnir, hvað þá að útblástur verði 100% hreinn. Ef það er bruni á annað borð hlýtur honum að fylgja kolefnismengun. Ég er álíka tortrygginn á þetta eins og að kolefnismengun sé hægt að leysa með einhverri skógræktarjöfnun.

    Kv – Skúli





    15.08.2007 at 14:12 #594642
    Profile photo of Kristmann Hjálmarsson
    Kristmann Hjálmarsson
    Member
    • Umræður: 12
    • Svör: 96

    Það er svo sem skyljanlegt að menn séu með evasemdir því þetta er jú allt of gott til að vera satt, en ég sel þetta ekki dýrara en ég keifti það.

    Nánar tiltekið þá er þessi einstaklingur sem ég talaði við fyrrum kennari minn og er tæknifræðingur að mennt. Hann talaði einmitt um 9faldann sparnað með hvarvanum þó það standi 3-5 sinnum á síðunni hjá þeim.
    hann fór á sýningu á þessum búnaði og segist fullviss um að þetta virkar.
    Eins og ég talaði um er ekki hægt að fá hvarvann fyr en eftir áramót aða á árinu 2008.(hóst)
    En hinsvegar bjóða þeir 30daga skilafrest ef menn eru ekki sáttir þannig að þeir hljóta að hafa fulla trú á þessu.





    15.08.2007 at 14:46 #594644
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Hljómar nú bara eins og gas-injection, sem sumir hér hafa nú prófað, nema þetta virðist eiga að framleiða gasið einnig (eða vetnið).

    En sparnaðurinn er náttúrulega óumdeilanlegur, þar sem bíllinn verður með þessu twinn-bíll og fær því ókeypis í bílastæði borgarinnar.

    Annars var grein í mogganum um daginn frá einhverjum þar sem viðkomandi var að fíflast með að mixa svona heimatilbúið vetnis-unit í bíl til að fá frítt í bílastæðin.

    kv
    R.





    15.08.2007 at 14:48 #594646
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Fær maður frí stæði ef maður er með náttúrulega metan framleiðslu í bílnum?

    -haffi





    15.08.2007 at 15:19 #594648
    Profile photo of Bjarni Gunnarsson
    Bjarni Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 1462

    Já næsta bylting í þessum málum verður að selja sérhönnuð sæti í bíla til að virkja þessa "náttúrulegu metan framleiðslu". Með í kaupunum fylgir tunna af rúsínum og bretti af rúgbrauði…
    –
    Bjarni G.





    15.08.2007 at 16:22 #594650
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Þessi síðasta færsla er alveg óborganlega fyndin, sé fyrir mér menn japla rúgbrauð og rúsínur landshornanna á milli hahahahahah





    15.08.2007 at 19:14 #594652
    Profile photo of Þórarinn Magnússon
    Þórarinn Magnússon
    Member
    • Umræður: 7
    • Svör: 52

    Nú er spurt hvað kostar svo þessi töfra blanda sem maður þarf að bætta út í????
    Er að keyra um á 8 cylindra bíll og væri alveg til í að láta hann eyða 10 l á hundraðið , en reynslan segir að þessar töfra lausnir eru oftast bara tíma og peninga eyðsla ofan á 20 l sem maður er með fyrir .
    Langar að skoða þetta nánar en er ekki til í að eyða 135.000 krónum . Er allavega ekki svo forvitinn.
    En ef einhver er með svona búnað væri ég til í að fá að skoða hann og fá að heyra hvort þetta er að virka.
    Aftur á móti ef þetta er ekki að virka þá efast maður um að einhver fari að segja frá því að hann hafi látið plata út úr sér 135 þúsund kall.
    En ef þetta er satt þá ætti maður að heyra frá einhverjum um leið og þetta er sannað.

    Vona svo innilega að þetta virki svo að maður geti bara sullað úr öllum hálf tómu flöskunum sem eru í bílnum og smá tómat sinnep remó og skotist hringinn á tanknum.





    15.08.2007 at 19:58 #594654
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Mæli með að sá sem stendur fyrir þessu fái einhver verðlaun. Veit bara ekki alveg hvaða verðlaun.

    Góðar stundir





    15.08.2007 at 21:53 #594656
    Profile photo of Kristmann Hjálmarsson
    Kristmann Hjálmarsson
    Member
    • Umræður: 12
    • Svör: 96

    Ég væri búinn að prófa þetta sjálfur ef ég væri ekki að reyna að selja bílinn minn eins og er.
    En ef þið takið eftir áður en þið gagnrýnið, þá lofa þeir 30 daga skilafrest með fullri endurgreiðslu ef búnaðurinn er ekki að vira sem skyldi.

    Þannið að það KOSTAR EKKERT AÐ PRÓFA

    Kveðja Kristmann.





    15.08.2007 at 22:30 #594658
    Profile photo of Baldvin
    Baldvin
    Participant
    • Umræður: 45
    • Svör: 524

    Er ekki betra að hlusta svona hæfilega á fréttir sem slíkar? Kennarinn þinn fyrrum er eflaust fínn í eðlisfræði kennslu í barnaskóla en boy o boy.

    Það er ENGIN vafi á því að ef að rétt reyndist væri þetta forsíðufrétt ALLRA miðla. Allra miðla.

    Ekki eitthvað sem læðist manna á millum á spjallþráðum.

    En kannski er lógísk skýring og þess vegna þora þeir að bjóða fulla endurgreiðslu. Títt nefnt megrunarduft t.d. virkar afar vel ef þú fylgir leiðbeiningum 100%. Borðar bara nánast alls ekkert og færð þér svo megrunar shake 2x á dag. Alls um 600 kaloríur í heildarnæringu dagsins.

    Kannski er þetta svipað, bíllinn fær lítið af eldsneyti af því að það er fullt af einhverju stöffi að þvælast fyrir á leiðinni. En þá eiga þeir þó eftir að sýna fram á þessa afl aukningu :)

    Kristmann, ekkert persónulegt. Finnst þetta bara allt hið undur-fyndnasta mál

    Kv. Baddi "yfirleitt auðtrúa" blái.





    15.08.2007 at 22:59 #594660
    Profile photo of Pétur Friðrik Þórðarson
    Pétur Friðrik Þórðarson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 311

    Margt má læra af spjallinu hjá 4×4. En nú þykir mér kenningin vera heldur ótrúleg. Gott ef sönn reynist.
    Eitt er ekki hægt að læra af vefsíðu klúbbsins. Þar á ég við íslenska stafsetningu. Hana mættu menn vanda og leita þá jafnfvel til barnakennara til að fá leiðsögn um y og -n eða -nn osfrv.
    Kv. Pétur á kommanum





    16.08.2007 at 11:27 #594662
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Var að horfa á myndbandið sem fylgir þessu, liðlega 20 mín. fyrirlestur. Þarna sést hvernig einhverjir gaurar hella gosdrykkjum, tómatsósu, rakspíra og einhverju fleiru ótrúlegu á tankinn og fá vélina til að ganga á þessari göróttu blöndu. Það skyldi þó aldrei vera að gamall draumur um að maður geti migið á tankinn sé um það bil að rætast, sé það þó skapa augljóst vandamál fyrir konurnar. En það má kannski sjá viðskiftatækifæri í því fyrir hugmyndaríkan einstakling. Kveðjur, L.





    16.08.2007 at 11:58 #594664
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Tómatsósa og gosdrykkir, maður er alltaf að verða meira og meira sannfærður …
    -haffi





    16.08.2007 at 14:18 #594666
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þar sem ég hef takmarkað vit á svona fræði, hafði ég samband við konu sem ég þekki hjá Orkusetrinu, og bað hana um álit.

    Hæ Hlynur,

    ég man ekki innskráninguna mína, en ég skrifaði á mettíma stutta
    athugasemd um byltinguna ykkar. Þú mátt alveg birta hana á spjallsíðunni
    ef þú vilt vera svo vænn:

    Komið þið sæl 4×4.

    Nokkur orð um http://www.ges.is. Á síðunni stendur:

    " Í dag nýtir bíllinn þinn 13% -23% af eldsneytinu sem hann notar, restin
    fer í útblástur gróðurhúsalofttegunda sem og óhreinkar vélina."

    Þetta er mjög villandi, ef ekki rangt. Hið rétta er, að bíllinn brennir
    nær öllu (ca. 99%) eldsneytinu (eldsneyti sem brennur ekki skilar sér sem
    sótagnir, það er rétt!), en einungis um 20% efnaorkunnar sem er í
    eldsneytinu skilar sér sem vélræn orka til hjóla. Þar spila inn bæði
    verkfræðileg atriði (þú getur fengið nýtnari vél ef þú ert tilbúinn að
    fórna afli osfrv.) og eðlisfræðileg (svo sem 2. lögmál varmafræðinar, sem
    setur hámark á það hversu mikla nýtni er hægt að fá úr varmavélum eins og
    bílvélum).

    Einnig er talað um plasma sem "grunnfrumeindir". Það er ekki rétt heldur.
    Plasma eða rafgas (íslenska orðið) er gas þar sem frumeindirnar eru
    fulljónaðar. Þetta þýðir að búið er að rífa allar rafeindirnar frá kjarna
    atómanna. Það kostar mikla orku að búa til rafgas, og ég sé satt að segja
    ekki í fljótu bragði hver ávinningurinn af því ætti að vera.. Þú getur
    rofið efnatengi bensínsins og fengið vetni og kolefni (sem er þá bara
    vetni og kolefni, ekkert rafgas!). Bensín og allar olíuafurðir eru keðjur
    kolefnisatóma með vetnisatómum með. Þú gerir slíkt – að rjúfa efnatengi –
    m.a. með bruna, og við það losnar varmi. Þetta er grunnhugmyndin að baki
    varmavélinni (t.d. bensínvél) svo aftur sé ég ekki alveg tilganginn í því
    að gera þetta "pre-ignition" eins og orðað er á vefsíðunni.

    Ég er ekki búin að skoða þetta nákvæmlega, en af því sem ég hef séð, þá
    eru litlar sem engar nákvæmar tæknilegar upplýsingar gefnar, en orðum eins
    og "vetni", "plasma", "rafhlöðum", "grunnfrumeindir" og fleiri í þeim dúr
    er dreift um textann, sem aðallega lýtur að því að reikna út hver
    sparnaðurinn verður við ísetningu tækisins. Þegar slíkt er gert verð ég
    alltaf mjög tortryggin, enda er það þekkt aðferð til að plata fólk, þ.e.
    að setja inn tækniorðin sem fólk tengir við frekar þekkta umræðu. Þetta
    þarf ekki að þýða að búnaðurinn sé plat, en svona orðanotkun fylgir oft
    plati. Ég myndi ekki borga fyrir þennan búnað sjálf eða ráðleggja neinum
    að gera það.

    Ef ég hef misst af einhverjum tækniatriðum sem skipta máli, eins og ef
    búnaðurinn gerir það að verkum að þú getur stungið bílnum í samband og
    keyrt á hleðslunni, endilega látið mig vita. Ég á líka auðvelt með að
    veita tilsögn í varmafræði fyrir þá sem vilja. 😉

    Já, og það er kominn búnaður sem leyfir konum að pissa standandi (eða á
    tankinn), það er of seint fyrir ykkur að finna það upp! Gjörið svo vel:
    http://www.homeandweb.com/p-mate.htm

    Bestu kveðjur,
    Ágústa
    asl at os.is

    Bestu kveðjur,
    Ágústa Loftsdóttir

    Orkustofnun
    Grensásvegi 9
    108 Reykjavík
    Iceland

    Email: asl@os.is
    Phone: +354 569 6000
    Fax: +354 568 8896
    Web: http://www.os.is

    hlynur@snaeland.is
    15.08.2007 19:53

    To
    asl@os.is
    cc

    Subject
    Bylting :)

    Góðar stundir.





    16.08.2007 at 15:09 #594668
    Profile photo of Hjörtur Már Gestsson
    Hjörtur Már Gestsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 478

    ef þetta er eins mikið bull og manni sýnist hér, þá er erfitt að kalla þetta neitt annað en svik (án þess að vera viss um neitt) er þetta þá ekki ólöglegt?

    geta menn bara sagt það sem þeir vilja til að selja vöru?
    .
    svo er talað um að þetta HAFC dóterí taki vetni úr vatni, eitthvað sem er auðvitað hægt, er bara ferskt í minni að vetnisframleiðsla ER orkufrekasti iðnaður sem fyrirfinnst, þannig jú manni er spurn





    16.08.2007 at 17:00 #594670
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Þetta er kannski mesta bilting sem orðið hefur í bílaiðnaði síðustu 50 árin… en að öllum líkindum er þetta bara bull.. sry.

    En snúum okkur að öðru… hvað er með það að íslendingar þurfa alltaf að borga tvöfalt fyrir allt… þessi "biltinga búnaður" kostar bara 950 dollara úti… tæpan 70 þús kall.. og hérna heima 135 þús… hvaða heilvita maður kaupir þetta bara á netinu og sparar sér nokkra 10 þus kalla… en er auðvitað að henda peningunum hvort eð er…

    hérna er [url=http://store.tesla-in-oz.com/hydroassist-fuel-cell-for-gasoline-powered-vehicles.html:b56vhc26][b:b56vhc26]heimasíðan sem býður þetta á 950$[/b:b56vhc26][/url:b56vhc26]

    kv Gunnar





    16.08.2007 at 17:14 #594672
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    HYDRO-ASSIST FUEL CELL … Increases Mileage 50-100%!
    Þetta slagorð er tekið af 950$ síðunni sem þú vísar í, flott að geta sparað 100% bensín, hmmmm, heitir það ekki að ganga á loftinu einu? L.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 22 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.