Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Bíllinn ekki til sölu.
This topic contains 34 replies, has 1 voice, and was last updated by Björn V. Björnsson 17 years, 5 months ago.
-
CreatorTopic
-
14.11.2006 at 23:05 #198960
Kæru félagar.
Vegna fjölda fyrirspurna er bíllinn minn ekki til sölu. Ég setti inn auglýsingu fyrir nokkru, þar sem ég auglýsti einungis vélina, sjálfskiptinguna, millikasssann og skriðgírinn til sölu. Sem sagt ekki allan bílinn. Ég vil samt sem áður þakka öll þau símtöl sem við feðgar höfum fengið (orðin ansi mörg), en tek það aftur fram að bíllinn er ekki til sölu.
Kv. Villi R-3522 og Halldór R-59
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
14.11.2006 at 23:11 #568010
Minn bíll er heldur ekki til sölu, þó hann standi stundum á bílasölu, bara dekkinn undan honum.
Enn Vilhjálmur viltu kannski skipta?
Lúther
14.11.2006 at 23:15 #568012Sæll Lúther.
Ekki alveg viss með skiptin, ætla fyrst að skipta um í hesthúsinu og auka hestöflin. Síðan ætla ég að njóta þess að keyra hann í nokkur ár. Talaðu við mig eftir svona 7 ár. Þá getum við talað um skipti. hehe.
kv. Villi
14.11.2006 at 23:16 #568014ég kaupi þá bara dekkinn hans Lúters. Minn er ekki heldur til sölu he he
14.11.2006 at 23:22 #568016Vegna fjölda fyrirspurna er Rottugengið ekki til sölu. Og þó svo væri er það á of háu gengi fyrir ykkur. En Flugsveitin fæst víst fyrir lítið þessa daganna, svo menn ættu að slá til, er þeir hafa ekker annað við peningin að gera.
14.11.2006 at 23:27 #568018Ofsi minn ekki svona yfirlýsingar. Ég læt þig hafa dekkinn og yfirtek helming af skuldum Rottugengisins. þá erum við kominn í ca 27 milljónir miða við að dekkinn fari á 80 þúsund.
Flugsveitina vill enginn sjá enda ekkert hægt að gera að viti úr henni.
P.S. Lella gjaldkeri, er möguleiki á að setja eitthvað af hlutabréfum sem við Trúðar eigum í þessa vitleysu?
Lúther
14.11.2006 at 23:37 #568020yfirtaka á lánum, það er ekkert mál. Þetta eru svona létt greiðslur. Og góður gæi hann Tony Montana sem kemur og innheimtir reglulega.
14.11.2006 at 23:45 #568022Vissiða Rottugengið er til sölu.
Menn þurfa að vísu að hafa það í huga að það fylgir lóðaréttindum Rottubælisins að þurfa að smala 2 sinnum á ári og það fótgangandi.
Það er kannski ástæðan fyrir sölunni.LG
15.11.2006 at 01:01 #568024Vilhjálmur !
Hvað ætlar þú að setja undir húddið? rétt að vona þín vegna að það sé ekki eitthvað 6.5L bull eða eitthvað svoleiðis.
15.11.2006 at 10:01 #568026Sæll Benedikt.
Það kemur bara í ljós hvað kemur í húddið, get þó sagt það að það er ekki 6,5L. Þetta er allt á leiðinni til landsins, verður komið eftir 2 vikur eða svo. Við feðgar verðum duglegir að setja myndir af þessu þegar að því kemur.
Kv. Villi
15.11.2006 at 11:00 #568028með því skilyrði að vera sótt. Svona hljómar auglýsingin hjá rottum þessa dagana en flugsveitin er ekki til sölu nema þá helst 2 jeppar í minni eigu, er að fara flytja inn einn ógurlegan sem ekki hefur sést hér á hálendinu. myndir koma eftir 3 mánuði en það er verið að smíða trukkinn úti.
15.11.2006 at 17:45 #568030Er að fara að gera eitthvað rosalegt sem enginn má vita, myndir koma kannski síðar!
PS. ókey get ekki þagað yfir leyndarmáli, er að fara að skipta um hjólkoppa….
15.11.2006 at 18:52 #568032Ég á handa þér nissan 2,8 með TURBÍNU:O)
15.11.2006 at 20:16 #568034Hann dugar nú varla sem rúðuþurkumótor…
15.11.2006 at 20:43 #568036Villi minn.
Hættu nú þessu bulli og segðu okkur frá því sem í vændum er. þú veist að menn hafa farið á taugum yfir svona. Jeppa menn eru alment roselegir töffarar í sér en hafa mjög viðkvæm hjörtu sem þola öllu venjulega ekki svona óvissuálag.
15.11.2006 at 20:47 #568038þegar menn breyta Toyotu almennilega, eins og þessi vel breytti bíll er, þá sjá menn greinilega ljósið og að Toyotu kramið höndlar ekki alla hamingjuna.
Til lukku með nýju relluna LOL
15.11.2006 at 22:09 #568040Út með sprokið!!!!
15.11.2006 at 22:49 #568042ja sjáið þið bara hann Ofsa hann er búin að átta sig á þessu. Enda er hann Ofsalega hamingjusamur með vél úr Trooper.
.
Næst verður boddyið látið fjúka fyrir alvöru body.
Svo höndlar grindin ekki nýja bodyið…
þá þarf nýja grind…..Ég er að segja ykkur það
þetta endar í 54" Ford 450.
Ég samhryggist ykkur feðgum ennþá fyrir að hafa ekki átt
efni á að mála bílinn í einum lit.
Ég á eflaust nokkra brúsa sem ég get gefið í næsta verkefni
ef það vantar viðbótarmálningu.
15.11.2006 at 23:04 #568044Sælir
Í sambandi við litinn og vöntun á málningu þá var þetta bara þannig að við fundum nokkra spreybrúsa í skúrnum og ákváðum að nýta það sem til var
Jólasveinninn kemur snemma í ár og því verður jólagjöfin opnuð snemma. Það sem kemur í húddið er bensínvél, réttara sagt verður það Chevy 502, Ram Jet. Skilar um 502 hp og ca. 570 ft-lb í togi.
Skiptingin verður Chevy 4L80E sem búið er að lækka fyrsta gír.
Millikassi verður Atlast 4speed kassi. Sem er með lægsta hlutfall 10,34.Þetta er því niðurstaðan og forvitnir einstaklingar geta því andað léttar.
Kv. Villi og Halldór
15.11.2006 at 23:49 #568046Nú fara olíufélögin að sleikjaútum,þegar Villi fer að taka áþví.
16.11.2006 at 01:13 #568048"Ég samhryggist ykkur feðgum ennþá fyrir að hafa ekki átt efni á að mála bílinn í einum lit."
Svona, svona, enga öfund. Þótt ég sé almennt t.d. ekki par ánægður með sumar af þeim breytingum sem feðgar gerðu þá bara kemur það málinu ekkert við. Þetta var þeirra ákvörðun og þeir eru ánægðir og það er það sem skiptir máli. Með vélaraflið þá má geta þess að LC80 24v getur mjög auðveldlega skilað góðu togi (550-650Nm) og hafi vélin ekki verið að virka hjá þeim feðgum (sem er reindar eldri 12v motor) þá er þetta þannig að t.d. hef ég ekið nokkuð mörgum LC80, sumir hafa virkað sæmilega og sumir bara virkuðu ekki rassgat. Það er ekki nóg að breikka einhver rör og hitt og þetta. Það sem virðist vera lykilatriði í þessum mótorum er olíuverkið, ekki hversu mikið er búið að skrúfa það upp heldur almennt ástand á því. Það er til dæmis hægt að fá miklu meira tog neðst niðri (400-800rpm) ef menn vilja það. En þetta eru endalausar pælingar fram og til baka og aðalatriðið er, held ég, að menn séu ánægðir og sáttir með sína bíla, skítt hvað öðrum finnst.
hér smá uppl um LC80 24v motor og takið eftir að togið með standard vél með Intercoler er 471Nm!
[img:15zp7aon]http://www.airpowersystems.com.au/safari/turbo/1hdft/torque.jpg[/img:15zp7aon]
Verðum við svo ekki að hafa Patrol 4.2 lítra með
http://www.airpowersystems.com.au/safar … ooler.html [img:15zp7aon]http://www.airpowersystems.com.au/safari/turbo/td42_gq/torque.gif[/img:15zp7aon]
http://www.airpowersystems.com.au/safar … torque.gif
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.