FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Bílar og sport

by Lúther Gestsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Klúbburinn › Bílar og sport

This topic contains 47 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Hafþór Atli Hallmundsson Hafþór Atli Hallmundsson 18 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 09.06.2006 at 01:17 #198066
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member

    Ég vill minna félagsmenn og aðra bílaáhugamenn á sýninguna í höllinni nú um helgina, ég hef aðeins verið í höllinni við vinnuna við uppsetningu 4×4 básins og þvílikt og annað eins. Þegar maður gengur hring um svæðið sést að þetta er örugglega ein sú alflottasta bíla og vélasport sýning sem upp hefur verið sett.

    Hrikaleg tryllitæki um öll gólf, þyrlur, bátar, flugvélar, mótorhjól, vélsleðar, risa jeppar með ofur vélar, allt það nýjasta í hljómflutning, og alveg ógeðslega mikið af dóti sem ég hélt að væri ekki til.

    það sést alveg langar leiðir að aðstandendur sýningarinnar hafa ákveðið fyrir löngu að gera þetta það flottasta sem sést hefur lengi.

    ÉG HELD AÐ ÞAÐ TAKIST.

    Sjáumst í höllinni.

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 41 through 47 (of 47 total)
← 1 2 3
  • Author
    Replies
  • 23.06.2006 at 00:59 #554270
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    Hverjir muna eftir þessu, þetta var gert með stæl.

    https://old.f4x4.is/new/photoalbum/?file=oldsite/252





    23.06.2006 at 15:12 #554272
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    mér fannst einsog þetta hefði verið í gær, en 2001.
    Þetta var skemmtilegt en fjandi mikil vinna við nánast bjuggum þarna í 5 daga. En skemmtilegast var þó að koma Bronkonum hans Fjalla upp í stúku.





    23.06.2006 at 18:08 #554274
    Profile photo of Ásgeir Bjarnason
    Ásgeir Bjarnason
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 340

    Sælir.
    Hvernig kom klúbburinn fjárhagslega út úr þessari sýningu? Er eitthvað því til fyrirstöðu að gera svona flotta sýningu aftur ef nægir sjálfboðaliðar finnast?

    Kveðja
    Ásgeir





    23.06.2006 at 20:07 #554276
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Miðað við það hvað gekk illa að manna básinn í sýningunni hjá Bílum og Sport og eitthvað hefur maður orðið var við að ekki gangi of vel að manna á torfærunni á morgunn á held ég að það gengi mjög illa að manna svona stóra sýningu.
    Kveðja Lella Svartsýna





    24.06.2006 at 12:46 #554278
    Profile photo of Hafþór Atli Hallmundsson
    Hafþór Atli Hallmundsson
    Participant
    • Umræður: 24
    • Svör: 810

    Það verður bara að byrja miklu fyrr að óska eftir fólki í svona undirbúningsvinnu eins og var í kringum þessa sýningu. Þá nær fólk að skipuleggja sig fram í tímann og allir eru hafa þá nógan tíma til að ná áttum í tæka tíð.

    Haffi





    24.06.2006 at 17:17 #554280
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Samkvæmt þessum þræði þá var byrjað að auglýsa eftir fólki [url=http://www.f4x4.is/new/forum/?file=innanfelagsmal/7275:2y5tevm2][b:2y5tevm2]23. apríl[/b:2y5tevm2][/url:2y5tevm2]
    Það er nú allveg slatti tímalega.
    Er það ekki bara sama sagan allir tilbúnir að tjá sig og svo ef eitthvað á að gera, hvar eru allir þá.
    Það var eins með skyndihjálparnámskeiðið það voru búnir að vera ótal þræðir þar sem fullt af fólki vildi fá námskeið í hinu og þessu þar á meðal skyndihjálp en svo var sett upp námskeið og 5 skráðu sig !!!!!!!!!
    Kveðja Lella





    24.06.2006 at 19:01 #554282
    Profile photo of Hafþór Atli Hallmundsson
    Hafþór Atli Hallmundsson
    Participant
    • Umræður: 24
    • Svör: 810

    Ekki finnast mér (og er það bara mín skoðun) einn og hálfur mánuður slatti langur þó að langur tími sé og margt hægt að gera á þeim tímaramma. Ég gat bara ekki betur séð en að Ofsi væri að BENDA fólki á að sýningin væri að renna upp og vantaði fólk á hana. Svo kom einhver romsa um sjálfa sýninguna, romsa sem menn gátu lesið á "Bílar&sport" vefnum. Svo breyttist þráðurinn í umfjöllun um áðurgengnar sýningar og síðan beygði hún í að fjalla um ferð fyrir Langveik Börn.
    Ég hefði glaður viljað taka þátt í sýningunni en bý fyrir norðan og nefni þess vegna að fyrr hefði átt að byrja að lýsa eftir starfsfólki. Fólk þarf bara að vera ágangsharðara og miklu, miklu sýnilegra með svona hluti. En við skulum vona að þetta verði árlegur viðburður hjá Bílar&sport mönnum og þá hljóta þeir að gera þetta betra og betra með hverju árinu. Og á það þá líka við um okkur.

    Haffi.





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 41 through 47 (of 47 total)
← 1 2 3

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.