FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Bilanagreining; heddpakkning?

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Bilanagreining; heddpakkning?

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Einar Kjartansson Einar Kjartansson 20 years, 9 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 10.09.2004 at 10:43 #194623
    Profile photo of
    Anonymous

    Gætuð þið spekingarnir ekki komið með ykkar ráð hérna varðandi heddpakkningar, því að nú hafa margir sína aðferð til að finna út hvort heddpakkning sé farin?
    Við hinir sem minna vitum gætum vel notað ráð ykkar :).
    Takk fyrir.

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 10.09.2004 at 11:28 #505624
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Ég er enginn bifvélavirki en….

    1. Gangtruflanir (vatn í sprengirymi), hvítur reykur
    2. Kælivatn í olíu
    3. Olía í kælivatni
    4. Vél gengur of heit

    -haffi





    10.09.2004 at 12:03 #505626
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Sæll,

    Það sem ég geri alltaf er að athuga hvort það komi loftbólur í vatnskassann, einfaldast er að taka bara slönguna úr forðabúrinu fyrir vatnskassann og stinga henni í plastflösku eða hvað sem er með vatni í og gá hvort það komi loftbólur.

    kv, Ásgeir





    10.09.2004 at 18:51 #505628
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ef miðstöðin hættir að blása heitu í hægagangi, en blæs heitu ef aðeins er hert á gangi vélar. Þetta er eitt besta ráðið.





    10.09.2004 at 22:44 #505630
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll

    Hjá mér voru í raun fyrstu merki um ónýta heddpakkningu vatn í vinstra framljósi. Yfirfalið á vatnskassann var fyrir aftan ljósið og það yfirfylltist af heitu vatni og spjó gufu um þetta svæði.

    Kv Isan





    10.09.2004 at 22:46 #505632
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    ég gleymdi að ég sannfærðist þegar ég fann angandi bensínlykt af kælivatninu. ´

    Kv Isan





    10.09.2004 at 23:56 #505634
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Eitt ráð til sem mér var sagt af bifvélavirkja:

    Taktu öll kertin úr, startaðu einn hring og athugaðu hvort það komi raki í einhver kertagötin.

    Skoðaðu líka þráðinn um V-6 toy heddpakkningu á spjallinu (nýlegur) þar fékk ég góð ráð í bunkatali.

    kv.
    Einar Elí





    11.09.2004 at 12:11 #505636
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þetta er allt gott og blessað, en það er hægt að minnka líkurnar á því að lenda í svona, með því að fylgjast með kælkikerfinu og með fyrirbyggjandi viðhaldi.

    Flestir framleiðendur mæla með því að skipt sé um frostlög á tveggja ára fresti, til þess að viðhalda tæringarvörn kælivökvans.

    Það er líka nauðsynlegt að fylgjast með því hvort kerfið er farið að leka. Á bílum sem eru með sjálfstætt forðabúr, sem er ekki undir þrýstingi (þetta á við alla japanska bíla sem ég hef séð síðustu 25 árin), þá er best að athuga vökvamagnið þegar bíllin er kaldur, og bæta á forðabúrið eftir þörfum. Lokið á vatnskassanum á aðeins að hreyfa þegar bíllin er kaldur, þar á alltaf að vera fullt upp í stút. Ef vatnskassin er ekki stútfullur, þá er líklegasta ástæðan sú að forðabúrið hafi tæmst eða að vatnskassalokið sé bilað.

    Ef hvergi lekur, þá liða margir mánuðir milli þess sem bæta þarf á forðabúrið, ef ekki hefur komist loft inn á vatnskassann. Það getur þó tekið nokkra daga að losna við loft af kerfinu eftir að skipt er um kælivökva eða kerfið hefur verið opnað vegna viðhalds.

    Ef fylgst er með forðabúrinu reglulega, þá er hægt að finna og laga leka, áður en svo mikill kælivökvi tapast að það fari að hafa áhrif á miðstöð eða hitamæli. Þegar svo er komið er mjög líklegt að heddið hafi mishitnað og skemmst. Algengasta ástæða fyrir lekum eru lausar hosuklemmur eða sprungur í gömlum miðstöðvar eða vatnskassa hosum. Gúmíslöngur harðna og verða stökkar með tímanum, því er ráðlegt að skipta um allar hosur þegar þær fara að eldast.

    Auðveldast er að finna leka rétt eftir að bíllin er settur í gang, og þrýstingur er byrjaður að myndast á kerfinu, en vélin ekki orðin svo heit að vökvinn gufi strax upp. Eitt sinn fór heddpakkning hjá mér að leka vökva út á blokkina, ég uppgvötvaði lekann áður en verulegt magn vökva tapaðist, þar sem aldrei hafði soðið á bílnum sleppti ég því að láta plana heddið þegar ég skipti um pakkninnguna, þessi viðgerð hélt í a.m.k. sjö ár.

    Ef bæta þarf vökva á forðabúrið oftar en á nokkura mánaða fresti, og enginn leki finnst, þá er líklegt farið sé að leka með heddpakkningunni.

    -Einar





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.