This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Andri Ægisson 15 years, 11 months ago.
-
Topic
-
Set þetta inn fyrir annan
sjá einnig á http://www.visir.is/article/20081216/FRETTIR01/233068040 þar er mynd af
Komið þið sæl.
Á meðan ég var við tónleikahald í Fríkirkjunni í Reykjavík í gær, sunnudag, milli 17 og 18, var bílnum mínum stolið. Bíllinn minn er fallegur, silfurgrár jeppi, Galloper OH 818. Eftir að ég hafði tilkynnt lögreglunni það formlega kom í ljós að ekki yrði leitað að honum, til þess væri enginn mannskapur, en ef hann yrði stöðvaður við venjubundið eftirlit myndi koma upp í tölvu lögreglunnar að hann væri eftirlýstur!Því langar mig að biðja ykkur, kæru samferðamenn, að láta vita ef þið rekist á eða sjáið bílinn minn. Ef hann er í umferðinni sker hann sig úr vegna þess að aðalljósin eru gul, einn mjög fárra bíla. Svo ef þið sjáið gul ljós í umferðinni þá athugið hvort þar sé jeppi, Galloper OH 818 og látið vita af því hjá lögreglunni í 112.
Hann gæti svosem líka verið einn og yfirgefinn í einhverri íbúðargötu eða hliðargötu eða á bílaplani og gildir þá það sama, látið lögregluna vita. Eða mig.
Kærar kveðjur,
Jón Kristinn Cortez
553-9922 / 693-3922
You must be logged in to reply to this topic.