Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Bestu kaup fyrir kr. 3M?
This topic contains 17 replies, has 1 voice, and was last updated by Einar Bárðarson 22 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
12.02.2002 at 13:06 #191327
AnonymousÉg hefði gaman af því að heyra í mér reyndari mönnum um hvaða tegund af fjallajeppa ég ætti helst að skoða ef ég hefði yfir ráða kr. 3 milljónum.
Einnig hvaða aukafítusar eru nauðsynlegir fyrir fjallajeppa svo vel megi vera.
Með fyrirfram þökk,
Magnús
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
12.02.2002 at 14:28 #458954
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
suzu fox í litla bíla flokknum toyota í milli bílaflokknum nissan patrol í stóra bílaflokknum diesel er betra en bensín í snjó,bensín er skemmtilegri á malbiki aðeins klaufar þurfa stórar vélar reyndu ekki að finna upp hjólið hvað dekk varðar 38"er alltaf nóg 35 undir toy HI lux BF gudrix
12.02.2002 at 16:23 #458956
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Landcruser 80.
44" DC dekk
puðar að aftan
auka millikassi
góð flóðlýsing skemmir ekki (IPF Super Rally, stórir)
o.fl. smádótSvona bíl sem er í kringum 90´-92´módelið er hægt að fá fyrir Kr 3.000.000.-
12.02.2002 at 20:01 #458958Fáðu þér gott reiðhjól
12.02.2002 at 21:59 #458960
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
80 Cruser er eins og kóngur á fjöllum á 44" ekki spurning!
14.02.2002 at 08:43 #458962
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég er með Mússó ´98 módelið á 38" dekkum…..þetta er mjög skemtilegur jeppi…með mikla aksturseiginleika og vel búinn bíll. Minn er með loftlæsingar að framan og aftan…og á lækkuðum hlutföllum…Þú færð nýlegan og mikinn bíl fyrir 2-2.5 milljónir.
Ég myndi spjalla við þá hjá Benna og athuga hvað hann hefur að gera…..Þó svo að Land Cruiser sé mjög mikill jeppi þá finnst mér verðlagninginn á þeim alveg útí hött. Ég meina að vera að tala um 3 milljónir fyrir 10 ára gamlan jeppa…Það er geðveiki. Ég myndi skoða allt annað áður enn ég færi útí svona pælingar.
Farðu uppá höfða notuðu bílana hjá Benna þar er einn 38" Mússó ´98 módelið sem er örugglega hægt að fá á góðu staðgreiðsluverði. Þetta eru mikið meiri bílar en sumir halda fram….Og þeir sem gagnrýna þessa bíla hvað mest eru þeir sem aldrei hafa átt eða keyrt þessa bíla.
Kv
Snake
14.02.2002 at 09:42 #458964
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
En hvernig er bilanatíðnin og styrkurinn á drifum á þessum Musso jeppum, persónulega finnst mér þetta nokkuð spennandi jeppar en ég veit bara allt of lítið þessa bíla.
14.02.2002 at 10:11 #458966
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Er ekki Dana drifbúnaður í þessum bílum, sem er mjög gott,
svo eru Benz vélar kassar/skiptingar sem er ekki verra.
14.02.2002 at 10:35 #458968Ef það á að nota jeppann til að aka á snjó, þá skiptir
þyngdin mestu máli. Stóru Land Cruserarnir og nýjustu
Patrolarnir eru of þungir fyrir 38 tommu dekk, og
kramið er tæplega nógu sterkbyggt fyrr 44 tommu dekkin.
38 tommu dekk duga oftast fyrir bíla sem eru um 2 tonn
(tómir) eins og Musso, Trooper eða LC-90.
Því léttari sem bíllin er, því betra.
14.02.2002 at 11:55 #458970
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
En það er ekki sama hvort að það er Dana 30 eða Dana 70,
er Musso með nógu sterk drif fyrir 38" dekk?
14.02.2002 at 12:04 #458972
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sælir…
Ég er nú ekki búinn að eiga Mússóinn minn nema rúma viku…var að fá mér hann og er að fara um helgina á fjöll til að reyna hann…hef heyrt margt mjög gott um þessa bíla…Persónulega finnst mér þessir bílar skemmtilegri að innan en aðrir sambærilegir jeppar….Maður situr mjög vel í þeim og mjög gott að keyra þá…
Í sambandi við drifinn í þessum bílum held ég að maður geti verið nokkuð rólegur þar sem að þetta er Amerískur drifbúnaður og frá einum þekktasta framleiðanda heims á þessu sviði. DANA/SPICER…..Ef ég man rétt þá er í þeim Borg & Warner gírkassar sem eru nú ekki af verri endanum. Og vélarnar í þeim eru vel reyndar BENZ vélar sem endast og endast á meðan þær fá það viðhald sem þarf að sinna sama hvaða bíl maður er með.
Ég get ekki annað enn mælt með þessum bílum og þekki nokkra sem eiga svona bíla. Og hefur þeim líkað MJÖG vel við þá. Sem dæmi einn frændi minn sem er með mússó ´98 módelið búinn að eiga hann síðan hann var nýr og hefur hann átt fjöldan allan af dýrum og góðum bílum en líkar engu að síður einna best við Mússóinn. hefur hann þá átt Nýja Patrol jeppa og nýja benza og marga fleiri góða bíla.
Þið sem eruð að velta einhverjum svona jeppakaupum fyrir ykkur ættuð virkilega að skoða mússóinn áður enn þið ákveðið ykkur. Ég vil meina það að maður sé að fá MIKINN jeppa fyrir peninginn ef maður miðar við verðinn sem eru á sambærilegum jeppum. Þetta er ekki minni bíll en LC 90 eða Trooper se dæmi.
Benni á nokkra svona bíla til….prófiði áður enn þið dæmið. Einn félagi minn segir að þetta séu ónýtir bílar, enn hann er einn af þeim sem fullyrða um flesta hluti án þess að hafa hugmynd um hvað hann er að tala um….ég meina þá er verið að fullyrða um hlutina án þess að hafa prófað þá eða hafa neina reynslu yfir höfuð. Þetta er koncept sem er ekki alveg að virka. Ef maður veit ekki um hvað maður er að tala ætti maður hreinlega að halda bara kjafti…*hehe*….En jaja nóg um þetta….
Kv
Snake
14.02.2002 at 12:48 #458974
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Mussoinn er með Dana 30 að framan og dana 44 að aftan milli kassi er Borg Warner og eins er beinskipti bíllinn með BW kassa en sjálfskipti bíllinn er með kassa frá MB.
Kveðja
Siggi
14.02.2002 at 17:42 #458976
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég held að ég sé búinn að keyra alla helstu jeppa sem eru til á markaðnum, og nokkra sjaldgæfari. Og svona raða ég þeim 1-5, (miðað við breytta bíla)
1. Toy L.Cr 80 massífur, kraftur, stór, kraftur, nógur búnaður, kraftur, þægindi og svo má ekki gleyma krafti, þó svo að hann sé á 44" þá er eins og að vera á honum óbreyttum
2. Toy L.Cr 90 þokkalega góður staðalbúnaður, ágætis kraftur, þægindi og góðir aksturseiginleikar eftir mikklar breytingar
3. Nisaan Patrol 3,0L fínnt power ef það er búið að fikta aðeins við hann, annars er hann svipaður og 80 Cruiserinn
4. Ford Expedition, Lincon Navigator, (sami bíllinn) rosa massífir, plentý power svo má ekki heldur geyma frábærum akstureiginleikum (reynda bara prófað þá á 38" en þurfa að vera á 44")
5. Chevy Suburban ekki eins góður að innan og Fordinn, en annað er eins.
Svo ef við bætum einum svona auka ef menn vilja ferðast langt þá mæli ég hiklaust með Ford Econoline 7,3 Turbo Deisel Power-Stroke 44" dekk loftpúðar allan hringin, þetta er draumur í dós.
P.s. Mússó og Trooper eru ekki ofarlega á mínum lista vegna þess að mér finnst þeir vera svo hráir að innan, óþægileg sæti, mikið vélarhljóð og allt svo gróft t.d. gírskiptingar og svo eru allir takkar, handföng o.þ.h. svo veiklulegt. En Pajeroinn er fínn fyrir utan máttleysi sem mér finnst mikill ókostur, reyndar er nýji bíllin með frábæra diesel vél en með klafa að aftan líka þennig að þessum lítlu breytingum sem voru gerðar á þessum bíl er sennilega lokið fyrir fullt og allt, það er einmitt það sem dregur Mússoinn, Trooperinn og Pæjeroinn niður finst mér að þeir eru með klafa að framan, reyndar L.Cr 90 líka en hann hefur þægindin sem hinir hafa ekki, svo eru þessir amerísku líka með klafa að framan en þeir hafa allan þann kraft sem til þarf og mikið meira.
P.s.s. Ég vill benda á það að þetta er mín skoðun og ég er ekkert tengdur P.Samúelssyni á einn eða annan hátt.
14.02.2002 at 19:49 #458978Sammála Finni með þann sem er í fyrsta sæti þetta er það sem maður kallar alvöru fjallatrukk og ég tala nú ekki um ef þetta er á 44". En mér heyrist snake vera á prósentum hjá benna eins og hann dásamar hann því hann er ekkert farinn að reyna mussoinn ennþá, en hann reynist vonandi vel.
Eflaust eru þetta ágætis bílar þegar er búið að krukka aðeins í þeim en miðað við það sem ég hef heyrt um þessa bíla þá er það samsetningin á þeim sem er til háborinar skammar.
P.s
svo mættu þeir vera aðeins sprækari
15.02.2002 at 09:01 #458980þú færð eingan nýan fjallajppa fyrir 3M
ef hann má vera notaður Hafðu þá þetta í hugatil eð geta ferðast vendamálalaust mað hverjum sem er
segir mín reynsla mér að þetta sé lámark
1. min afl er 100hö/tonn bensin disil skiftir ekki máli
2. max þingd með öllu nema nesti og gasi er
2tonn/38" og 2.4tonn/44"
18.02.2002 at 20:24 #458982faðu þer gamlan bil með stórri vel fyrir 5-700000. og spólaðu svo fyrir afganginn á fjöllum.
18.02.2002 at 22:02 #458984Faðu þér >1994 Jeep XJ (cherokee), með 4 cyl 2.5l vél.
Hækkaðu, að aftan með OME fjöðrum, klossum að framan og settu hann á 35 tommu dekk.
Þegar buddan leyfir má setja 4.750 hlutföll og loftlæsingar í drifin.
Þessi bíll er um 1500 kg breyttur og fer sviðað og tveggjatonna hlunkarnir á 38 tommu dekkjunum, fyrir brot af kostnaðinum og veseninu.Á þessum tíma var Chrysler búinn að lagfæra frágangs og bilana vandamálin sem einkenndu Jeep meðan merkið var í eigu AMC.
Ef þú vilt ferðast einn, þá er hægt að fara í 38 tommur en þá skilur þú hina bara eftir.
19.02.2002 at 15:52 #458986Fáðu þér Landcr 80 þú ættir að geta náð einum slíkum 92 – 94 fyrir millurnar þrjár staðgreitt en svoleiðis bíll á 44",sjálfskiptur með sverara púst öskrar áfram og fjöðrunarkerfið gerist ekki mikið betra…. En það er ekki spurning að þessir bílar eru að gera það nokkuð gott……
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.