FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

BENSÍNVERÐ!!

by Ívar Björgvinsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › BENSÍNVERÐ!!

This topic contains 27 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Agnar Benónýsson Agnar Benónýsson 16 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 25.06.2008 at 12:08 #202590
    Profile photo of Ívar Björgvinsson
    Ívar Björgvinsson
    Participant

    Ég fékk þetta e-mail vildi bara fá ykkur í lið líka

    Bensin -og olíuverð

    Góðan daginn,

    Ég hef frétt,

    Að bensinverðið

    geti í nánustu framtíð

    Komist í

    200 kr.líterinn

    Villt þú að verðið lækki í staðinn?

    Það er hægt!

    En þá verðum við að framkvæma núna!

    Og gera það af skynsemi!

    Erlendis reyndu menn að hafa áhrif og kaupa bara bensín virka daga.

    Forstjórar olíufélagana hlógu .Þeir vissu að ef þú keyptir ekki bensín á mánudögum, keyptir þú það bara á þriðjudögum

    Vonlaus aðgerð.

    Einhver fékk hugmynd sem getur virkað,

    Ef vilji er fyrir hendi.

    Lesið áfram og verið með!

    Bensínið kostar í dag ca.

    175,00 Kr/literinn

    Við vitum öll að olíufyrirtækin græða óhemju á þessu háa heimsmarkaðsverði og geta lækkað umtalsvert verðið hér heima.

    Munið eftir því þegar verðið fór yfir 100 kr.

    Þá var talað um að olíubirgðir í jörðu væru á þrotum.

    Í dag er ekki svo mikið rætt um að olíubirgðir í jörðu sé á þrotum

    Það er til meiri olía í dag en fyrir 35 árum síðan- Miklu meiri olía og ekki sér fyrir endan á því í dag..

    OG ÞÁ KOSTAÐI LÍTERINN CA 25 KR. GAMLAR

    Við verðum að taka til okkar ráða,

    Og sýna olíufélögunum að neytendur geta haft áhrif og rétt fyrir sér.

    Eina ráðið er að slá þar sem sárast bítur:

    Peningaveskið!

    Það getum við gert!

    HVERNIG?

    Við þurfum öll okkar bíla og þurfum að kaupa á þá bensín og olíu,

    En við getum haft áhrif á verðið:

    Þegar við tökum höndum saman

    getum við komið af stað verðstríði

    VERÐSTRÍÐ!!!

    Við leggjum til:

    Að við

    Kaupum ekki bensín

    Af tveimur stærstu olíufélögunum:

    N 1

    og

    Shell.

    Hugsið ykkur!

    Þegar tvö stærstu olíufélögin selja ekki lengur bensín og olíu neyðast þau til að lækka verðið til þess að fá viðskiptavinina til baka.Þetta leiðir til verðstríðs og hin olíufélögin neyðast líka til að lækka og fylgja með

    En til að ná árangri verðum við að ná flestöllum N1 og Shell viðskiptavinum með. Og allir verða að taka þátt í þessari samvinnu.

    Svona gerum við!

    Líka bílar fyrirtækjanna!

    Ég sendi þetta til 10 aðila.Þegar þeir síðan senda þetta til sinna tíu, höfum við náð 100 og þegar þessir 100 senda sínum 1000 kunningjum……..

    Höfum við fljótt náð 300 000 o.s.v..

    Þú skilur hvað ég meina?

    Þegar allir hafa sent þetta daginn eftir, höfum við náð

    Á einni viku til

    300 þúsund

    manns,

    Í verðstríð við olíufélögin

    Já,

    Við getum unnið, en…

    En það er MJÖG

    Mikilvægt

    Að við kaupum ekki bensín og olíu hjá

    N1 eða Shell

    Fyrr en verðstríðið er hafið

    Til þess að komast áfram með þetta og ná takmarkinu.

    Bið ég þig,

    Sendu þetta áfram til 10 kunningja

    Getum við reiknað með þér?

    Bensin -og olíuverð

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 27 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 25.06.2008 at 12:11 #624922
    Profile photo of Valdimar Oddur jensson
    Valdimar Oddur jensson
    Member
    • Umræður: 25
    • Svör: 198

    Þetta er bara góð hugmynd, og er maður nú til í þetta,,





    25.06.2008 at 12:30 #624924
    Profile photo of Óskar Andri Víðisson
    Óskar Andri Víðisson
    Participant
    • Umræður: 51
    • Svör: 778

    eitt annað…. lítill fugl hvíslaði því að mér að olíufélögin, einkum úti á landi, settu litaða olíu á "venjulegu" dæluna en seldu hana á sama verði og ólituð olía og græddu með því töluvert meira af grunlausum viðskiptavinum…..
    .
    Hvort þetta gangi upp eða hvort eitthvað vit er í þessu…… tjah…
    .
    Kv.
    Óskar Andri





    25.06.2008 at 12:30 #624926
    Profile photo of Baldvin
    Baldvin
    Participant
    • Umræður: 45
    • Svör: 524

    er það ekki ennþá þannig að Olís kaupi eldsneytið sitt af Olíudreifingu sem er í eigu Esso í dag?
    .
    Er þá ekki heldur að versla bara við Atlantsolíu og leyfa þeim þannig að finna verulega fyrir þessu?
    Gallinn þar reyndar þá að þeir verða svo fljótt uppiskroppa með eldsneyti blessaðir þegar að mikið verður að gera hjá þeim.
    .
    En gott framtak, verður að gera eitthvað. En öðru fremur ættu samt snillingar þessa ágæta klúbbs okkar að einbeita sér að því að finna upp alvöru orkumikla vél sem gengur fyrir vatni svona eins og hjá þeim þarna í Japan.





    25.06.2008 at 12:47 #624928
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Hugmyndin er góð og svo sem ekki ný af nálinni en samt sem áður strandar hún alltaf á sama skerinu, samstöðunni. Það er fullt af fólki þarna úti sem væri svo sem til í að taka þátt í þessu ef ekki ætti að hætta að skifta við olíufélagið ÞEIRRA. Tilfellið er nefnilega að margir eru svo fastheldnir á sitt félag og sínar stöðvar að þeir geta ekki hugsað sér að fara út fyrir þann hring sem þeir eru vanir að fara, sama hvað í boði er. Því miður. Ég er t.d. ekkert viss um að allir 4×4 félagar væru tilbúnir að henda viðskiftum við Shell þó svo að ég ætli ekki að fullyrða slíkt, svo spila viðskiftasamningar fyrirtækja og stofnana líka inn í þetta þannig að þó að hugmyndin sé góð þá tel ég hana illframkvæmanlega, L.





    25.06.2008 at 13:04 #624930
    Profile photo of Ísak Fannar Sigurðsson
    Ísak Fannar Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 490

    Orkan er í eigu shell er það ekki? Olís kaupir eldsneiti af N1 er það ekki. Hvar á fólk þá kaupa eldsneiti sem býr úti á landi? T.d á Neskaupstað þar sem ég er í fríi núna. En þetta er góð hugmynd sem er ervitt að frammhvæma… Ég er með.
    –
    ps hver á egó stöðvarnar? og allar hinar?





    25.06.2008 at 15:13 #624932
    Profile photo of Þórður Aðalsteinsson
    Þórður Aðalsteinsson
    Participant
    • Umræður: 25
    • Svör: 130

    Ég stóð upp og klappaði fyrir snilldar markaðsetningu hjá Olís þegar eg fékk þennan póst í morgun.
    Þegar ég skipti við djöfulinn þá er það aukaatriði hvað hann heitir.
    Núna ætla ég ekki að verja olíufélögin en þau búa við það að heimsmarkaðsverð er að hækka og gengi ísl, krónunnar lækkar þar með hækkar verðið til okkar og einhverjar kronur í lítraverði breyta ekki kúk fyrir veskið mitt, þó eg borgi 10 þúsnd kall meira í bensín ári er ekki aðalatriðið.

    Ef menn vilja gera eitthvað sem virkar þá er það að leggja bílnum og taka stræto eða hjóla eða labba eða hvað sem er annað en einkabílinn.

    d.





    25.06.2008 at 15:27 #624934
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Ólís á ÓB
    Skeljungur á Orkuna
    N1 á EGÓ





    25.06.2008 at 18:26 #624936
    Profile photo of Þórður Ingi Bjarnason
    Þórður Ingi Bjarnason
    Member
    • Umræður: 13
    • Svör: 440

    Atlansolía er eina stöðinn sem er ekki í eigu stóra aðila. En við sem búum á landsbyggðinni getum ekki nýtt okkur þessar stöðvar.





    25.06.2008 at 19:34 #624938
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Atlandsolía ??????
    ég sé ekki annað en að Atlandsolía sé að græða langmest á þessu háa eldsneytisverði.
    Ég verslaði þar þegar þeir komu á markaðinn en mér finnst muna allt of litlu á verði hjá þeim og hinum stóru. Nánast sama verð þar og annarstaðar.
    og engin yfirbygging. Allavega get ég ekki mælt loftið í dekkjum, ryksugað bílinn eða þvegið hann hjá Atlandsolíu svo já spurt er hver græðir mest.
    ég myndi segja Atlandsolía því þar er engin þjónusta í boði.
    Kveðja Lella





    25.06.2008 at 19:35 #624940
    Profile photo of Agnar Smári Agnarsson
    Agnar Smári Agnarsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 194

    Finnst ykkur ekkert skrítið að Atlandsolía sé aldrei
    meira en 2 krónum ódýrari en hinar stöðvarnar og oft ekkert ódýrari. Þar er engin yfirbygging og allt gert eins ódýrt og hægt er. Málið er að Atlandsolía er ekki í samkeppni við hin fyrirtækin þeir reyna að vera í ódýrari kanntinum ef þeir geta.Mér finnst að þeir hafi bruggðist samkeppninni og ætla að græða eins og hinir. Þar að leiðandi versla ég aldrei við Atlandsolíu og ætla mér ekki að gera.





    25.06.2008 at 20:01 #624942
    Profile photo of Þórður Ingi Bjarnason
    Þórður Ingi Bjarnason
    Member
    • Umræður: 13
    • Svör: 440

    Ég er sammála ykkur með Atlandsolíu, þeir ættu að geta verið mikil lægri en hin félöginn þar sem ekki er nein yfirbygging hjá þeim. En þeir eru komnir í saman verð og aðrar stöðvar. Ég tók eftri því meðan ég bjó í bænum að það munaði ekki nema 20 aurum á orkuni og Atlandsolíu í Hafnarfirði þar er mjög stutt á milli þessara tveggja stöðva.





    25.06.2008 at 20:46 #624944
    Profile photo of Agnar Smári Agnarsson
    Agnar Smári Agnarsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 194

    Ykkur til fróðleiks þá Olís og N1 olíudreifingu sama.
    Og nú liggur fyrir samkeppnisstofnun hvort Shell megi kaupa sig inn að 1/3 inn í olíudreifingu.
    Olían kemur hvort sem er með sama skipunu geymd í sömu tönkunum og afhverju ekki að nota sömu bílana til að keyra henni út.





    25.06.2008 at 21:06 #624946
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Olíufélögin dans öll í kringum sömu krónutöluna, sá sem bíður lægst er leiðandi á markaðnum. Þegar ég bjó í Danmörk fyrri 14-19 árum var bensínið 30-40% dýrar á íslandi en danmörk. Núna hefur þetta snúið við því í dag kostar benzin í danmörk 186,40 ísl. kr/lítri en 174,4 kr/lítri hjá Atlantsoliu.
    Að myrða kindiberann hefur aldrei gefið góða raun og verður okkur ekki til framdráttur.
    kv. vals.





    25.06.2008 at 22:47 #624948
    Profile photo of Axel Sigurðsson
    Axel Sigurðsson
    Member
    • Umræður: 55
    • Svör: 1116

    ekki vera svona vitlaus, bensín er ekki rass í bala dýrara í danmörku, það er bara dýrara ef þú miðar við hrun krónunnar, ef þú miðar saman tvo menn sem vinna sömu vinnuna í sinhvoru landinu og fá borgað í bensínlítrum að þá munar sirka 50% á þeim… berðu réttu hlutina saman, hversu mikið sígur í veskinu hjá mönnum í hinum og þessum löndum við að kaupa bensín, ekki einfalt reikningsdæmi með frábæru íslensku krónuna… það er ekkert vit í því.





    25.06.2008 at 23:24 #624950
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    daginn

    Það er staðreynd að allar markaðsaðstæður eru að hækka eldsneytisverð á Íslandi. Það eru samt nokkrir hlutir sem angra mig. Þar ber fyrst að nefna hvers vegna hráolían hækkar svona mikið umfram bensínið. Þetta er mér algerlega hulin ráðgáta.

    Um það leyti sem skatturinn var lagður á olíuverðið sagði ég og skrifaði minnir mig hér á spjallið að þrátt fyrir að ríkisstjórnin lofi því, sem hún gerði, að olían verði alltaf ódýrari en bensínið hækki olíuverðið langt umfram bensínið þegar meginþorri landsmanna verður kominn á díselbíla. Sjálfur átti ég ekki von á svona hrikalegum hækkunum.

    Kunningi minn sagði að málið væri einfalt: olíufélögin hafa aldrei grætt krónu með gati á bensíni en allar þeirra tekjur komið inn á hráolíu. Mér finnst þetta lógískt. Núna eru olíufélögin að nýta sér kreppuna til að taka okkur díeselbilaeigendur, sem á að vera náttúruvænni kostur, í ósmurt púströrið, og við bara brosum og biðjum um meira.

    Hitt sem mér finnst óeðlilegt eru svör olíufélaganna við áleitnum spurningum um nákvæmlega þetta ofangreint.

    "Það er mun dýrara að flytja hráolíu því að líterinn af henni er þyngri en af bensíni". Ég skal ekki efast um það en var það bara að breytast núna á þessu ári. Eru það ekki dálítið gömul vísindi sem hefði átt að trufla verðlagið dálítið fyrr.

    Maður spyr sig!!!

    Djöfull sem þessir glæpónar eru að láta okkur kenna á því. HVER KLAGAÐI Í SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ?

    Hvað mótmælum lýtur er ekkert grín að gera eins og menn ræddu hér ofar á þræðinum. Atlasolía er ekki svo víða á landsbyggðinni og hin félögin hafa búið sér vel í haginn með því að hækka olíuna rétt fyrir fyrsta slátt að þeir tóra þó að helmingur reykvíkinga noti atlasolíu.

    Kv Jónsi

    P.s. ég held að menn mótmæltu mest og best með því að kaupa sér reiðhjól.





    26.06.2008 at 00:08 #624952
    Profile photo of Unnar Már Sigurbjörnsson
    Unnar Már Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 193

    Hér hefur margt komið fram og margt sem fer í gegnum hugann þegar maður hugsar um bensín, olíur og annað tengt því viðskiptabatterýi.

    Í fyrsta lagi þá mun þessi póstur ekki geta haft nein áhrif á bensínverðið, hvorki hjá hundsuðu félögunum né þeim sem fólk myndi snúa sér til.

    [b:3sowxqx8]Af hverju ?[/b:3sowxqx8] Jú, íslensku olíufélögin eru að kaupa inn sitt eldsneyti á alþjóðlegum markaði og á þessum markaði eru allir að borga nánast sama verðið.

    [b:3sowxqx8]Af hverju er orðið ódýrara að kaupa inn bensín og diesel á Íslandi ? [/b:3sowxqx8] Það er vegna þess að skattar og gjöld sem íslenska ríkið leggur á þessar vörur er orðið hlutfallslegra lægra heldur en í flestum öðrum Evrópulöndum.

    [b:3sowxqx8] Af hverju er diesel dýrara en bensín[/b:3sowxqx8] Að sögn þeirra sem til þekkja (olíufélaganna) þá er líter af diesel þyngri en líter af bensíni og þegar 1.000.000 kíló eru flutt í einu þá telur það eitthvað. Einnig voru álögur ríkisins settar nærri bensínálögunum og er sú ráðstöfun að koma okkur í koll.





    26.06.2008 at 01:37 #624954
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Dísel vigtar um 0,9kg per líter, en bensín um 0,7kg per líter.. Mér þykir þetta óskaplega langsótt að flutningskostnaður á gasolíu hækki svona ofboðslega á þessum tíma. Miðað við hve lítill munurinn virtist vera hér áður fyrr, en ég hef svosem ekki sett upp neina flókna útreikninga, enda vantar manni allar tölur frá olíufélögunum til þess.
    .
    Eitt enn, ef við færum okkur útí það að versla við sjálfsafgreiðslustöðvar (sama hjá hverjum), og pössum okkur að versla ekkert úr búðunum hjá N1/Skeljungi/Olís, þá hefur það meiri áhrif en margan grunar, því tekjur olíufélaganna eru mestar á verslunarþættinum.
    .
    kkv, Úlfr
    E-1851





    26.06.2008 at 09:38 #624956
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Ástæðan fyrir að dísillinn er dýrari er engin önnur en aukin eftirspurn, er það ekki orðið sjaldgæft í Evrópu að menn keyri á bensíni???





    26.06.2008 at 10:10 #624958
    Profile photo of Steinmar Gunnarsson
    Steinmar Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 381

    Í Danmörku kostar lítrinn af 95 okt. bensíni 11,71 DKK, sem gerir, miðað við gengi dagsins, 202,80 IKR. Ef við berum saman laun verkamanns þá er tímakaupið 120 DKK, þannig að sá danski getur keypt 10,2 lítra fyrir tímalaunin. Þar sem ég veit ekki hver tímalaun eru á Íslandi, þarf ég bara að reikna hvað 10,2 lítrar kosta á Íslandi og bera það saman við Danmörku, þeas. ef við förum einföldustu leiðina, sem er í raun ekki samanburðarhæf.
    Um það bil 50% nýskráðra bíla í Danmörku eru dísel og helgast mest af því að díselbílar eyða minn eldsneyti og þar með eru bifreiðagjöldin lægri, því þau eru reiknuð út frá eyðslu bílanna, en ekki þyngd.
    En að segja að kaupmáttur sé meiri í Danaveldi, get ég ekki fallist alveg á. Tekjuskattur er td. 48%, sem er umtalsvert hærra en á Íslandi, vsk er örlítið hærri, öll gjöld á vélknúnum ökutækjum eru mun hærri, tryggingar eru að minnsta kosti jafn dýrar, ef ekki dýrari, rafmagn, vatn, gas til húshitunar; þetta er allt miklu dýrara en heima, einnig er matvara ekki eins ódýr og margir virðast halda, þannig að samanburður er ekki eins einfaldur og maður gæti haldið og að segja að maður fái 50% meira fyrir kaupið sitt í Danmörku stenst enganveginn, en þetta er spurning um hvernig samanburðurinn er gerður, hvaða skilaboðum maður vill koma á framfæri.
    Kveðja frá Danmörku
    Steinmar





    26.06.2008 at 10:23 #624960
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Það er auðvitað spurnng hversu mikil áhrif svona samstöðu aðgerðir hafa og hversu mikið olíufélögin geta lækkað eldsneytið. Væri fróðlegt að vita hve margar krónur álagningin hjá þeim er í dag. Það er hins vegar ljóst af [url=http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item214763/:u6dlcwqq][b:u6dlcwqq]þessari frétt[/b:u6dlcwqq][/url:u6dlcwqq] að forstjórum félaganna er lítt gefið um svona samráðsaðgerðir.
    Kv – Skúli





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 27 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.