Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Bensínfrek Súkka
This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Stefán Grímur Rafnsson 16 years, 1 month ago.
-
CreatorTopic
-
20.01.2009 at 21:18 #203608
Kanski er þetta bara eðlilegt en ég vill samt ekki trúa því að súkkan mín sem er á 32″-35″ dekkjum er að drekka bensínið , það er 1600 16 ventla vél og ég kemst stundum bara einhverja 200 km á tankinum ef ég er mikið að keyra innanbæjar, einhver hint þannig að ég get vonandi dregið eitthvað úr henni
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
20.01.2009 at 21:48 #638584
sæll vertu þetta er frekar mikið og ég var í þessum vandræðum þegar ég var með súkkuna á 33 tommu dekkjunum og var ég einmitt að fara rúma 200km á tanki. Ég komst að því að einn útblástursventillinn var ónýtur á 4 cylender svo ég tók alla ventlana í gegn og fékk mér nýja pakkningu og allt dótið í heddið og fyrst ég var að betrum bæti nýja tímareim og hjól og meira gúmmelaði kostaði ekki mikið og tók rúma helgi fyrir mig óvanann að framkvæma þetta eftir að ventlasætin voru rennd upp á nýtt. Þá fórum við bræður líka í það að setja ögn stærri dekk undir 35" og ég fer rúma 450 km á fullum tanki var meðal annars í litludeildarferðinni á laugardaginn var og ég náði ekki að klára tankinn í þeirri ferð og ég fór
rúma 300km þar. Ég er á Suzuki sidekikc 35" með 1600 vél 16v orginal púst og orginal 5,13 hlutföll
(gamlar myndir af bílnum í albúmi)
21.01.2009 at 00:42 #638586Hvað kostaði þessi pakki eiginlega, ég nefnilega tími takmörkuðu og er fátækur námsmaður…
21.01.2009 at 01:14 #638588Það er fullt af hlutum sem þú getur athugað áður en þú ferð að kaupa ventla og pakkningar. Þú getur og ættir að byrja á því að þjöppumæla djásnið. Það er mjög einföld og ódýr aðgerð og segir þér flest um hvað vélin er þétt, semsagt ventlar og stimpilhringir. Sé vélin eitthvað óþétt þá má byrja á að thuga hvort Redex hjálpi henni eitthvað,
Redex á að hreins sót og dullu úr sprengirýminu og eins af stimpilhringjum og ventlum.
Og svo er það þetta klassíska td kerti, þræðir og lok. Sé eitthvað af þessu ónýtt þá getur það híft eyðsluna helling upp.
Og athuga vacúmslöngur.
Og sértu með blöndung þá ættirðu að láta stilliverkstæði ath hann. Td mengunarmæla.
Sé bíllinn búinn innspýtingu þá gæti verið skynjari bilaður eða spíss.
En nota bene þetta er allt frekar einfaldar og ódýrar aðgerðir sem ætti að geta gefið þér einhverja hugmynd um ástand vélarinnar og eða ástæðu mikillar eyðslu.
Svo eru sumir með þungann bensínfót:) Yaris fer td aldrei undir 10-11 lítrana hjá mér þegar ég ek um á svoleiðis bíldollu. (sem er sjaldan sem betur fer:) )
21.01.2009 at 02:57 #638590Ég fer í það að skoða þessa hluti sem fyrst, takk kærlega fyrir ráðleggingarnar.:D
21.01.2009 at 06:22 #638592sæll vertu þetta kostaði um 15 þúsund hjá suzuki umboðinu og svo fékk ég pabba kallinn til að renna ventlasætin. En ég mæli hiklaust með því að gera það sem Jens sagði það gerðum við líka fyrst þar til þolinmæðin sprakk og ég áhvað að laga þetta alt bara ef ég man rétt þá var þjöppumælingin á þennann veg.
1.12p 2.10p 3.12p 4. 2p aksturstölvan var líka eitthvað að blikka útaf ventlinum ónýta.
21.01.2009 at 16:43 #638594Hvaða árgerð er þessi súkka. ég hef nú verið að fást við álika vandamál á mínum samurai en því vandamáli fyrlgir líka óhóflega mikið af svörtum reyk.
Ég náði mér í leiðbeininga bók á netinu svona tilað hafa allt á hreinu. Þar kommst ég að því að hægt er að ná bilanakóðum út úr tölvuni með því að setja öryggi í rauf í örygjaboxinnu sem er merkt DIAG (Diagnosis) síðann er lykilinn setur á on (bílnum ekki startað) og þá fer check engine ljósið að blikka. Ef þinn er útbúinn með þessu get ég sennt þér betri leiðbeiningar.
Kv: Stefán Grímur
P.S reykir þín líka? svo væri gamann að fá að vita hvað er að hrjá þína þegar þú kemmst að því.
21.01.2009 at 17:30 #638596[url=http://suzuki-cat.ru/:lueigcky][b:lueigcky]góð síða með myndum[/b:lueigcky][/url:lueigcky] rakst á þessa áðann þarna er hægt að finna ýmislegt og hægt að láta google þýða.
Kv:Stebbi
21.01.2009 at 18:58 #638598hún er 92" árgerð en vélin sem er í henni er úr sidekick, sirka 95 árg, en er ekki vitað fyrir víst, hún reykir ekkert svakalega, nema þegar hún er köld en hún mengaði allveg fáranlega þegar ég fór með hana í skoðun síðast, reyndar eki með hvarfakút eða neitt. Og svo eitt enn, ég er búinn að þurfa að tjúna helling upp í hægaganginum svo hún gangi, annars kæfir hún á sér þegar hún er orðin heit, gæti það eitthvað tengst þessu?
21.01.2009 at 22:57 #638600Ég er nú enginn sérfræðingur. Bara fátækur námsmaður einsog þú. en ef hún gengur svona illa þá myndi ég veðja á að það væri háspennukeflið, Kveikjulok,kertaþræðir, kerti eða þá að hún þjappi ekki nóg. svosem bara það sem hefur komið framm áður. en svo gæti þetta verið eithvað allt annað.
þú getur leitað að sprungum á í kveikjulokinu og einfaldlega athugað hvort að það sé ekki kominn tími tilað skipta um það.
kertaþræðina getur Ohm mælt með avamæli en athugaðu að lengst þræðirnir eru með meira viðnám en þeir styttri, en ef þeir eru alveg ónýtir þá er talan miklu hærri en hinar.
Svo bara það klasíska að taka kertin úr og setja þau svo í þræðina láta þau liggja í jörð á vélin og fylgjast með því hvort það komi ekki ágætis neisti á þau þegar þú startar.KV: Stebbi
svo er bara að prufa eithvað til að útiloka það.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.