This topic contains 21 replies, has 1 voice, and was last updated by Snorri Einarsson 16 years, 8 months ago.
-
Topic
-
Innlent | Morgunblaðið | 7.3 | 5:30
Bensínið í 141,80 kr. og dísil í 149,80Skeljungur hækkaði verð á bensíni í gær um 2 krónur og fór lítrinn af 95 oktana bensíni í 141,80 kr. Þjónustuverð á 95 oktana bensíni er 144,80 kr. og hækkaði einnig um 2 krónur. Meira
Þetta eru fréttirnar í dag. Ég velti fyrir mér þessum mismun þ.a.s 8 króna verðmunum. Sem virðist aukast jafnt og þétt. Hver skildu þolmörkin vera á mismuninum. Við hvað mikinn verðmun mun eigendur díselbíla snúa við þeim bakinu. Ég held að þetta sé þegar farið að hafa veruleg áhrif. T,d sýnist mér á ýmsu að 6 og 8 cyl jeppar sé að nálgast díseljeppana í verði. Ef málin halda áfram að þróast í þessa veru. Hvað þá.
Ég man enn eftir markmiðum ríkisstjórnarinnar þegar díselskatturinn var feldur niður.
Hann var m.a sá að fækka risajeppum. En fjölga jafnframt díselbílum, einsog þáverandi umhverfisráðherra hélt fram ( Sigríður Anna ). Skildu þessi markmið hafa náðst.
Allavega ekki hvað jeppaflóruna varðar. Risatrukka hafa aldrei verið vinsælli, V8 er heit og bensínjeppar nálgast dísel jeppa í verði. Semsagt algjört flopp aðgerð á sínum tíma
You must be logged in to reply to this topic.