This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Óskar Andri Víðisson 19 years, 8 months ago.
-
Topic
-
Sáuð þið þetta – ég veit að það er gott færi, en þetta er náttúrulega fáránlegt.
http://www.visir.is/?PageID=111&NewsID=34505
Upp á Skjaldbreið á Porsche
Sportbíl, hönnuðum til að aka á hraðbrautum í Evrópu, var í fyrsta sinn ekið upp fjallið Skjaldbreið í dag. Og það var brunað upp brekkurnar.
Skáldin hafa í gegnum tíðina haft fögur orð um fjallið Skjaldbreið en fáum þeirra hefði líkega látið sér detta í hug að keyra upp hlíðar þess á fimmtán milljóna króna sportbíl. Það gerði Benedikt Eyjólfsson, eigandi Bílabúðar Benna, í dagi á Porsche 911.
Harðfenni og góðar aðstæður voru á fjallinu og átti bíllinn, sem er fjórhjóladrifinn og á vetrardekkjum, ekki í nokkrum vandræðum. Hann brunaði upp. Eftir tveggja tíma ferð var toppnum náð, 1060 metra hæð. Þar voru svo teknar myndir fyrir Porsche í Þýskalandi, væntanlega í auglýsingaskyni.
Það er óhætt að segja að ökumaðurinn hafi verið ánægður með ferðina og ekki síst bílinn. Hann sagði ótrúlegt að hægt væri að fara á bifreið sem byggð væri fyrir þýsku hraðbrautirnar og næði allt að 300 kílómetra hraða upp á ísilagðan Skjaldbreið.
Arnór
You must be logged in to reply to this topic.