FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Bannað að aka inn í Hrafntinnusker ?? ??

by Jón G. Bergsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Bannað að aka inn í Hrafntinnusker ?? ??

This topic contains 27 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Gunnar Sigurfinnsson Gunnar Sigurfinnsson 13 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 02.09.2011 at 15:36 #220259
    Profile photo of Jón G. Bergsson
    Jón G. Bergsson
    Participant

    Var spurður að því hvort bannað væri að aka inn í Hrafntinnusker. Sögð var saga af fólki á fjórhjólum sem keyrði inn í Hrafntinnusker síðustu helgi. Skálavörður vísaði fólkinu í burtu og sagði að einungis trússbílar mættu keyra að húsinu !!

    Fékk ekki einu sinni að drekka kaffisopann sinn.

    Getur þetta staðist ??

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 21 through 27 (of 27 total)
← 1 2
  • Author
    Replies
  • 16.09.2011 at 18:54 #736553
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Vitnað í setningar úr bréfi ust.

    [i:r22mox6h]Umræddur slóði upp að skála FÍ við Hrafntinnusker var ekki myndaður með heimild Umhverfisstofnunar og er ekki á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Hann er ekki merktur og hefur ekki verið samþykktur af stofnuninni.

    Umhverfisstofnun veitir venjulega ekki leyfi til aksturs um [u:r22mox6h][b:r22mox6h]slóðann[/b:r22mox6h][/u:r22mox6h] nema um sé að ræða sérstakar aðstæður. Til þess að sækja um slíkt leyfi þarf að senda erindi á ust@ust.is, óska formlega eftir leyfi og gefa greinagóða skýringu á tilgangi akstursins."[/i:r22mox6h]

    Þetta þykir mér skrítin latína. Ég er líklega ekki nógu veruleikafirrtur til að skilja þetta. Hefur FÍ þegjandi samkomulag við ráðendur til að vaða á skítugum skónum um íslenska náttúru og fá síðan þögult samþykki um einka-afnot?

    Kv .SBS.





    16.09.2011 at 19:18 #736555
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Sæl öll.
    Þetta er orðinn verulega fræðandi þráður.
    UST viðurkennir ekki slóðann, en veitir undanþágur um akstur þegar sótt er um, eftir ýtarlega umfjöllun.
    Samt er reglubundinn akstur þarna enda er FÍ með trússbíl daglega yfir sumarið.
    UST viðurkennir ekki hvernig slóðinn varð til, en hefur veitt fjölmörg leyfi fyrir akstur stórra vörubíla um slóðann og líklega einnig daglegan akstur trússbíla FÍ.
    Samkvæmt öllum lagaskilningi mínum er um veg að ræða sem ætti öllum að vera opinn, þrátt fyrir afstöðu UST, en líklega eru UST enn að bíða eftir nýjum lögum sem ættu að staðfesta afstöðu UST gagvart þessum vegi, en þau lög eru ekki enn komin.
    Kveðja Dagur





    16.09.2011 at 20:37 #736557
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Höskuldsskáli var byggður 1977. Allavega síðan þá hefur verið einhver slóð að skálanum, eða í 34 ár. Einhver lögmaður sagði einhvern tíman við mig að hefðarréttur myndaðist við um 20 ára notkun. Sennilega á hann við átölulausa notkun. Mér verður því hugsað til Friðlandsins í Þjórsárverum þar sem hefur verið ekið að vetrarlagi frá því að friðlandið var stofnað 1981 til þess að umhverfisstofnun gerið athugasemdir við aksturinn nú í febrúar. Þ.e aksturinn var látinn átölulaus í 30ár. Ég fór nú að grúska í kortum eftir að svarið barst frá umhverfisstofnun. Ég var aðallega að leita eftir prototypukorti Slóðanefndar ríkisins frá árinu 2006. En þar eru vegir skilgreindir eftir notkun til framtíðar. Þ.e flokkaðar í gangnamannaleiðir ofl. Þar minnir mig að í framtíðaráætlunum sveitarfélagsins hafi leiðin inn að Höskuldsskála, hafi verið flokkuð sem ferðamannaleið. Þar að segja vegur fyrir almenning. Það væri ágætta að ferlaráðsmenn sæju eftir því hvort þeir séu með þetta kort og þá gætu þeir staðfest hvort þetta sér rétt. Hinsvegar í þrem síðustu aðalskipulögum sveitarfélagsins þá er Höskuldsskáli skilgreindur með skálum sem eiga að vera í litlu (takmörkuðu) eða engu vega sambandi. Í þann flokk fellur t,d Dalakofi þeirra Útivistarmanna. Það er líka athyglisvera að skoða það að einungis hluti leiðarinnar liggur inn í friðlandið að Fjallabaki. Dagur minnist á þungaflutninga FÍ inn að skálanum. Þá á hann væntanlega við það að skálinn var að mig minnir stækkaður 2006 og voru þá einingar í skálann fluttar inneftir á treilerum og má sjá myndir af því ef gúglað er Hrafntinnusker/myndir. Ekki veit ég til þess að heimildir hafi verið fyrir þessum akstri, enda voru myndirnar fjarlægðar af vefsvæði fí.is á sama tíma og myndir af vafasömum akstri við Farið voru fjarlægðar. Skammt frá þeim stað sem ungir drengir voru kærðir um viku síðar fyrir utanvegaakstur í heimskulegur þyrluaðgerðum Ólafs Helga hér um árið.





    17.09.2011 at 09:26 #736559
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hér er skýrsla frá Náttúrufræðistofnun þar sem leiðbeint er hvernig á að taka hrafntinnu í Hrafntinnuskeri [url:37r6nbw3]http://utgafa.ni.is/skyrslur/2006/NI-06004.pdf[/url:37r6nbw3]

    Hér er leyfi Umhverfisstöfnunar fyrir töku Hrafntinnu í Hrafntinnuskeri ásamt leiðbeiningu um akstur vörubíla á umræddum slóða og leibeiningar um utanvegaakstur á sexhjólum: [url:37r6nbw3]http://www.eldhorn.is/hjorleifur/pdf/Beidni.pdf[/url:37r6nbw3]

    Ekki fann ég myndir Ferðafélags Íslands af þungaflutningum á slóðanum, en þeir fluttu efni í skálann á stórum v-rubíl í Hrafntinnusker: [url:37r6nbw3]http://www.fi.is/um-fi/frettir/nr/604/[/url:37r6nbw3]
    [url:37r6nbw3]http://www.fi.is/um-fi/frettir/nr/646/[/url:37r6nbw3]
    [url:37r6nbw3]http://www.saf.is/saf/upload/files/saga_ferdathjonustunnar/nyju_vidtolin/saf-gunnargudmundsson_nyju.pdf[/url:37r6nbw3]

    kveðja Dagur





    17.09.2011 at 10:21 #736561
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Athygglivert Dagur, vissara að afrita svonalagað ef link-unum verður breytt, eins og gerist stundum.

    ÓE





    17.09.2011 at 13:03 #736563
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Ég þekki mig ekki vel til í kringum Hrafntinnusker og hef ekki farið lengra en að íshellinum að skoða, var reyndar kominn heim í fyrsta skiptið þegar ég áttaði mig á að það væri skáli þarna rétt hjá. Einmitt þá var mér sagt að það lægi enginn vegur að skálanum sem mér fannst reyndar mjög undarlegt en ég spáði svosum ekki meira í það.

    Ég spyr þá alveg eins og bjáni, hvaða slóði er þessi umræddi slóði sem maður er að stunda ólöglegan utanvegaakstur við að keyra? Það er merktur slóði á Garmin kortin sem liggur frá íshellisslóðanum að skálanum, er það sá?

    Kv Jón Garðar





    17.09.2011 at 14:35 #736565
    Profile photo of Gunnar Sigurfinnsson
    Gunnar Sigurfinnsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 243

    Ný kortasjá Landmælinga: http://atlas.lmi.is/kortasja/
    Slærð inn Hrafntinnusker í leitargluggann





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 21 through 27 (of 27 total)
← 1 2

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.