FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Aukin eyðsla ???

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Aukin eyðsla ???

This topic contains 5 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Freyr Þórsson Freyr Þórsson 20 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 17.01.2005 at 18:49 #195274
    Profile photo of
    Anonymous

    Sælir félagar,

    mig langaði bar að spyrja ykkur um hugmynd að aukinni eyðslu ??? Ég er með Suzuki Vitara, 1,6i ´98.
    Þegar ég fjarlægði náttúru-hreynsi kútinn (man ekki heitið) þá jók bíllinn eyðsluna um rúma 3 lítra og svo fékk ég mér K&N loftsýju og snerpan jókst en eyðslan breytist ekkert. Bíllinn var nýstilltur þegar kúturinn fauk…..
    Ef þið hafið einhverja hugmynd væri gott að fá að heyra.

    Kveðja
    Moli litli

  • Creator
    Topic
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)
  • Author
    Replies
  • 17.01.2005 at 19:11 #513740
    Profile photo of Ingi Björnsson
    Ingi Björnsson
    Participant
    • Umræður: 73
    • Svör: 1022

    verið að það eigi að vera oxigen sensor í hvarfakútnum, sem gæti ruglað tölvuna í bílnum.

    Svo er eitt að þegar menn tjúna bílana sína með svo sem pústi og loftsíu sem ætti að lækka eyðsluna þá þyngist oft bensínfóturinn og bíllinn fer að eyða meiru en áður. Svo róast maður með tímanum og þá kemur oft fyrir að bílarnir eyði minna en áður. Hef eigin reyslu af þessu.





    17.01.2005 at 20:54 #513742
    Profile photo of Lárus Elíasson
    Lárus Elíasson
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 408

    Stýrður katlýsator (með lambda/Oxy sensor) fær feita blöndu til að halda katlýsatornum nógu heitum til að brenna NOX-in og kolmónoxíðið.

    Ef að sensorin er eftir, en kúturinn farinn, er eins víst að innspýtingin sé að reyna feitari og feitari blöndu.

    Af sensorin er líka farinn fer innspýtingin í "hökta heim mode" eða eithvað þvíumlíkt.

    Mér skilst að klókir menn setji "rétta" mótstöðu í stað sensorsins til að plata innspýtinguna. Eitthvað sem mér fróðari menn á vefnum eða leit á internetinu getur frætt þig um hversu stór hún þarf að vera.

    l.





    17.01.2005 at 21:52 #513744
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Það eru tveir súrefnisskynjarar, einn fyrir framan kút og einn fyrir aftan. Ef þú tekur kútinn burt þá lesa báðir skynjararnir sama súrefnismagn í útblæstrinum. Þá heldur vélartölvan að hvarfakúturinn sé bilaður og kveikir "check engine" ljósið. Jafnframt fer tölvan af "closed loop" (þá vinnur tölvan skv. uppls. frá skynjurum og stillir opnunartíma spíssana eftir þörf hverju sinni) og fer að vinna á "open loop". Þá vinnur tölvan skv. forriti og kallast það "limp home mode" eða "Home safe mode".

    Þá verður bíllinn töluvert aflminni og fer að eyða meiru. Stundum áttar fólk sig ekki á þessu eða er sama og keyrir, jafnvel í mörg ár, með tölvustýringuna óvirka en fyrir vikið er bíllinn dýr í rekstri og leiðinlegri í akstri.

    Lambda skynjarar (súrefnisskynjarar) eru til í tveimur útfærslum:
    Önnur útfærslan (Zirconia) byrjar að virka við u.þ.b. 500°C. Þá fara rafeindajónir að myndast á platínu-plötum skynjarans. Hlutfall súrefnis í útblæstri stýrir magni rafeindajóna, sterk eldsneytisblanda (mikið bensín/lítið loft)= meiri rafeindamyndun= meiri spennumunur milli platna. Spennan sem getur myndast er 0-999mV.
    Ef þú ert með svona skynjara þá þarf að finna hvaða vír af sennilega fjórum er sá sem flytur strauminn frá skynjara að tölvu. Á þann vír seturðu viðnám (finnur stærðina sem þú þarf að nota með því að mæla strauminn í vírnum) viðnámsstærðin gæti verið eitthvað í kringum 10ohm. Viðnámið lækkar þá strauminn til tölvunnar og aftari skynjarinn gefur minni straum en sá fremri þó að súrefnishlutfallið sé það sama, þá heldur tölvan að hvarfakúturinn sé að gera gagn og allt virkar eins og það á að gera. Þá er minna viðnám í pústkerfinu=meira afl=MIKIÐ GAMAN, MIKIÐ GRÍN HA HA HA HA HA HA HA HA HA.

    Hin skynjaragerðin er Titania. Þá myndar hann ekki spennu heldur sendir tölvan til hans 0.45V spennu. Skynjarinn breytir svo spennunni eftir blöndunarhlutfallinu og sendir til baka til tölvunnar. Ég er ekki alveg viss hvað þarf að gera til að rugla hann en það ætti að vera hægt að finna hvaða vír sendir straum til baka til tölvunnar og finna út með mælingum hvort á að setja viðnám á 0.45V leiðarann eða þann sem sendir í tölvuna aftur.

    Innvolsið í hvarfakútnum er stökkt svo það er auðvelt að nota t.d. steypustyrktarjárn til þess að mölva innan úr kútnum og hrista mylsnuna úr honum.

    Sumir hafa áhyggjur af mengunn en gildið sem hvarfakúturin lækkar má vera 4.0 (man ekki hvaða en gæti verið CO(kolsýringur)). En gildið í flestum nýjum bílum er 0.00eitthvað svo það er í lagi að taka kútinn burt. Þar að auki er ekki skylda að hafa hvarfakút í bíl nema hann sé ’95 eða yngri.

    Freyr Þórsson.





    17.01.2005 at 23:34 #513746
    Profile photo of Baldur Gíslason
    Baldur Gíslason
    Member
    • Umræður: 6
    • Svör: 214

    Þú ert ekki að fara að setja neitt 10 ohm viðnám á signal vírinn frá súrefnisskynjaranum, því útgangsviðnámið er mjög hátt. Væri nær að prófa 10 megaohm.





    18.01.2005 at 23:08 #513748
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Man þetta ekki alveg nákvæmlega. Það getur vel verið að 10 megaohm sé talan sem ég fékk út. Félagi minn reif hvarfakútin undan Citroén Saxo og mig minnti að viðnámið hafi verið 10 ohm en er ekki viss, a.m.k. fór hann úr 125,6 í 129,8 hp. (mældur á dynotester) og tölvan kvartaði aldrei þannig að vinnámið var passlegt, ég skal spyrja hann hvað það var hátt.

    Freyr





  • Author
    Replies
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.