Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Aukamiðstöð
This topic contains 26 replies, has 1 voice, and was last updated by Sigurbjörn Arngrímsson 19 years, 2 months ago.
-
CreatorTopic
-
15.11.2005 at 01:06 #196640
Sælir félagar.
Er að velta fyrir mér að fá mér aukamiðstöð í bílinn, er eitthvað annað en Webasto sem kemur til greina? Hver er reynsla manna af slíkum búnaði og er þetta (Webasto) ekki mun skynsamlegra en fjarstart?Með fyrirfram þökk.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
15.11.2005 at 03:24 #532454
Eberspacher Hydronic B5 til greina?
Hafa menn reynslu af þessum miðstöðvum eða samanburð á þeim og Vebasto. (bilanir, þjónusta o.s.frv.)Látið heyra í ykkur.
Kveðja.
Elli.
15.11.2005 at 09:05 #532456Já Elías, Hydronic kemur vel til greina, þannig græja hefur verið í mínum Patrol núna í slétt 6 ár. Mikið notað og gengur oft lengi í senn. Eina viðhald er að skipta um glóðarkerti í þessu, ca einusinni á ári.
Þjónusta hefur verið mjög góð.
Svo hefurðu bara fjarstýringu á þessu.
S.
15.11.2005 at 16:43 #532458Hvar er Hydronic selt? Er mikið mál að koma þessu fyrir, getur hver sem er gert það?
Kv.
Friðrik
15.11.2005 at 16:59 #532460Sælir
Ég er með Webasto miðstöð í mínum bíl og nota hana mjög mikið – gangset hana að meðaltali tvisvar á dag og þá gengur hún í ca 30 mín í senn.
Ég not hana líka þegar ég sef í bílnum og þá gengur hún mun lengur.
Ég tók miðstöð sem er með fjarstýringu og á henni er skjár sem sýnir hvað er að gerast . t.d hversu lengi hún hefur gengið, hvað er orðið heitt í bílnum o.fl. Ég prógramma svo miðstöðina með sömu fjarstýringu og get m.a. stillt hversu lengi hún gengur, hvort hún fer í gang á akv. tíma, hversu heitt vatnið á að verða o.m.fl sem ég kann ekki á.
Að mínu mati er ekki spurning að velja miðstöð umfram fjarstart – en hvaða tegund veit ég ekki, þekki ekki annað en Webasto og þær hafa ekki svikið mig hingað til.
Benni
15.11.2005 at 18:17 #532462Var að kaupa Webasto aukamiðstöð með digital fjarstýringu í Pattann og get ekki beðið eftir að fá hana setta í bílinn. Þetta er draumabúnaðurinn! :o)
Ég hef reynslu af rafmagns-hreyfilhiturum, sem er ekki rétti búnaðurinn í fjallabíla þar sem oft getur þurft ansi langa framlengingasnúru…
Fjarstart er drasl sem þú skalt gleyma strax! Sá búnaður er ólöglegur hér á landi vegna mengunar og öryggissjónarmiða. Hann fer einnig illa með vélina í bínum þar sem vélin gengur lengur án átaks og með skerta smureiginleika. Og tölum nú ekki um alla óþörfu mengunina!
15.11.2005 at 18:25 #532464RSH eða Bílanaust er með Eberspacher en Bílasmiðurinn að ég held með Webasto.
Mér sýnist að Bílanaust sé með betra verð en spurningin er hvort þetta séu sambærilegar miðstöðvar.
Ég hef áhuga á að fá mér aukamiðstöð með sjálfvirku thermostati (ef ég óska eftir að láta miðstöðina "regulera" sig sjálfa) og einnig með fjarstarti "remote control" (fjarstýringu)
Endilega að láta vita reynsluna af þessum gerðum með ofangreindum búnaði.
Kveðja.
Elli.
15.11.2005 at 19:02 #532466Túrbó ehf Lynghálsi 12 hefur líka verið með þær.
Hringdu bara í þá og talaðu við Ísleif. Síminn er 5442004
15.11.2005 at 19:51 #532468Ég nota föðurland frá [url=http://www.ellingsen.is/:my8ddei8]Ellingsen[/url:my8ddei8] alveg
þrælvirkar kostar innan við 10.000kall. Með svoleiðis græjum er hægt að fara út úr bílnum án þess að manni verði kalt. Alveg frábert og umhverfisvænt.
kv guðmundur
15.11.2005 at 20:01 #532470Föðurlandið er best og alltaf klárt á fjöllum þegar að til þarf að taka.
Við erum hinsvegar að tala um miðstöðvar og blessuð lambaullin er ekkert þessu spjalli viðkomandi.
Svo. þið sem hafið reynslu af E v.s. V endilega að tjá ykkur.
Kveðja
Elli
15.11.2005 at 20:11 #532472Sæll Elias.webasto er málið hef góða reynslu af henni var með aðra tegund (held frá Turbo)sem
þurfti stundum viðhald kerti ofl-en webasto hefur ekki klikkað-með fjarstýringu.
15.11.2005 at 20:43 #532474Takk Sigurbjörn og tnt en veistu "tnt" hvaða tegund þú varst með, langar að vita meira til að hengja ekki bakara fyrir smið.
Kveðja.
Elli
15.11.2005 at 21:04 #532476Af því einhver spurði hér um ísetningu á þessum miðstöðvum, þá rakst ég hérna á nokkuð ítarlegar leiðbeiningar fyrir Hydronic.
http://www.espar.com/pdfs/hydronic4_5.pdfEr mikill verðmunur á Webasto og Hydronic, einhver sem veit um það? Klárt mál að svona græja myndi gera gagn í Defender.
Kv – Skúli
15.11.2005 at 21:25 #532478búinn að vera Eberspacher 5kw í Pattanum mínum í frá 2001, mikið notuð er alltaf búin að ganga í 1klst áður en fer í vinnuna á vetrum. Er alltaf látin ganga þegar er verið að snatta á bílnum og kalt er í veðri, frekar en láta bílvélina ganga meðan skroppið er frá.
Einusinni farið kerti, var í ferð á Grímsfjalli í -20°c, ástæðan var sú að olían var of þykk til að olíudælan næði að dæla og kertið ofhitnaði.
Þetta er tölvustýrð miðstöð bilanagreinar eru til á Akureyri og í Rvk.
Hrein snilldar græja vafalaust er Webastó engu síðri.
Óli Hall
15.11.2005 at 21:29 #532480Það var Hydronic held ég 90%-fór með hana að minsta kosti til Turbo í reykjavík en ég er ekki að segja að hún sé verri ég lenti bara í þessu vesini með að hún kveikti ekki á stundum í kulda það var kertið sem þurfti að skifta um -en engin bilun hefur átt sér stað í Webasto og nota ég hana mikið
kv Tryggvi
15.11.2005 at 21:40 #532482Ég held að það sé ekki neinn afgerandi verðmunur á þessum tveim tegundu(Webasto, Eberspacher). Ég held að þetta sé aðallega hvora tegundina þú vilt setja í bílinn.Ég er að setja Eberspacher í Patrolinn minn og kaupi hana hjá Túrbó. Ég er hins vegar aðeins öðruvísi en flestir þar sem ég er með tvær fjarstýringar og klukku. Hún kemur væntanlega til með að kosta ca 120-130 þús í komin ef allt stenst. Ég tók B5 eftir að hafa spjallað við þá hjá Túrbó og þegar ég var búinn að tala við Bílanaust og þeir vildu selja mér B4 á 150-160 í komna. Ekki spurning um B5 frá Túrbó
15.11.2005 at 21:43 #532484Sælir
Ég mæli með Webasto sem Bílasmiðurinn er að selja. Ég er búinn að vera með hana í bílnum hjá mér í nokkur ár og er mjög sáttur við hana og einnig við þjónustuna sem ég hef fengið. Miðstöðin er notuð í tvennum tilgangi, annars vegar til að hita bílinn þegar kalt er í veðri og einnig tengi ég hana við pallhýsi sem ég er með á bílnum á sumrin og nota til að kynda það.
Kveðja
Bjarki
15.11.2005 at 21:58 #532486Mér sýnist að á ca 1-2. ára fresti þurfi að skipta um spíss (spítill í olíubrennara) í Eberspacher, en þið félagar er það ekki eins í Webasto miðstöðvum. Þarf ekki að viðhalda þeim eins?
Um að gera að fá sem flestar reynslusögur
Kveðja.
Elli
15.11.2005 at 22:57 #532488Ég er með eldgamla (82 eða 85 módel) Webasto lofthitamiðstöð. Ég setti hana í bílinn hjá mér síðasta haust, þá var hún búin að standa uppi í hillu í ca 4 ár og var lítið notuð fyrir þann tíma. Það þurfti að skipta un einn hitanema í henni áður en hún datt í gang í fyrsta skipti en síðan hefur hún verið notuð á næstum hverjum einasta vetrarmorgni.
Ég er allavegna sannfærður um gæðin 😉
P.s. mér sýnast stundum vera góð verð á ebay.de ég keypti klukku fyrir mína frá þýskalandi fyrir ca 6000, bílasmiðurinn var búinn að nefna 10-15 fyrir svipaða klukku.
17.11.2005 at 13:35 #532490Vita menn hér hvort að 24volta stöð gengur í 12 volta bíl????
Ég á eina sem er úr vörubíl og hafði hugsað mér að reyna að nota hana en kanski er það ekki hægt.Varmakveðja
Austmann
22.11.2005 at 13:23 #532492sæll austmann, ég veit ekki hvort það gengur upp að setja 24 volta miðstöð í 12 volta bíl. Sjálfsagt má fá spennubreyti til að hækka spennuna fyrir miðstöðina en hvort það er ekki farið að taka og mikið rafmagn eða hvað hún eyðir miklu rafmagni yfirleitt veit ég ekki, en þú getur örugglega fengið allar þær upplýsingar í bílasmiðnum sem selur webasto og íhlutum í skipholti sem eiga örugglega til spennubreyti. Ástæðan fyrir að ég svaraði þessu er hinsvegar sú að ef þú getur ekki notað þetta og þér dytti í hug að selja miðstöðina á ég 24v bíl og ætla að fá mér svona miðstöð. En þetta er nú bara svona hugmynd
kv Beggi
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.