FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Aukahljóð í 2L

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Aukahljóð í 2L

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 21 years ago.

  • Creator
    Topic
  • 25.05.2004 at 09:25 #194395
    Profile photo of
    Anonymous

    Sælir félagar, ég er með stuttan Land Cruiser 86 módel með 2L díselmótornum og ég var að setja hann í gang eftir um mánaðar stopp. Nema hvað að þá er komið þetta fallega aukahljóð í hann, sem lýsir sér sem bank uppí lofthreinsara og í rauninni er eins og hann sé að þjappa smá frá einum cylinder framhjá ventli eða eitthvað svoleiðis.

    Haldiði að þetta gæti verið eitthvað annað?

    Haldiði að það sé hægt að gera eitthvað til þess að fá hann til að hætta þessu án þess að rífa heddið af??

    Með von um góð svör frá Gúru-unum á svæðinu.

    Birkir

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 25.05.2004 at 12:10 #503041
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sæll Birkir.

    Ég held það sé ráð fyrir þig að byrja á því að skrúfa ventlalokið af vélinni. það er hugsanlegt að ventill standi hálf opinn, eða eitthvað því um líkt.
    En þú ættir í öllu falli að fá góða hugmynd um hvað er að ef þú kippir lokinu af.

    Emil

    P.s.
    Skoðaðu knástásinn vel í leiðinni. þeir hafa átt það til að slitna óeðlilega.





    26.05.2004 at 09:44 #503045
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég kíki á þetta, vonandi er það ventill sem nær ekki að setjast nógu vel og þarf smá hjálp.

    Ég skoða málið.

    Kv. Birkir





    28.05.2004 at 11:45 #503048
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Og þá kom í ljós að það er einn ventill sem sest ekki nógu vel, eða allavega þá sá ég það að það er einn rokker-armur sem er með áberandi mest bil á milli arms og ventils og við snerum motornum og alltaf var hann með mesta bilið þannig að mig grunar að hann sé að setjast illa, þetta er útblástursventill á cylinder 2, og þegar það var komið á hreint þá settum við saman aftur og í gang með mótorinn. Þá fann maður að það voru lofthögg sem maður fékk uppí lofthreinsarann. Ætli það fari ekki þá högg framhjá útventlinum á 2 og innum annan opinn útventil og framhjá opnum innventli til að gera höggið uppí hreinsara. Allavega þá er þetta það áberandi högg að hann er líklegast að ná að kveikja á cyl 2.

    Næst á dagskrá er þá að setja kannski tvígengisolíu inná díselinn og keyra hann slatta vegalengd, sjá hvort þetta sé bara sót eða eitthvað að þvælast fyrir. Allavega er ekki neitt "sárt" aukahljóð í mótornum, maður hefur ekki á tilfinningunni að það sé neitt að skemmast.

    En vonandi lagast þetta, nú ef ekki þá er það bara af með heddið og skoða málið almennilega.

    Líst ykkur á þetta hjá mér??

    Kv. Birkir





    28.05.2004 at 12:21 #503051
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Kannski að skvetta smá militec líka í olíuna?

    -haffi





    28.05.2004 at 18:29 #503055
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég hef trú á að cylinderinn nái ekki almennilega að tæma sig fyrr en sogventillinn opnar, og þá blási hann á móti inn í soggrein. Þetta er nú sennilega ekki heppilegt til lengdar, ég myndi líta við hjá Þ.Jónsson eða sambærilegu verkstæði og fá ráðleggingar um úrbætur….

    kveðja
    Grímur





    01.06.2004 at 09:38 #503059
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Takk Grímur fyrir gott ráð, það er held ég koinn tími til að leita til fagmannana í þessu máli.

    Kv. Birkir





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.