FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

auka tankur

by Gunnar Freyr Freysson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › auka tankur

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 20 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 12.02.2005 at 00:14 #195472
    Profile photo of Gunnar Freyr Freysson
    Gunnar Freyr Freysson
    Participant

    sælir, ég er að spá í að smíða mér auka tank undir bíllinn og er að velta fyrir mér úr hvaða efni ég ætti að smíða hann. ÁL eða riðfrítt, og þá hvaða efnisþykkt.

    endilega komið með “ komment „

    kv. Gunnar Freyr

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 12.02.2005 at 22:45 #516668
    Profile photo of Bjarki Logason
    Bjarki Logason
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 775

    Hafðu tankinn bara úr rafgalf húðuðu járni og ég mundi hafa 1,25 þykkt, svo þarf að hafa tankinn með þiljum og eins heilan og hægt er. Ekki vera að sjóða hann saman út um allt. Kveðja Bjarki.





    13.02.2005 at 00:39 #516670
    Profile photo of Baldur Gíslason
    Baldur Gíslason
    Member
    • Umræður: 6
    • Svör: 214

    Þetta með suðuna, einnig þá er hræðilegt að MIG sjóða eitthvað sem á að vera þétt. Það eru næstum því alltaf einhver nálargöt í MIG suðu sem að munu leka ef ekki er farið vel yfir þetta. Sama með álið, það getur verið vesen að ná því almennilega þéttu.





    13.02.2005 at 11:38 #516672
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þetta með mig suðuna að það séu alltaf nálargöt í henni er bara hreinlega bull og vitleysa, ef sá sem sýður kann að sjóða þá er þetta ein af einfaldari suðuaðferðum sem til eru. Ég vinn við mig suðu alla daga og að hluta til er það mínum suðum að þakk að það er hitaveita í húsum á íslandi, ég er annar af tveimur suðumönnum sem vinna hjá Set ehf á Selfossi sem er eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir einangruð stálrör og fittings, ég er að sjóða allt frá 3/4 tommu og upp í 20 tommu rör. Við erum að smíða té stykki hné eru soðin frá 2 1/2 tommu og uppúr og allt er þetta soðið með mig suðu og mison 18 gasi.
    5-10% af öllum suðum hjá okkur eru röntgen mynduð samkvæmt sama staðli og olíu og gaslagnir í evrópu eru myndaðar eftir.
    Þessar suður leka ekki nema hreinlega að suðumaðurinn klúðri einhverju.
    Kveðja Gunnar Már





    13.02.2005 at 13:04 #516674
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Heyr, Heyr.

    Sammála síðasta ræðumanni.
    Sá sem kann að sjóða með MIG suðu er með 99% gatfría suðu.
    Ég hef séð suðu eftir "snillinga" (að þeirra sögn) sem héldu ekki.

    Kv.
    Sigurður – 112





    13.02.2005 at 19:16 #516676
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ef ekki til eitthvað kítti sem má smyrja yfir suðurnar til að loka þeim alveg. Einhverntíman var mér sagt að hnoða bara saman aukatank og nota svo eitthvað límkítti sem er ætlað í olíu og bensín til að loka götum og rifum.





    14.02.2005 at 11:56 #516678
    Profile photo of Baldur Gíslason
    Baldur Gíslason
    Member
    • Umræður: 6
    • Svör: 214

    Ef maðurinn er að spyrja hér hvernig hann á að gera þetta þá er hann væntanlega ekki sérfræðingur í MIG suðu.
    Það er nefnilega ekkert mál að gera MIG suður sem halda lofti, EF maður er í mikilli æfingu. Flestir hérna á spjallinu eru það ekki þannig að mis vel gengur að gera þetta.
    Þess má geta að langflestir sem að sjóða felgur með MIG suðu lenda í einhverjum leiðinda smá lekum.





    14.02.2005 at 12:06 #516680
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Kaldvalsað stál er mjög gott í diesel tanka, það er hægt að hafa það þynnra en ál t.d. 1,25mm svo þyngdarmunurinn er ekki mikill. Ágætt að mála allar suður með kvista lakki til þéttingar.

    Ekki nota galvaniserað því olían leysir smám saman galvan-húðina upp og hugsanlegt að zinkið setjist til annar staðar í eldsneytiskerfinu.

    ÓE





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.