Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Auka millikassi í PATROL?
This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Eiríkur Þór Eiríksson 21 years, 1 month ago.
-
CreatorTopic
-
24.10.2003 at 23:33 #193064
Hvernig auka millikassa hafa menn verið að setja í 2,8 TD
Patrol ´95 38″ -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
24.10.2003 at 23:52 #479098
menn hafa verið að setja patrol kassa
svo og amríska kassa en patrol kassar eru ódýrastirtoyota 4ever HSB
25.10.2003 at 09:35 #479100
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ægir rennismiður hefur smíðað mílligír í Patrol úr ?Borg & Warner 1356? millikassa. Aðalkosturinn við þá er gír hlutfallið, sem er 2,7 á móti einum. Ókostur er að hann er frekar langur og dýrari heldur enn milligírinn sem er smíðaður er upp úr Patrol millikassa, BW 1356 kassinn passar ekki aftaná Patrol gírkassann því að fella hann að kössunum báðu megin og þar liggur kostnaðar aukinn.
Ljónstaðabræður smíða milligír úr Patrol millikassa en hann er með hlutfallið tveir á móti einum (en hægt er að fá lægri hlutföll í hann). Ég er með kassa frá Ljónstaðabræðrum í mínum fjallatrukk og í sem stystu máli þá svííín virkar þetta og eiginlega skýtið hvað menn setja þennan búnað seint í miðað við hvað er búið að eyða miklu í glingur.ÓE
25.10.2003 at 12:23 #479102Sælir
Svona fyrir forvitnis sakir hvað skyldi svona aðgerð kosta ca, þ.e. að setja í aukamillikassa?
Hefur einhver sett aukamillikassa í Patrol (ég er með ´90 bíl á 38") sem er á orginal hlutföllum? Nást "eiginleikar skriðgírsins" þannig að fullu?
Ég spyr nú bara eins og asni, er ekki bara óþarfi að setja lægri hlutföll í Patrol, fæst ekki bara ágætis árangur með því að skella sér bara beint í aukamillikassa ?????
kv
AB
25.10.2003 at 12:57 #479104
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sæll Agnar,
það er mikið til í þessu hjá þér allavega í Patrol samhengi, milligír er dýrari en hlutfallaskipti en þú færð líka miklu meira, en þá þarf að fara í milligír sem er með 2.7 hlutfall. Nær maður nokkurn tíman nokkru að fullu, en sumir segja því lægri gír því betra …og ef það er rétt er betra að skipta um drifhlutföll líka.
Ætli sé ekki best að snúa sér til breytingaverkstæðanna með verðin á þessu.ÓE
25.10.2003 at 16:25 #479106Ætli hver verði ekki að meta það út frá sinni notkun hversu lág hlutföll eru "nógu lág". Alla finnst manni þetta vera möguleiki sem vert er að skoða fyrir þá sem hafa hug á að halda í org hlutföllin í öllum venjulegum akstri en eiga samt möguleikann á því að komast í semi-LoLo við erfiðar aðstæður.
kv
Agnar
25.10.2003 at 17:22 #479108Millikassi Milligír Hlutföll
(2,02) (2,7) 1:5,42 1:4,631.gír Hátt Hátt 22 18,8
1.gír Lágt Hátt 44,5 38
1.gír Hátt Lágt 59,4 50,8
1.gír Lágt Lágt 120 102,5 ca 15% munur
25.10.2003 at 19:28 #479110Takk
26.10.2003 at 09:56 #479112Ég hef ekið Landrover Defender þar sem var bara skipt um hlutfall í millikassa en ekki um drifhlutföll og sannast að segja er leiðinlega langt á milli gíra í háa drifinu. Síðan er lága drifið of lágt til að geta náð nema 40-50 km hraða. Og þó ég hafi ekki prófað það, þá hlýtur að vera ómögulegt að nota hádrifið í snjó, enda liggur við að maður þurfi að snuða á kúplingunni til að taka af stað á malbiki.
26.10.2003 at 11:20 #479114Sæll Jón
Ég er sammála því að í flestum jeppum þarf að skipta út org hlutföllum ef stærri dekk eru sett undir. Í Patrol eru org hlutföllin frekar lág 1:4,63 og því er fínt að aka á þeim í öllum venjulegum akstri. Gallinn við þetta er þó að gírhlutföllin í lága drifinu eru kannski heldur of há fyrir erfiðan snjóakstur.
Ætlunin er heldur ekki að skipta út hlutföllunum í millikassanum heldur að setja aukamillikassa í (LoLo gír).
kv
AB
26.10.2003 at 16:12 #479116veit um lo lo kassa úr patrol 1992 beinsk
held að hann sé smiðaður ef ljónstaðabr.. en ekki vissfyrirspurnir sendist á asbyrgi@visir.is
26.10.2003 at 19:27 #479118Nei, Bjarki, gírinn ykkar er smíðaður af Ægi. Þar hafa verið vandamál með öxulinn ekki satt?
kv.
Eiki
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.