Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › auka boost á túrbínu
This topic contains 29 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 17 years, 7 months ago.
-
CreatorTopic
-
03.04.2007 at 11:48 #200059
Getur einhver sýnt mér á myndum hvernig ég set boost mælir fyrir túrbínu og hvernig ég get aukið boostið á toyota hilux 2,4 tdi á justy@visir.is ?
Kv brynjar
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
03.04.2007 at 18:45 #587074
Eða getur einhver sagt mér hvernig á að gera þetta?
03.04.2007 at 20:37 #587076
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
hmmmmm
það ætti að vera slanga sem kemur úr loftintaki, rétt fyrir framan túbínuna og í "veistgeit" ventilinn, taktu hana í sundur og settu "T" stykki og slöngu þaðan inní bíl í mælinn
til að auka boostið er fínt að losa brakketið sem að heldur ventlinum á túrbínunni, 2 boltar, og setja skinnu á boltann á milli túrbínu og brakketsins þannig að brakketið færist fjær túrbínunni
best er að tengja mælinn fyrst til að geta fylgst með boostinu, þannig að ef ein skinna er ekki nóg þá bara setja aðra o.s.fr.
ég hef boostið í mínum um 0,5-0,6 bar
vona að þetta hjálpi
03.04.2007 at 21:51 #587078Sælir!
Ertu búinn að kaupa mæli? Ef þú ert ekki búinn að því væri ekki alveg galið að fá mæli sem sýnir líka psi, það var alltaf talað um að það borgaði sig ekki að þjappa meiru en 7psi inná hilux mótor, þ.e. ef hann er ekki byggður fyrir túrbínu, ég veit reyndar um bíl sem er held ég keyrður einhver 400+þúsund og ekki fyrir löngu var sett á hann túrbína af VM vél (2.4) sem blæs ein 13 psi en það er víst ekkert lát að finna á honum.
Ég held að það sé eina "vitræna leiðin" til að auka þrýstinginn frá túrbínunni sé að minnka framhjá hlaupið, ég ætla að láta ósagt látið um hvað það borgar sig að setja margar skinnur, enda eru þær ein misþykkar og þær eru margar hef líka séð aðra aðferð við að minnka framhjáhlaupið, hún var sú að armurinn á milli membrunnar og lokans var tekin í sundur, styttur og svo soðinn saman aftur.
Svo eru fleiri möguleikar ef þeir eru þá ekki til staðar nú þegar, millikælir, smá auka olía og sverara og opnara púst.
Er þetta original túrbína eða eitthvað eftir ásett, t.d. Garrett eða IHI af subaru?
03.04.2007 at 21:57 #587080Vélin er orginla turbo 2LT og er komin með intercooler.
03.04.2007 at 22:02 #587082
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
og já…..
til að ná settu markmiði með þessu skrúar mðaur upp í olíuverkinu líka, stillir sem sagt túrbínu og olíverk saman
skinnuaðferðin er mun einfaldari en að taka arminn i sundur, betra að fjölga eða fækka skinnum heldur en að vera að taka arminn í sundur, lengja eða stytta og setja svo aftur saman,
maður þarf nefnilega að prufa sig áfrma í þessu
03.04.2007 at 22:40 #587084Mig minnir að orginal 2LT kveiki aðvörunarljós í mælaborðinu við ca 10 psi. Ætti að vera allt í lagi að boosta það miklu.
Ekki vera að fikta neitt í þessu nema hafa mæli. Ég mæli með að þú setjir mælinn vélarmegin við intercoolerinn. Það verður nefnilega töluvert "þrýstingstap" yfir millikælinn (kaldara loft tekur jú minna pláss en heitt loft, og svo er alltaf einhver mótstaða í kælinum, sérstaklega ef hann er íslensk smíði).
Þægilegast er að auka boostið með skinnunum. Hver skinna eykur töluvert, líklega ein 2-3 psi.
Annað, diesel mótor er bara mjög sáttur við að fá fullt af lofti og lítið af eldsneyti, en á sama skapi mjög ósáttur við að fá fullt af eldsneyti og lítið af lofti (öfugt við bensín mótor). Of sterk blanda = ónýtur mótor.
Gangi þér vel.
kv
Rúnar.
03.04.2007 at 23:38 #587086[b:2h0ghm0b][url=http://cgi.ebay.com/ebaymotors/Voodoo-III-MBC-Manual-Turbo-Boost-Controller-0-30-PSI_W0QQcmdZViewItemQQcategoryZ33742QQitemZ280099903884QQrdZ1QQsspagenameZWDVW:2h0ghm0b]Boost controller[/url:2h0ghm0b][/b:2h0ghm0b]
Ég mæli eindregið með þessari vöru, ég er með svona og er alveg hel-sáttur. Nákvæm stilling, ekkert 2-3psi við hverja skinnu. Auðvelt að tengja, wastegate slangan skorin í sundur og boost controllerinn settur á milli.
10.04.2007 at 13:22 #587088Getiði ekki sýnt mér mynd hvar á að setja þessar skinnur til að auka.
10.04.2007 at 19:03 #587090eitthvað að sjá hér
Verst að ég kann ekki að láta myndina birtast, en hér er bein slóð á hana
http://www.123.is/elliofur/albums/-5735 … pg/050.jpg
10.04.2007 at 20:32 #587092ekki geturu set svona rauðan hring eða eithvað í paint um þetta sem á að setja skinnur eða er það þarna á efri myndini sem það sést?
10.04.2007 at 20:56 #587094Sæll Brynjar.
Þessar myndir eru reyndar af annari vél en þú getur kanski áttað þig á því hvað er verið að meina. Færa membruna frá Westegate ventlinum. Þá þarf meiri þrýsting til að yfirvinna gormkraftinn (gormur inni í membruhúsinu, gormurinn stífast við þetta) þar af leiðandi blæs túrbínan hærri þrýsting áður en þrýstingurinn frá túrbínu yfirvinnur gormkraftinn og westegate ventillinn opnast. (framhjáhleypisventill á afgashlið túrbínu)
[url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite/1443:3pbrvpxo][b:3pbrvpxo]Myndir[/b:3pbrvpxo][/url:3pbrvpxo]
Vona að þetta skiljist og hjálpi eitthvað.
Kveðja Halli.
10.04.2007 at 21:07 #587096Sko.
Ég veit ekki hvað þú veist mikið um virkni þessa hluta túrbínunar, þe wategateið.
Pústið af sem kemur út af vélinni fer í gegnum pústgreinina og inní túrbínuhúsið. Þar eru tvær leiðir, önnur í gegnum túrbínuna og hin í gegnum wastegate. Wastegate er ventill sem opnast þegar fyrirfram ákveðinn þrýstingur hefur myndast í blásturshluta túrbínunar. Hann er venjulega lokaður, þannig að pústið fer allt í gegnum túrbínuna þangað til hún er búin að ná upp þeim þrýstingi sem æskilegur er. Þá er blaðka í pungnum lengst til hægri á neðri myndinni sem ýtir stöng/teinn sem liggur úr þeim pung og í arm sem stýrir ventlinum og hleypir umfram pústi beint útí púströrið.
Ég er ekki klár á því hvar menn hafa verið að setja þessar skinnur, þe hvort við viljum lengja eða stytta teininn, ég er bara ekki klár á því í hvora áttina hann fer þegar wategateið er opnað. Það er ekkert mál að sjá það ef þú opnar húddið með bílinn í gangi og gefur honum inn og fylgist með í hvora áttina armurinn fer.En sú aðferð sem ég hef notað þegar ég vill blása meiru, er að nota svona boost controller eins og ég sýndi hérna á link aðeins ofar, sem framleiðandinn kallar voodoo boost controller. Hann er einfaldlega settur á slönguna sem fer úr túrbínuhúsinu og í punginn. Hann er mjög einfaldur, samanstendur af hné, gorm, kúlu og stilliskrúfu og virkar þannig að stilliskrúfan ýtir ákveðið fast á gorminn og kúluna á endanum að það þarf ákveðið mörg pund til að opna lokann. Nú er hilux original að blása um 7 pund. Setjum upp dæmi, boost controllerinn er stilltur þannig að hann opni við 3 pund, og þá er stærðfræðin einföld, 7+3=10 pund sem túrbínan blæs. Þetta er síðan stillanlegt alveg eins og maður vill, og græjunni fylgir að sjálfsögðu stoppró til að stilliskrúfan fari ekki á flakk. Ég mæli eindregið með þessu apparati, kostar skitna 15 dollara + sendingarkostnað, enda keypti ég 3stk
Þetta væri alveg örugglega hægt að orða betur enda er ég hvorki skáld né pistlahöfundur, en ég vona að þetta verði að einhverju gagni.
10.04.2007 at 21:22 #587098Búinn að fatta. takk fyrir
10.04.2007 at 22:09 #587100Er ekki betra að taka teininn sem er á milli wastegate og pústgreinar úr og taka hann í sundur í miðjunni, stytta aðeins, snitta báða enda og setja langa ró uppá hann. Þá getur þú stillt túrbínuna með því að losa annan endann á teininum og skrúfað hann inn eða út. Ég gerði þetta við minna gamla 60 krúser og kom þetta vel út. þar var endinn á pústgreininni festur með splitti og auðvelt að losa og stilla.
10.04.2007 at 23:24 #587102Góð hugmynd!
Hægt að heimfæra það ennfrekar og gera flóknara með að snitta öfugt öðrumegin og fá passandi risaró 😀
Passa bara að hafa stoppró.
11.04.2007 at 11:22 #587104Sælir
Mér þykir þessi skinnu/teina aðferð allt of flókin. Það er mikið einfaldara að fara út í Landvélar og kaupa sér nálaloka og setja hann á slönguna sem stjórnar afgaslokanum. Þetta er aðgerð upp á ca. 1.000.- kr. og er algerlega stillanleg. Virkar eins og lokinn sem ElliOfur bendir á.
Ísetningin tekur ca. 10 mín. og er alger snilld. Við höfum gert þetta svona félagarnir og reynst vel. Ég sjálfur er að nota boost mæli frá Landvélum (er reyndar ekki hugsaður sem slíkur og ekki sérlega skemmtilegur mælir). Ég á því miður engar myndir af þessu hjá mér, en þetta er afskaplega einfallt í framkvæmd.Ég sjálfur hef lengst af verið með gamla mikið slitna 2LT vél og blásið inn á hana 12 Psi. Nú er ég með 2L og blæs ca. 8 psi á hana.
Kv. Emil
11.04.2007 at 11:37 #587106Emil geturu tekið mynd af því og sýnt mér þetta sem þú gerðir og ég er með 2LT 87 árg með intercooler.
11.04.2007 at 11:42 #587108Sæll Brynjar
Villtu ekki kíkja á þetta hjá mér? Er það ekki einfaldast? Ég verð í skúrnum annakvöld, fimmtudagskvöld. Hringdu í mig í 898-8506 ef þú villt kíkja.
Emil
13.04.2007 at 08:54 #587110Sæll Brynjar
það eru komnar nokkrar myndir í albúmið mitt sem þú getur kíkt á.
Emil
13.04.2007 at 13:25 #587112Hvernig túrbína er þetta sem þú ert með herra Emil?
kv
Rúnar
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.