This topic contains 18 replies, has 1 voice, and was last updated by Bergur Pálsson 11 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
02.02.2013 at 19:08 #225508
Mér þykir slæmt hvað er búið að fela auglýsingar mikið á heimasíðunni. Mér þótti ágætt að sjá nýustu auglýsingar á forsíðu.
Hlynur
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
02.02.2013 at 19:33 #763265
Ég er sammála þér Hlynur þetta er nánast það eina sem hreifist hér á síðunni.
02.02.2013 at 19:36 #763267Mikið er ég sammála ykkur félagar !!
kv, Kristján
02.02.2013 at 20:01 #763269Sammála félagar það er ekkert tillit tekið til athugasemda félagsmanna varðandi þetta????
kv Gísli
02.02.2013 at 20:04 #763271Þetta var arfavitlaus breyting og þarf að kippa í liðinn sem fyrst.
Kveðja Trausti
02.02.2013 at 22:08 #763273Sendi póst á vefnefnd í einum grænum.
Kv. SBS
03.02.2013 at 10:03 #763275Nú verð ég að vera sammála Hlyn (líklega í fyrsta skipti).
Ég var mjög virkur á þessari síðu í gamla daga en er eiginlega alveg hættur að kíkja hérna inn.
Að mínu mati er búið að taka margar rangar ákvarðanir í sambandi við rekstur síðunnar síðustu ár.Kv. Smári
03.02.2013 at 13:10 #763277Því miður er þessi síða nánast dauð, vegna röð mistaka sem gerð hafa verið á síðunni, öll umræða, myndir og auglýsingar búið að færast yfir á Jeppaspjall.is vegna þessa.
t.d það sem mætti laga:
Mynda-síðan hún er einhvernveginn svo óaðgengileg og óspennandi. Vantar svona slideshow af myndum svipað og var á gömlu síðunni þ.e svona til hliðar þegar maður er á spjallinu, ef þið skiljið hvað ég meinaleyfa öllum að vera með á síðunni hvort sem þeir séu meðlimir eður ei, skítkast mun alltaf vera til staðar og menn verða bara sætta sig við það, þá er líka alltaf hægt að henda mönnum út ef skítkastið verður of mikið.
Legg til að vefnefnd reyni að sameinast jeppaspjalli á einhvern hátt þannig að alliir jeppamenn séu á einni síðu.
03.02.2013 at 13:46 #763279
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég er alveg sammála síðust ræðumönum hérna þetta er komið í tóma vitleysu uppsetninginn á þessari síðu og vonandi að menn sjái sér fært að taka þessi tilmæli til sín og reyna að fara eftir þeim.
03.02.2013 at 16:36 #763281sammála með auglýsingarnar,
einnig verð ég að vera sammála því að það var til vansa að loka á skrif manna sem voru ekki í félaginu,
Jeppaspjallið er að mestu tekið yfir með skemmtilega breytingaþræði og annað slíkt, annað sem ég hef tekið eftir á jeppaspjallinu sem er held ég öllum opið að ég verð ekki var við neitt skítkast á þeirri síðu frekar en á 4×4
sem segir manni það helst að jeppamenn og konur séu heilt yfir frekar kúltiverað fólk,
Ég fylgist einnig með síðum tengdum hestamönnum og þar logar allt í illmælgi, svívirðingum og dónaskap og virðist engu skipta hver á í hlut þar.
en það þarf litlar breytingar að gera til að gera þennan vef öflugri, Ég vil bara hvetja menn að setja inn myndir og lýsingar á þeim verkefnum sem þeir eru að vinna í , það er það sem gefur þessum vef gildi.
Og svo fjölfötlun mín þegar tölvur eru annars vegar, mér gengur skelfilega að setja inn myndir hér, síðast kom bara alltaf melding á að myndirnar væru of stórar, alveg sama hvaða smælki ég dró fram.
Og svo í blálokin vil ég þakka þeim fyrir sem lagt hafa á sig mikla vinnu í vefnefnd, ferðanefnd skálanefnd og öllum þeim öðrum störfum sem unnin eru á vegum félagsins,sumir eru að leggja mikið af mörkum til að gera þetta starf öflugrakv Ólafur
03.02.2013 at 23:21 #763283Ég held að flestir sem að eru á jeppaspjalli.is séu líka í f4x4.is þannig að þetta er bara sami klúbburinn í gruninn held ég.
Ég held að það vanti bara eitthvað tjáningar frelsi inn á f4x4.is fyrir alla sem að eru inn á jeppaspjall.is .
Og við erum öll með sama áhugamál sem að er ferðafrelsi,jeppar,rökræður,til sölu og er að selja, gps, ferlar og ALLT HITT.f4x4.is þarf að vera opin fyrir fólki sem að vill tjá sig og viðra sínar skoðannir.Kv. Ragnar Páll
19.02.2013 at 19:14 #763285sé að það er allt að gerast í þessum auglýsingamálum, kominn enn einn linkurinn til að klikka á………….
Þurfa menn ekki að fara taka hausinn útúr rassgatinu á sér og skoða umhverfið. Hlusta á félagsmenn, og ekki bara hlusta, heldur framkvæma eitthvað af því sem menn eru sammála um. Ef það er svona erfitt eins og raun ber vitni í allri þessari vefsíðugerð, þarf þá ekki að fá einhverja hæfa menn í þetta, sem nenna, hafa tíma, kunnáttu og já kannski fá borgað fyrir þetta fyrst enginn nennir að sinna þessu.
kv, Kristján
20.02.2013 at 10:28 #763287Sæll Kristján.
Svona orðbragð og munnsöfnuður finnst mér mjög óviðeigandi hér á spjallinu. Ég er til í að samþykkja lokun á þig í einhvern tíma frá spjallinu ef það verður borið upp á fundi. Við erum þrír í vefnefnd og þurfum að vera samþykkir öllum breitingum á síðunni. Það er verið að gera tilraunir með efni sem varðar klúbbinn á mjög þröngu svæði síðunnar. Það vill svo til að tími er mjög takmarkaður hjá vefnefnd. Vefnefnd gerir margt annað fyrir klúbbinn en að breita síðunni. Það er verið að finna launaða menn til að sjá um vinnu sem við komumst ekki yfir eða höfum ekki þekkingu á svo sem forritara og fl. Við erum ánægðir ef menn segja sitt álit hér á spjallinu en með öðrum formerkjum.
Kv. SBS.
20.02.2013 at 10:45 #763289Flott hjá þér Siggi, ef þú ætlar að gera það máttu endurgreiða mér félagsgjaldið sem ég er búinn að greiða en ekki fengið neina staðfestingu á og segja mig úr klúbbnum í leiðini.
Flott að þessi leið að loka á menn á spjallinu er enn við lýði.
Góðar stundir
kv Kristján
20.02.2013 at 11:44 #763291Við skulum viðhafa almenna mannasiði hér í textanum. Svona lagað getur haft í för með sér að klúbburinn verði vefnefndarlaus. Þetta er verkefni fyrir að lágmarki fimm manns ef vel á að vera. Ég held að menn ættu aðeins að kæla sig niður. Á þessu afmælis-ári er mikið um að vera hjá klúbbnum og vantar mannskap í ýmsa sjálfboðavinnu vegna þess. Ég veit að þú og þínir félagar hafa oft tekið til hendinni svo um munar fyrir klúbbinn.
Kv. SBS.
21.02.2013 at 00:02 #763293Ein spruning SBS:
Þér hefur aldrei dottið í hug að loka á sjálfan þig þegar þú ert að "skjóta á" aðra sem eru að vinna fyrir klúbbinn?
Opna aldrei þessa síðu orðið – ekkert að frétta hér nema vesen og leiðindi.
Sem er kannski bara frábært, því grasrótin er öll á jeppaspjallinu, sem er frábært framtak til að viðhalda umræðu og skoðunarskiptum um jeppamál.kv. Atli E.
21.02.2013 at 00:55 #763295Það er óþarfi að breyta bara til að breyta. Myndaalbúmið er ágætis dæmi um breytingu sem gerði sig ekki. Auglýsingarnar hafa alltaf haft mikið aðdráttarafl og eflaust verið mikið meira skoðaðar en spjallið. Núna er búið að fela þær og jarða, gera þær mjög óaðgengilegar. Ég sé bara ekki nokkra þörf á því að fela auglysingarnar eins og er gert núna.
Góðar stundir
21.02.2013 at 10:34 #763297Sælir.
Það er satt Atli. Ég má stundum passa mig líka. Þú ert líklega að tala um karla-grobbs-húmorinn í mér á Þorrablóts-þræðinum ykkar. Einnig var ég töluvert önugur vegna gangs mála hér áður fyrr í vefsíðumálun eins og menn eru hér núna. Það er nú bara svo að í fjölmennum klúbbi eins og við erum í og fáar hendur við vinnu að hlutirnir ganga seint. Svona til að menn átti sig á reglum spjallsins sem er grafið þar sem fáir vita um þá er tengill á þær hér. [url:2rhzgtfe]http://f4x4.is/index.php?option=com_content&view=article&id=859&Itemid=238[/url:2rhzgtfe] Svo vonum ég að spjallið verði notað og menn viðhaldi skoðunum sínum hér.
Kv. SBS.
21.02.2013 at 11:00 #763299Heilir og sælir félagar,
Til skýringa:
Hægt er að breyta í 4 tíma eftir skráningu.
Eftir það er hægt að setja inn nýtt innlegg eins oft og vill, fyrir neðan auglýsinguna.Málið er að það þurfa að gilda sömu reglur fyrir spjallið og fyrir auglýsingarnar, í okkar tæknilegu lausn. Slatta vinna að skipta spjallinu upp. Þetta hefur oft verið skoðað og ávallt sama niðurstaða, síðustu ca. 5 ár.
Hugsanlega er þetta sveigjanlegara í nýrri útgáfum BB og við könnum það, var ekki síðast.Það eru yfirleitt að koma inn mikið fleiri auglýsingar á hverjum degi, heldur en maður sá á forsíðunni (þær hurfu niður af listanum). Ef þú vilt fylgjast með nýjum auglýsingum er engin góð leið önnur en að fara á innri síðurnar. Þær eru svipaðar öðrum spjallborðum. Önnur lausn er að við höfum meira á forsíðunni (sem er líka mjög áhugavert) en eitt af því sem menn hafa fundið að forsíðunni er að það þurfi að scrolla svo langt niður, eftir efni. Við viljum reyna að leiða notendur inn á þær síður sem gefa ríkar upplýsingar um valið efni, þess vegna er topp 12 nýjustu auglýsingarnar ekki lengur á forsíðunni. Gefum því séns eitthvað aðeins lengur
Vona að þetta skýri málin aðeins. Bið menn um að dempa orðaval áfram, það hefur verið vönduð umræða á spjallinu í vetur. Höldum því áfram,
Við auglýsum áfram eftir fleirum í vefnefndina. Vefnefnd(hjá)f4x4.is.
kv,
Bergur
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.