Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Árshátíð 2008
This topic contains 67 replies, has 1 voice, and was last updated by Magnús Hallur Norðdahl 16 years, 1 month ago.
-
CreatorTopic
-
29.09.2008 at 22:47 #202981
viljum vekja athygli á könnun hér á síðunni um mætingu á árshátíð. Endilega taka þátt svo við vitum hvort 20 eða 200 ætla að mæta.
svo vantar tilnefningar og hugmyndir einhverju sprelli, tjáið ykkur, ekki vera feimin, við bítum ekki fast.
Skemmdin -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
30.09.2008 at 11:58 #630020
það er líka hægt að senda póst á skemmtinefnd@f4x4.is farið verður með allan póst sem trúnaðarmál. Dælið nú á okkur öllum þeim óþvera sem ykkur dettur í hug.
Skemmdin
30.09.2008 at 13:47 #630022Hverjir sitja í skemmtinefnd?
kv Gísli
30.09.2008 at 15:35 #630024það væri líka gaman að vita meira um árshátíðina. T.d. hvar hún verði haldin og fleira sem gæti hjálpað við að ákveða hvort mann langi eða ekki.
Emil
30.09.2008 at 21:54 #630026fyrst Gísli, það situr enginn í skemmtinefnd, en nokkrir standa á haus við árshátíðar undirbúning.
svo Emil, það er öruggt að árshátíðin verður 1. nóv, annað sem er ákveðið er að hún verður á höfuðborgarsvæðinu. Það er verið að klára að semja um sal, verð, hljómsveit, veislustjóra og eitthvað meira. Verður að öllu óbreyttu klárað í þessari viku. Þá koma nánari fréttir.
Númer þrjú, þetta verður flott kvöld það er öruggt.
Skemmtikveðjur Skemmdin
01.10.2008 at 08:49 #630028Er það bara mér sem þykir það frekar dapurlegt að sá eða sú sem skrifar fyrir hönd skemmtinefndar skuli ekki gera það undir nafni?
Skammast fólk sín kanski fyrri það að vera að vinna fyrir klúbbinn?Kv.
Emil Borg
01.10.2008 at 09:26 #630030Ég ætla að vona að menn ætli ekki að fara að persónugera árshátíðina og láta það ráð hver er að sjá um hana hvort fólk mæti eður ei, allavega er mér alveg sama hver er að sjá um undirbúninginn ef niðurstaðan verður áhugaverð þá mæti ég.
Kveðja Þorgeir
01.10.2008 at 09:38 #630032Það er til fólki sem er að legga þessu félægi lið sem vill vera ekki sínileg, ekki það að það skamist sín fyrir félagið heldur það lætr verkin tala, en ekki tala um þaug. Það á kanski um Skemmtinemd það eru nógu margir til að setja út á alla hluti
og kenna öðrum um hvesu ílla fór. Það eru ekki allir svona málglaðir eis og við Emil og viljum vera áberandi í þessun félagskap. Verum jákvæðir manni líður betur þanig .kv,,, MHN
01.10.2008 at 10:13 #630034Ég get bara ekki séð neitt að spurningu minni eða Emils mér sýnist þetta bara vera forvitni
allavega fyrir mína parta.
ég get ekki séð að nein neikvæðni eða skítkast hafi komið þar við sögu það er nú bara þannig að allar nefndir eru birtar í flipanum nefndir og þar sá ég ekkert um skemmtinefndina einnig veit ég að það er búið að vera að leita að fólki í skemmtinefnd og ég hreinlega hélt að það væri fundið og vildi því vita hvaða hetjur það væru til að geta óskað þeim til hamingju svo hættið þessum útúrsnúningi:(
Gísli Þór
01.10.2008 at 10:33 #630036Það er bara snilld að það skuli vera einhver sem nennir að skipuleggja árshátíðina fyrir okkur – skemmtinefnd eða ekki og nafnlaus eða ekki… skiptir bara nákvæmlega engu máli..
Það er bara klárt mál að þeð verður gaman á árshátíðinni og ég ætla allavega að mæta – sérstaklega þar sem að þetta er núna í Reykjavík…
Benni
01.10.2008 at 13:41 #630038skemmtinefndin bað um að fá að starfa undir nafnleyndi í nokkra daga.
En við þökkum þá tölvupósta sem við höfum fengið og endilega senda meira á okkur, myndir og hvað sem ykkur dettur í hug.
Skemmdin
01.10.2008 at 15:24 #630040Er það ekki bara gott skemmtiatriði á árshátíðinni að komast að því hverjir eru í skemmtinefnd.
Ég skora á skemmtinefndina að halda nafnleyndinni og koma ekki fram fyrr enn á árshátíðinni.
Tóti
01.10.2008 at 15:56 #630042Á landsfundinum sagði Sveinbjörn frá því að það hefði verið gerður samningur við Teiti veisluþjónustu, um að halda árshátíðina á 25 ára afmæli klúbbsins og hún yrði á Hótel Íslandi.
Spurning til skemmtinefndar eða ekki skemmtinefndar hefur því verið breytt ???Kveðja
Agnes karen Sig
01.10.2008 at 18:52 #630044Mig langar rétt að spurja hvort ekki sé möguleiki að árshátíðin verði haldin sömu helgina sem jeppasýningin er það mundi örugglega henta okkur sveiavörgunum betur að sameina túrinn í borgina.
Keðja Groddi5
01.10.2008 at 19:22 #630046Þetta er snilld, algerlega í anda finnsku snillinganna í Lordi og ef ég man rétt (þó það hafi verið fyrir mína tíð) gerðu ekki Stuðmenn eitthvað svipað þegar þeir komu fyrst fram á sjónarsviðið?
01.10.2008 at 19:22 #630048Spurning hvort það verði skrímslabúningar?
01.10.2008 at 21:42 #630050hvenær er árshátiðin svo. Og afhverju í borg óttans en ekki tildæmis á Ísafirði eða Egilsstöðum
kv Heiðar U-119
02.10.2008 at 10:13 #630052Þórarinn kom með góðan punkt, kannski við verðum bara nafnlaus og ef illa fer þá verðum við ekki afhjúpuð nei auðvitað verður þetta rosalega flott og komin tillaga að einu skemmitatriði á árshátíðinni að uppljóstra hverjir eru í nefndinni.
Agnes, stjórn var búin að tala við Teiti, ekki semja við þá. Skemmtinefndin ræddi við þá og aðra aðila og gengið hefur verið við samninga við annan.
Groddi5 það var rætt að hafa þetta sömu helgi og sýningin sem hefði verði besti kosturinn. En komumst að þeirri niðurstöðu að það væri einfaldlega ekki framkvæmanlegt. Það hefði þurft mikið lengri undirbúning og eins og staðan var fyrir rúmri viku þegar skemmtinefnd fór af stað var þetta of stuttur fyrirvari. Nú er ekki bara gott fyrir ykkur sveitavargana að hafa tilefni til að fara tvær helgar í borg óttans ?
Já Tryggvi góður punktur aldrei að vita nema við komum fram í skrímslabúningum.
Heiðar, síðustu tvær árshátíðir hafa verið haldnar úti á landi, þess vegna var ákveðið að halda árshátíðina í ár í borg óttans.
nóg í bili
Skemmdin
muna að senda okkur skemmtinefnd@f4x4.is
02.10.2008 at 10:34 #630054Verður ekki bara að halda næstu árshátíð að ári á landsbyggðinni.
Mæli með Egilsstöðum næst þar sem það er oftast flugfært þaðan.
Heiðar er ekki bara málið að panta húsið 😉 halda svo jeppasýningu í leiðinni.
4×4 East Hátíð eða þannig
Kv Dolli
02.10.2008 at 11:26 #63005670 -80 % félagsmanna búa á Höfuðborgarsvæðinu.
Síðustu tvær árshátíðir hafa verið á landsbyggðini
Allar Sumarhátíðir eru á landsbyggðinni.Ef gæta á jafnræðis þá ættu næstu 6 – 7 árshátíðri að vera á höfuðborgarsvæðinu.
Og hana nú….
Benni
P.S. Hveragerði er nú samt varla á landsbyggðinni… Sú árshátíð var flottasta skemmtun sem ég hef farið á í áraraðir…
02.10.2008 at 14:30 #630058Ójá Reykjavík ROKKAR örugglega feitt 1. nóv.
Kv Lella
sem bíður spennt eftir nánari upplýsingum
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.