FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Árósarsamningurinn

by Jón G Snæland

Forsíða › Forums › Spjallið › Umhverfismál › Árósarsamningurinn

This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson Guðmundur G. Kristinsson 13 years, 9 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 06.09.2011 at 20:45 #220297
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant

    Nú er búið að fullgilda Árósarsamninginn sjá: http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?lidur=lid20110906T113320&end=20110906T113617&horfa=1

    um breytingu á ýmsum lögum vegna fullgildingar Árósasamningsins.
    (Lagt fyrir Alþingi á 139. löggjafarþingi 2010–2011.)
    .
    Við fullgildingu Árósarsamningsins eig réttindi útivistarfólks að verða betri og aðgengi að upplýsingum og kærum markvissara. Ef nú verður hægt að senda kærur eða kvartanir beint á kærunefnd umhverfis og auðlindamála.

  • Creator
    Topic
Viewing 2 replies - 1 through 2 (of 2 total)
  • Author
    Replies
  • 08.09.2011 at 09:21 #736793
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Það var vísað í þennan samning í athugasemdum um Vatnajökulsþjóðgarð og einnig í athugasemdum um breytingar á náttúruverndarlögum vegna ónógs samráðs í báðum þessum málum. Stjórnvöld höfðu ekki einu sinni fyrir því að svara þessum athugasemdum og ég tel ekki að það skipti miklu máli þó búið sé að samþykkja þetta formlega. Brotavilji stjórnvalda og sérstaklega umhverfisráðherra varðandi samráð við almenning og félagasamtök í þessum málum er svo beinskeittur að þessi samþykkt skiptir öruglega ekki miklu máli.

    Nýjasta dæmið um þetta er umræðan um Hofsjökulsþjóðgarð, sem komin er í gang áður en búið er að klára stækkun á friðlandi í Þjórsárverum. Stjórnvöld (umhverfisráðherra Vinstri grænna) ætla að keyra þessi friðunarmál fram með hörku og markmiðið hefur ekkert með náttúruvernd að gera, því þetta er heilög barátta Vinstri grænna til að koma í veg fyrir virkjanir og þar með uppbyggingu á atvinnu í landinu.

    Gott dæmi um vinnubrögðin hjá stjórnvöldum er friðunin á Langasjó, en Einar Haraldsson óskaði eftir upplýsingum varðandi gögn um friðunina þegar hún var tilkynnt og eiga að liggja fyrir samkvæmt lögum þegar friðað er. Þetta lá ekki fyrir við ákvörðunina og er gott dæmi um vinnubrögðin í heilagri baráttu gegn virkjunum sem ekki einu sinni er hægt að vinna samkvæmt lögum. Þessi mál eiga síðan eftir að bíta í bakið á Samfylkingunni sem styðja leynt og ljóst við þessa heilögu baráttu Vinstri grænna.

    Í Svíþjóð voru ákvæði um samráð í þessum málum höfð í hávegum, enda þar um að ræða borgarlegt lýðræðislegt stjórnmálaumhverfi. Þar var unnið markvisst með almenningi og félagsamtökum og þeirra sjónarmið virt og höfð til hliðsjónar í ákvörðunum. Þar er eftir því sem best er vitað, gott samkomulag um öll þessi mál og ekki um að ræða stríð stjórnvalda gagnvart almenningi eins og er hér á landi. Ég minni á tvær blaðagreinar frá 9 félagsamtökum sem birtar voru í Fréttablaðinu á síðasta ári og allir ættu að skoða. Þær segja allt um stöðuna í þessum málum hér á landi. [u:7y811aa7]Við búum í landi þar sem réttindi almennings og frjálsra félagasamtaka eru fótum troðin.[/u:7y811aa7]

    [b:7y811aa7]Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hlusti á almenning
    https://old.f4x4.is/attachments/952_Ferd … es2010.pdf

    Samráðsleysi stjórnar og ráðherra[/b:7y811aa7]
    http://www.ferdafrelsi.is/felagsamtok_g … rs2011.pdf

    Guðmundur G. Kristinsson





    08.09.2011 at 11:31 #736795
    Profile photo of Guðmundur G. Kristinsson
    Guðmundur G. Kristinsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 240

    Það er einnig áhugavert að skoða kveikjuna að greinarskrifum 9 félagasamtaka um samráðsleysi stjórnvalda, en það var grein frá stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem þeirra sýn á samráð kemur vel fram. Skoðið þessa grein:

    [b:3lev25s8]Vatnajökulsþjóðgarður fyrir alla[/b:3lev25s8]
    https://old.f4x4.is/attachments/952_Stjo … ov2010.pdf

    Guðmundur G. Kristinsson





  • Author
    Replies
Viewing 2 replies - 1 through 2 (of 2 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.