FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Arnarvatnsheiði

by Steinunn Arndís Auðunsdóttir

Forsíða › Forums › Spjallið › Færð á fjöllum › Arnarvatnsheiði

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Þorsteinn Svavar McKinstry Þorsteinn Svavar McKinstry 18 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 10.04.2007 at 17:20 #200099
    Profile photo of Steinunn Arndís Auðunsdóttir
    Steinunn Arndís Auðunsdóttir
    Member

    Nú spyr sú sem ekki veit, er hægt að fara að norðan og yfir Arnarvatnsheiðina niður í Húsafell í byrjun maí að öllu jöfnu?

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 10.04.2007 at 17:24 #587550
    Profile photo of Steinunn Arndís Auðunsdóttir
    Steinunn Arndís Auðunsdóttir
    Member
    • Umræður: 3
    • Svör: 4

    …ég er á óbreyttum Nissan Terrano





    10.04.2007 at 17:49 #587552
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Það er venjulega ekki hægt. Yfirleitt er ekki opnað upp á Arnarvatnsheiði að norðanverðu fyrr en í júní. En leiðin frá Arnarvatni stóra og suður-um er mjög erfið, stórgrýtt og drullupyttir á milli.

    kv. Ólafur





    10.04.2007 at 18:08 #587554
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    ekki gleyma Norðlingafljóti en það gæti verið vatnsmikið á þessum tíma.
    kv
    Agnar





    12.04.2007 at 15:29 #587556
    Profile photo of Ragnar Friðrik Gunnlaugsson
    Ragnar Friðrik Gunnlaugsson
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 6

    Það var verið að laga leiðina sunnan megin í sumar, nú veit ég ekki hvort að það var farið alla leið að Arnarvatni en a.m.k. er hluti af leiðinni sunnan megin frá orðinn mun betri en hún var.





    12.04.2007 at 15:41 #587558
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Leiðin að norðan úr Miðfirði upp að Arnarvatni stóra var líka löguð fyrir nokkrum árum og er ágæt. S.l. sumar var leiðin frá skálunum við Arnarvatn stóra, suðurfyrir vatnið og að Skammá líka löguð, en þó aðeins þannig að farið var með vél á egg-grjótið og það mulið að einhverju leiti niður. Það breytir ekki því að leiðin er samt ófær óbreyttum bílum í maí og amk vel fram í júní, vegna drullupytta. Ég þekki ekki leiðina þaðan og suðuryfir, en gruna að hún sé enn stórgrýtt og erfið yfirferðar.

    kv. Ólafur M.





    12.04.2007 at 21:01 #587560
    Profile photo of Þorsteinn Svavar McKinstry
    Þorsteinn Svavar McKinstry
    Member
    • Umræður: 6
    • Svör: 162

    Leiðin sunnan flugvallar er orðin nokkuð góð og í raun fær öllum jeppum með lagni og varkárni. En slóðinn er vægast sagt grófur og leiðinlegur norðan flugvallar lang-leiðina að veiðiskálanum við Arnarvatn stóra. Grýttur og runnin, skorin og með egghvössu flögugrjóti á köflum. Þá er hann ógreinilegur jafnvel á stundum, eins og víðar á heiðinni.
    Ekki er ráðlegt að fara um vegi og slóða fyrr en "opnað" hefur verið af veiðifélaginu sunnanmegin. Oftast er opnað um miðjan júní og eru vegir þá í þokkalegu standi en fari menn fyrr geta þeir lent í alvarlegum vandræðum og festum. Árlega liggur mér við að segja, festast einhverjir kjánar upp að speglum sem ekki geta beðið. Er oft mjög erfitt og kostnaðarsamt að veita þeim björgun. Ef Vegagerðin veitir ekki góðar upplýsingar um vegin yfir Arnarvatnsheiði má reyna að slá á þráðin til Snorra á Augastöðum en hann er veiðivörður þar fram-frá og þekkir þetta allt manna best. Þá eru trökk eftir mig í safni ykkar af flestum slóðum af heiðinni sunnanverðri, sem Bessi setti inn. Þar má sjá að í raun eru þrjár leiðir yfir heiðina. Aðalvegurinn, Leggjabrjótur og svo slóði um Langaás sem engin ætti að fara nema með kunnugum.

    Kveðja

    Steini
    Bóndi í Hálsasveit





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.