FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Arnarvatnsheiði

by Sveinn Guðmundsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Arnarvatnsheiði

This topic contains 3 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Jónas Hafsteinsson Jónas Hafsteinsson 19 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 14.07.2005 at 13:03 #196096
    Profile photo of Sveinn Guðmundsson
    Sveinn Guðmundsson
    Member

    Hafa einhverjir farið Arnarvatnsheiði nýlega? Ég er að pæla í að fara frá Húsafelli í Arnarvatn og svo áfram Stórasand og Grímstunguheiði niður í Vatnsdal.
    Hvernig er vegurinn þarna og hvað gæti þetta tekið langan tíma.

    Kveðja Sveinn

  • Creator
    Topic
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)
  • Author
    Replies
  • 15.07.2005 at 13:09 #524942
    Profile photo of Vilhjálmur Ingi Halldórss
    Vilhjálmur Ingi Halldórss
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 86

    Sæll Sveinn

    Ég fór núna um síðustu helgi upp á heiði, fór upp úr Húsafelli. Vegurinn upp að Álftakrók er bara lélegur en þó fær. Við fórum á Hilux á 31" fórum á nokkrum stöðum upp undir en ekkert sem eyðilagði. Ég hef ekki farið yfir Leggjabrjót síðan í fyrra sumar og hann stendur alveg undir nafni. Þar eru beittir steinar sem geta skorið og hann er frekar illfær en þó hægt að komast yfir hann. Og þá ertu kominn að Arnarvatni stóra og þaðan hef ég alltaf farið niður í Miðfjörð þannig að ég veit lítið veginn sem eftir er en vegurinn niður í Miðfjörð er mjög góður.
    Frá Húsafelli og upp að Álftakrók(skáli) er það 1 1/2 tími það er fallegt þarna upp frá og ekki leiðinlegt að taka stöngina með.
    Kv. Villi





    18.07.2005 at 16:49 #524944
    Profile photo of Sveinn Guðmundsson
    Sveinn Guðmundsson
    Member
    • Umræður: 8
    • Svör: 38

    Fórum á tveim bílum úr Reykjavík um Kaldadal, Hallmundahraun, Arnarvatnsheiði, Stórasand og Grímstunguheiði niður í Vatnsdal. Leiðin um Arnarvatnsheiði og Stórasand er ekki spennandi. Þegar við komum í Álftakrók fórum við veginn upp af skálanum í stað þess að fara Leggjarbrjót. Báðir bílarnir voru á 38" dekkjum sem gerði að við þurftum ekki að hugsa mikið um að grjót rækist upp undir bílana. Þetta er mjög seinfarin leið og enn seinfarnari fyrir bíla sem eru á minni dekkjum og myndi ég ráðleggja þeim að láta þessa leið eiga sig nema þeir hafi nógan tíma. Þarna er á köflum stórgrýttur og mjór slóði þannig að maður néri oft dekkjunum báðumengin við grjótið. Einnig er vegurinn mjög hlykkjóttur sem gerir að aftari hjólin fara upp á grjótið í kröppustu beyjunum. Það er lítið um bleytu þarna enda nánast eingöngu grjót en á milli koma fallegir grasbalar þar sem getur orðið drulla ef rignir mikið.

    Grímstunguheiðin er allt í lagi og ekkert mál að fara hana.

    Skyggni var lélegt og byrjaði að rigna hressilega þegar við vorum komnir í Álftakrók og hélst rigningin með smá hléum allan tíman.

    Það er ábyggilega gaman að fara um svæðið fyrir norðan Langjökul þegar einhver snjór er þar. En að sumri til ætla ég að láta þetta svæði eiga sig.

    Kveðja Sveinn





    18.07.2005 at 20:41 #524946
    Profile photo of Jónas Hafsteinsson
    Jónas Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 281

    Fór þessa leið fyrir nokkrum árum á Unimog og þótti nóg um, slapp þó með öll dekkin heil.

    Jónas





  • Author
    Replies
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.