This topic contains 34 replies, has 1 voice, and was last updated by Óskar Hafþórsson 20 years ago.
-
CreatorTopic
-
19.10.2005 at 14:27 #196480
JÆJA nú er komið að árlegri Trúðaferð í Setrið.
Það er kannski rétt að rifja upp síðustu ferð
https://old.f4x4.is/new/forum/?file=ferdir/3988
áður en ofurhugar skrá sig,
Nánari upplýsingar á Trúðasíðunni
Kveðja Lella -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
31.10.2005 at 13:43 #529662
Jæja nú er þetta alveg að bresta á.
Komið fullt af snjó og útlit fyrir mikið gaman
það fer hver að vera síðastur að komast með
Kveðja Lella
02.11.2005 at 14:48 #529664Nú erum við farin að sjá spánna – örugglega fullt af snjó á uppeftirleiðinni og síðan krapi og vatnavextir á heimleiðinni…. Sem sagt bara gaman.
Kannski gerist þetta:
Kannski missum við bíl niður í Þjórsá – eins og í fyrra,
Kannski drekkir Lúther Pattanum – eins og í fyrra,
Kannski fer Lella í Jafnvægisæfingar – eins og í fyrra,
Kannski fer Stebbi í kafbátaferð – eins og í fyrra,
Kannski brjótum við hásingu – eins og í fyrra,
Kannski brjótum við drif – eins og í fyrra,
Kannski brjótum við kúlulið – eins og í fyrra,
Kannski skiljum við eftir amerískan bíl – eins og í fyrra,
Kannski þora rotturnar úr bænum – eins.. Nei annars það gerðist ekki…Annars hvet ég Kayakræðara til að skrá sig – það verður örugglega nóg af vatni…..
Eitthvað eftir af plássi í ferðina – en lítið þó.
Benni
02.11.2005 at 16:16 #529666Ég held sveim mér þá að það hafi allir mist kjarkinn, þeir hafa væntanlega séð það að ef við endurtökum leikin frá því í fyrra þá verði það þeim ofraun.
Kveðja. Þorgeir
02.11.2005 at 17:09 #529668Eru menn orðnar algjörar mýs,
þora ekki einusinni að svara kvað þá að þeir þori á fjöll.
Kveðja Þorgeir
02.11.2005 at 17:29 #529670þorir engin með ykkur, eru ekki til neinir áhættu fíklar lengur, vilja menn ekki ævintýrir. Ég hefði verið til ef ég hefði ekki lofað að taka nokkur farlama gamalmenni inn að Hlöðufelli. En gamalmennin halda að Hlöðufell sé hið eina sanna ( Heilagafjallið ) þannig að þetta er einskonar pílagrímsför. Maður er semsagt kominn í pílagríms bransann. Ég vona þó ykkar vegna að þið lendið í ófærð, krapa og almennum hremmingum. Góða ferð.
02.11.2005 at 18:38 #529672verðu karóki upp í skála
skari
02.11.2005 at 19:10 #529674Það verður sko Íslandsmeistarmót í
ABBA-fjalla-söng
Glæsileg verðlaun verða í boðinu
Kveðja Lella
02.11.2005 at 23:27 #529676Ég væri til í að fara með ykkur aftur ef ég væri ekki búinn með olíukvótann en fæ ég að fara í nýliðaferð með ykkur
kveðja Jón Bergmann
02.11.2005 at 23:38 #529678Byrjaði ekki nýtt olíukvótaár núna 1.nóv.
Nýliðaferðin verður kynnt í næsta Setri á mánudagsfundinum og hér á heimasíðunni þegar búið verður að hníta lausa enda og þá sést hvort þú ert gjaldgengur í hana.
Kveðja Þorgeir
03.11.2005 at 00:15 #529680Má laga til,en hvenær ætlið þið að fara af stað,þarf að skreppa í Stykkishólm á föstudag veit ekki hvenær ég verð kominn aftur,þyrfti að sækja gleraugun sem ég gleymdi inn í Setri í sept.
Kveðja Jón B
03.11.2005 at 08:02 #529682Brottför er klukkan 18.00 á föstudag.
04.11.2005 at 00:19 #529684Gengur ekki upp hjá mér,en verður ekki fréttaþjónusta,video af Óskari að syngja ofl.
Góðar ferðakveðjur Jón Bergmann
04.11.2005 at 11:34 #529686Nú er þetta brostið á – er að yfirgefa vinnuna til að fara að gera klárt.
Veðurspáin hefur algerlega snúist við og nú bendir allt til þess að við fáum algera bongóblíðu allan tímann – Kannski smá snjókomu á laugardagsmorgun til að gera færið skemmtilegra.
Reyndar var -16°C í Setrinu í morgun þannig að sennilega er allt orðið beingaddað þarna uppfrá og færið verður allt of gott – við lendum kannski ekki í neinu brasi…. En við getum nú ýmislegt.
Við sendum pistla á netið fyrir ykkur sem ekki þorðuð á fjöll um helgina….
Benni
04.11.2005 at 11:53 #529688Hvað maður er nú ekki að þvælast á fjöll þegar færðin er svona. bara sama og malbikað alla leið.
usss það eru bara hommar og kelllllllingar sem fara í svona færi.hahahahahahaha
verum í bandi
skari
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
