This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Björn V. Björnsson 20 years, 12 months ago.
-
Topic
-
Var að tala við Einar Sól, hann var á Kvíslaveituveginum og var að horfa á nokkra bíla úr Vestfjarðadeildinni fara yfir Sóleyjarhöfðan, þar var allt beingaddað og engir erfiðleikar.
Hann ætlar lengra uppúr og fara yfir við jökul og þá leiðina inn í Setur. Hafði hann heyrt í BÞV og Palla og eru þeir í frábæru færi á Eyjafjallajökli og er frammhaldið óráðið hjá þeim.
Helena og Þorgeir fóru inn í Kerlingafjöll í gærkveldi og sáu þau lítið sem engan snjó, enn allt gaddfrosið og er Kjalvegur víst seinfarinn.
Útivist er á leið yfir Langjökul í dimmri þoku á leið inn á Hveravelli allir þar í góðum gír.Stefán sagði við mig fyrir stuttu og var hann á leið efri leiðina í Landmannalaugar með Littludeildinni og voru þeir í góðum gír, þar hafa 3 bílar bilað og dottið út.
Allir tala um sumar og sól og frábært ferðaveður.
Sjáfur ætla ég ekki að halda þessum pistli áfram, ÞVÍ ÉG ÆTLA AÐ LEGGJA Í HANN STRAX KL. 16.00 og kem ekki fyrr en á fyrsta lagi á morgunn í bæinn.
vonandi hjálpar þetta eitthvað ferðaþyrstum jeppamönnum sem eru að spá í veður og færð.
Kveðja Lúther
You must be logged in to reply to this topic.