FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Álit á Discovery

by Hjörleifur Helgi Stefánss

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Álit á Discovery

This topic contains 8 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss Hjörleifur Helgi Stefánss 17 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 19.02.2008 at 11:36 #201901
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant

    Sæl öll.

    Að yfirstöðnu hjartaáfalli Patrolsins á heimilinu, og í miðri hjáveituaðgerð, fer maður aðeins að líta í kring um sig og hugleiða endurnýjun fjölskyldubílsins.. Hvernig líkar Discovery eigendum og notendum við þessa bíla? Við keyptum Patrol á sínum tíma vegna rýmis og fjöðrunar, hvernig koma þeir þættir út á Discovery sem og ending krams? Er ekki þolanlegt afl í þeim lítið breyttum, t.d. á 33″ eða 35″? Maður fer að velta ýmsu fyrir sér einn heima með veikan grís..

    Kveðja, Hjörleifur.

  • Creator
    Topic
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)
  • Author
    Replies
  • 19.02.2008 at 12:40 #614612
    Profile photo of Sigurjón Einarsson
    Sigurjón Einarsson
    Member
    • Umræður: 12
    • Svör: 62

    Ég er búinn að vera með Disco 98 síðan 99 og líkað vel. Fjöðrun er mjög löng og mjúk. vélarafl mætti vera meira, en hann skilar sínu samt ágætlega.Þessi fjögura strokka vél er bara hrein snild hún togar mjög verl.Minn bíll er á 35" með læsingar að aftan og framan og hefur mér gengið nokkuð vel að filgja öðrum þótt þeir séu á 38".
    Ég get hiklaust mælt með þessum bíl.
    Kveðja Sissi.





    20.02.2008 at 01:21 #614614
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Glæsileg og góð hönnun. Bretarnir kunna að hanna bíla. Veit um einn sem var lengi í veseni með bilanir í vél og endaði með stórviðgerð, á vél. Verkstæði BL. Ekki gamall bíll og ekki mjög mikið keyrður. Óbreyttur. Líklega einstakt tilfelli.
    //BP





    20.02.2008 at 07:24 #614616
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Minnist þessi ekki að hafa áður séð eða heyrt menn hrósa breskri hönnun með þessum hætti. Tjallinn gæti nú til dæmis lært að búa til rafkerfi. En Disco-inn er nú í alvöru talað heldur vel látinn af eigendum. Þekki einn sem er búinn að eiga svona bíl í 8 ár held ég og keyra hann mikið. Sá hefur ekki slegið feilpúst svo ég muni eftir.





    20.02.2008 at 11:27 #614618
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Tjallinn er ekki svo galinn þrátt fyrir allt! En með Discoinn þá held ég fari rétt með að það er talsverður munur á undirvagninum á Discovery I og Discovery II sem kom 1998. Disco I er raunar eins búinn og Defenderinn hvað varðar fjöðrun og millikassa og er með 4 cyl Tdi300 véllinni. Disco II er með 5 cyl Td5 vél, loftpúðum og svo er komið eitthvað traction control, semsagt einhver sjálfvirkni í staðin fyrir að læsa millikassanum handvirkt eins og í gamla. Reyndar held ég að það sé ennþá hægt að læsa millikassanum með einhverjum tilfæringum.
    Vona að ég sé ekki að ljúga einhverju, þekki Disko bara af bókum. Held að menn láti samt ágætlega af báðum, en persónulega myndi ég frekar kjósa þann gamla, einfalt, handvirkt og þá líklegra til að þola misjafna meðferð.
    Kv – Skúli





    20.02.2008 at 11:38 #614620
    Profile photo of Ingi Björnsson
    Ingi Björnsson
    Participant
    • Umræður: 73
    • Svör: 1022

    Eru ekki hásingarnar smíðaðar í Legó-verksmiðjunum í danmörku?
    Man allavega ekki eftir neinum rover sem hefur ekki verið í veseni með bæði drif og öxla.





    20.02.2008 at 12:31 #614622
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Drifin þykja nú nokkuð sterkbyggð og ekki gjörn á að brotna. Öxlar eru hins vegar ekki þeir sverustu og kannski að vöxtum fyrir stór dekk. Samt mesta furða hvað þeir halda, ég hef allavega ekki brotið ennþá.
    Kv – Skúli





    20.02.2008 at 16:49 #614624
    Profile photo of Einar Steinsson
    Einar Steinsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 752

    Ég get ekki tekið undir að Bretar kunni ekki að hanna bíla. Þeir hafa oft komið með framúrskarandi vel hannaða bíla og oft verulega langt á undan öðrum með nýungar og útfærslur.
    Það er hins vegar þegar kemur að smíðinni þar sem fer að halla undan fæti. Held að þeir hafi talsvert tekið sig á í seinni tíð en ég er búin að eiga og umgangast nokkra breska bíla í gegnum tíðina og þeir hafa allir átt það sameiginlegt að hafa liðið fyrir ónákvæma smíði og óvandvirkni.
    Hvað varðar Discovery þá hefur mér alltaf þótt hann álitlegur kostur. Hann er góður meðalvegur milli ofurlúxusjeppans Range Rover og landbúnaðartækisins Defender. Tekur svona það besta frá báðum.





    20.02.2008 at 22:12 #614626
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 665

    Bestu þakkir fyrir þetta,

    Hjölli.





  • Author
    Replies
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.