This topic contains 19 replies, has 1 voice, and was last updated by Sigurþór Þórsson 16 years, 12 months ago.
-
CreatorTopic
-
26.10.2008 at 23:39 #203117
Hvað segið þið strákar, er einhver áhugi fyrir því að kíkka upp á fjall annað kvöld (mánudagskvöld) og spóla aðeins. Sagan segir að það sé allt á kafi þar í snjó þar. Hittast kannski á leyru kl. 20 og taka úr okkur mest hrollin.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
27.10.2008 at 09:23 #631760
Ef þú ert með nógan spotta og ert til í að kippa í nýliða hvað eftir annað;)
Hilsen
Hjalli
27.10.2008 at 12:41 #631762það eru alltaf spottar meðferðis. Við skulum sjá til með þetta hinsvegar aðeins, eins og er er kannski full mikið rok þarna uppfrá núna og tökum púlsin á þessu kl.19:00.
27.10.2008 at 16:55 #631764Mæting inn á leyrunesti kl 20:00. Áættlaður heimkomutími ca 22-23. Svo er það spurning ÞORA gömlu jaxlarnir þeir Gísli Óla og Smári Sig að mæta?????????
27.10.2008 at 17:09 #631766En því miður þá á ég engin dekk og er ekki með bílinn á númerum og hann kominn inn í skúr og ég úti á sjó, þannig að þetta fellur nú sennilega um sjálft sig!! Blessað veðrið sem var heima um helgina er heldur að gera okkur lífið leitt í augnablikinu!!
Kv Stefán (sem veit ekki hvort hann á að fá sér 46 47 eða 49"(hjálp!))
27.10.2008 at 18:05 #631768Hvað er þetta ætla engir að koma?
ég myndi koma ef greyið væri ekki inní skúr
27.10.2008 at 18:13 #631770Ef minn væri ekki á nánast sköllóttum 33" sumardekkjum þá myndi ég kíkja. Vill ekki gera ykkur og spottanum mínum það að vera fastur á 5 metra milibili.
27.10.2008 at 18:18 #631772menn mæta þarna, það er ekki venjan að kvitta sérstaklega fyrir svona smá skreppitúrum, menn mæta bara þeir sem geta það. Það er hláku spá framundan þannig að það er um að gera að nota tækifærið meðan það er…
27.10.2008 at 18:26 #631774ég er nú samt alveg klár sem co-ari ef einhvern vantar
27.10.2008 at 18:28 #631776ég mæti
28.10.2008 at 12:33 #631778var ekki farið í gær upp á heiði sökum þess að lítið skyggni var og er meiningin að fara í kvöld svo framalega sem það verði gott veður sem allt bendir til. Mæting inn á leyrunesti kl.20:00 í kvöld ef eitthvað breytist verður það sett inn hér.
28.10.2008 at 18:52 #631780kvöld kl.20:00 inn á leyru. Farið upp á fjall (vaðlaheiði) sagan segir að það sé ófært þangað…
29.10.2008 at 12:05 #631782Var einhver snjór á heiðinni.
kv
Baldur
29.10.2008 at 12:08 #631784Jájá hellingur af snjó. Það var reindar ekki farið nema ca hálfa leið sökum erfiðs færis. Það þarf meira en eina kvöldstund til að komast þarna upp…
29.10.2008 at 17:23 #631786Fórum kl 2 frá leiru á 44"cruser og 44" landy
fórum alla leið upp og tókum smá hring upp í
móana vorum í 2 pundum komnir niður korter
í fimm.
29.10.2008 at 17:50 #631788Benni það er semsagt ekki ófært lengur þarna upp.
29.10.2008 at 17:53 #631790það er ekkert mál að fara þarna upp, smá hjakk bara sem tekur smá stund. En það er talsverður snjór þarna. Mikklu meira heldur en vestan megin (hlíðarfjall/súlumýrar). Þórhallur hvernig er þetta þegar upp er komið, allt hvítt?
29.10.2008 at 19:16 #631792Sæll Benni nei það er ekki mjög mikill
snjór þarna uppi það er að vísu komin
snjór í lægðir en það sjest í þúfur og
grjót betra að fara varlega ef menn ætla
að keira þarna inneftir öruglega þunnt
á skurðum og gjótum þarna.
29.10.2008 at 21:25 #631794Sælir félagar við fórum frá Sigló í gær inn á Lágheiði á 6×6 Raminum og mikið breittum Patrol með 120 Toyota diselvél og milligír 1:5 og 38" Mudder vel búinir bílar og góðir ökumenn. Mikill og þungur snjór frá Þrasastöðum og yfir heiðina. Raminn ruddi slóðina á 3 pundum og náði snjórinn upp á efri brún á öllum felgum og stundum hærra. Ef maður stökk út sökk maður upp að mitti. Patrolinn kom á eftir með snjóinn upp á stuðara í slóðinni kveðja trölli_1
29.10.2008 at 21:42 #631796Ég vil sjá myndir af nýjum snjó! Er búinn að vera úti á sjó í mánuð og er soldið farinn að klæja eftir að sjá allt þetta hvítagull sem menn eru að tala um! =)
Kveðja af sjónum þar sem allt er marautt! Sigurþór
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
