Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Akureyri – Partý
This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Tryggvi R. Jónsson 18 years, 6 months ago.
-
CreatorTopic
-
01.08.2006 at 00:21 #198304
Hverjir verða á Akureyri næsta laugardsgskvöld? hverjir vilja fá þann vafasama heiður að hafa farið í norðlenskt jeppapartý.
Setjið nafn og síma hér að neðann ef þið viljið vera með. Stefnum á að gera eitthvað skemtilegt samann. Patrol menn/konur sérstaklega velkomnir! -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
01.08.2006 at 05:14 #557202
Partíið verður í Dreka þar sem patrolmenn og konur í gleðskap miklum(það var kátt hérna á laugardagskvöldið í Drekagili/þar kvað við fjallið af söngi og spili/ það var hopp það var hæ það var hó) og ekki orð um það meir.
Klakinn
01.08.2006 at 08:41 #557204…. hljómar illa en eins og svo margir aðrir verð ég fjarri góðu…. Hvað með að hafa sárabótapartí fyrir okkur flakkarana í Laugafelli á sunnudagskvöldið ;)?
01.08.2006 at 09:41 #557206Hljómar vel, við stefnum á að mæta í partýið á AKureyri
Lella og Þorgeir
sími 892-4283
03.08.2006 at 02:05 #557208Formaðurinn sagði við mig í kvöld að hann væri nánast vélarlaus norðan heiða, og þar sem björgunarmaður ársins ( Benni ákureyringur) er statttur í mínum heimahúsum verðum við nota verslunarmannahelgina við björgunaraðgerðir og er ákveðið að bruna norður í veðurblíðuna og sóla sig.
Mánudagurinn og eitthvað fram eftir næstu viku verður svo notaður til að skiptast á að draga tröllið suður.Lúther
03.08.2006 at 06:01 #557210Á nú að nota vesalings formanninn sem afsökun til að hrella hrjáða norðanmenn,það er eins gott að setja áfallahjálparsamráðsnefndferðaklúbbsins4x4 í startholurnar,viðbúið að þurfi að kalla hana út í birgðarfluttninga.
Ég var að spá í það hvers vegna Benni Sig boðar í partý fyrir norðan og forðar sér svo í bæinn,Skrítið.
En hvað um það Lúther sér um að halda mönnum við efnið og dröslar Benna aftur norður,góður strákur Luther,ekkert me he þar á ferðinni,hann verður flottur á Porche með hjólhýsið aftaní og Benna bundinn á farangursgrindina,Ég treysti á að fréttafluttningur af herlegheitunum sé tryggður og samband við fjallaskálann í Dreka sé gott,þannig að ef það verður of mikið fjör sé hægt að kalla á liðsauka,og munum við koma snarlega með aukaskammt af fjöri í nokkrum 20l brúsum.Kveðja Klakinn
Sem hefur áhyggjur af geðheilsu norðanmanna
03.08.2006 at 10:24 #557212Ég get vottað það að geðheilsa "okkar" norðanmanna er með besta móti m.v. aldur og fyrri störf. Spurning hvort það verði búið að leggja pleisið í auðn á mánudag? Á maður kannski bara að sleppa því að koma við úr Laugafelli og fara beint suður í Sorann?
Kv
Tryggvi Akureyringur(-búsettur-í-Reykjavík)
03.08.2006 at 10:58 #557214Hér eru allir við hestaheilsu og stefnan tekinn norður í dag, við lúddi legjum af stað um kl.18 og stefnum á að bjarga formanni og koma honum til byggða í nótt. Hann mun víst vera mjög tæpur á geði en við munum bjarga því með einum Thule. Einnig vitum við að hann mun róast um leið og hann sér toyotuna koma, það er altaf vist öryggi að hafa þær með sér.
03.08.2006 at 11:04 #557216Er það formaðurinn sjálfur eða bíllinn hans sem er vélarvana?
03.08.2006 at 15:53 #557218Ég held nú að það sé aðalega formaðurinn…
03.08.2006 at 19:16 #557220Þetta verður söguleg helgi,Ofsinn rífandi kjaft á Gæsavatnaleið um eitthverja fjallafrú sem uppi var einni öld fyrir fæðingu sína,formaðurinn á yfir sér heimsókn landshornaflakkara að norðan og sunnann,fyrrverandi formaður svífur um á bleiku rjóðri ,, ég hélt satt best að segja að bleikir fílar væru algengari,en flest er öðruvísi hér hjá 4×4 félögum,ættli Ofsinn telji þá græna ketti í Nýjadal???.
Luther er búinn að setja Porce á 44" að aftan en þar sem sá bíll er ekki með framdrif er hann óbreyttur þeim megin,Benni Akureyringu er búinn að felumála Patrolinn sinn og skrifa á hann Landcrusier á bottninn og toppinn og Audi á hliðarnar og Pajero að framan og aftan,mun það vera gert til að rugla lagana verði er þeir gera skýrslu um fyrirhugaðan ofsaakstur Luthers og Benna og loks mun hafa verið settur utanborðsmótor á fellihýsi Lúthersfrúar en það mun vera notað til að draga Formanninn að landi,svo hann geti nú formenskast á fyrirhuguðu keppniskvöldi þar sem keppt mun vera í hálsskolun mismunandi örvandi og slævandi drykkja,andsk manni dauðlangar norður.
Klakinn sem tekur eitt eintak af mismunandi heilbrygðu norðanmannaeintaki með á sandinn.
04.08.2006 at 13:24 #557222Sko – Lúther þetta var nú óþarfi að vera að gera grín að því að ég sé hér vélarvana… Þú þurftir nú ekki að láta alla vita af þessu…
Ég vissi að ég átti ekki að segja þér að ég hefði tekið tölvukubbinn úr og dottið niður í 330 Hp og 700 Nm í tog…. Þetta virkar ekkert svona…
….
En þetta stendur allt til bóta – pakkinn frá Banks Power er á leiðinni og þá næ ég mér aftur upp í ca 500 Hp og 1000 Nm … Þá fer ég kannski að hafa við pöttunum aftur…..
P.S.
Nafni – ég mæti að sjálfsögðu.
Með kveðju frá Heiðarbæ í Reykjahverfi (sól og 20°C)
Benni
04.08.2006 at 14:02 #557224flott mál.. ég er á vleiðinni á háheiðinni, 110 má ekki verða of seinn…
Ætla að bruna einhv norður úr….
ca kíki á ykkur….
04.08.2006 at 15:08 #557226Gott mál.
Ekki er búið að ákveða staðsetningu en það verður uplíst á morgun laugardag. Endilega gefið upp síman ykkar svo sé hækt að vera í sambandi við ykkur eða hafa kveikt á talstöð (VHF) þar sem er hækt að ná í skottið á ykkur. Hér á Akureyri er annars 22c og blíða. FARIÐ GÆTILEGA Í UMFERÐINNI
04.08.2006 at 15:33 #557228Það má ekki alveg fylla alla ef við lendum í eldsneytisskorti þá gæti þurft að fórna einhverju á áfenginu til að koma fólki til byggða.
Skemmtið ykkur annars vel og maður sér kannski skottið á einhverjum um helgina!Góða helgi!
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.