This topic contains 21 replies, has 1 voice, and was last updated by Hafsteinn Þór Hafsteinsson 19 years, 2 months ago.
-
CreatorTopic
-
13.09.2005 at 01:00 #196244
Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að fara að skrifa um blessaðan vefinn en þó get ég ekki stillt mig um að minnast á eitt atriði.
Vinstra megin á forsíðunni er rammi þar sem sýndar eru „áhugaverðar“ myndir. Þarna birtast ýmsar myndir greinilega með mjög handahófskenndu sjálfvali.
Ég viðurkenni að sumar myndirnar eru áhugaverðar en hins vegar er allt of mikið af myndum, sem eiga ekkert erindi í þennan ramma. Þá á ég við myndir t.d. af fólksbílum, dekkjum inni í skúr eða jafnvel mynd af ómerkilegri talstöðvarfestingu eins og ég sá nú rétt áðan.Kveðja,
Sigurbjörn, R2196 -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
13.09.2005 at 07:20 #526632
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
þetta gæti nú verið áhugavert fyrir suma, t.d. er einhver að setja talstöð í fyrsta skipti og kann það varla, fer hér inn og nei úps bara leiðbeiningar 😀
svo er kannski einhver að leita sér að dekkjum, auglýsingin farin af forsíðunni en nei hvað veistu, kemur mynd af dekkjum með textanum "til sölu" þegar þú kemur inn í myndina, testar að hryngja og *váhhh* hann fær góð dekk á góðu verði…
annars fynnst mér þetta mjög sniðugur fídus, maður skoðar mikið meira af myndum ef að þetta er, heldur en áður, því að þarna fær maður jafnvel elstu myndirnar á vefnum (og ég hef fengið þær 2var:P)
13.09.2005 at 08:35 #526634Áhugaverðar myndir eru valdar algerlega af handahófi úr öllum myndum í myndasafni, það er engin ritskoðun á því hvað má birtast þarna og hvað ekki. Ef þú ert ekki ánægður með myndina sem kemur þá þarftu bara að ýta á "Nýglæða" (Refresh) í vafranum til að fá nýja mynd Góða skemmtun.
Bjarni G.
13.09.2005 at 09:47 #526636Má stinga upp á nýjum titli á þessum ágæta fídus. Eitthvað eins og t.d. hér að ofan. Mynd af dekkjum sem eru löngu seld er eiginlega ekki áhugaverð.
kv
ÞÞ
13.09.2005 at 10:05 #526638Þetta var prýðishugmynd hjá þér, hvernig lýst þér á þetta núna?
Bjarni G.
13.09.2005 at 10:16 #526640
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
þetta meikar náttúrulega meira sens en hitt, en þó er alldrei hægt að segja að eitthvað sé ekki áhugavert, fólk getur nefnilega haft mjög mismunandi áhugamál, sumum finnst meira að segja fáránlegt að vilja ferðast um á jeppum :O
13.09.2005 at 17:57 #526642Vinsamlegast ekki breyta neinu í sambandi við -áhugaverðar myndir- því þessi fídus á síðunni heldur henni gangandi. Ef þessum link væri breytt til hins verra þá væri heimasíða klúbbsins búinn að vera.
kv. vals.
E.s. hvenær á að ljúka þessu verkefni sem byrjaði fyrir rúmlega ári síðan.
13.09.2005 at 18:11 #526644
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
það er bara búið að breyta nafninu, fór fyrir brjóstið á sumum…
13.09.2005 at 18:33 #526646Kæri vals, hvað er efst á óskalistanum hjá þér að verði klárað á síðunni? Það væri skemmtilegt að fá lista frá þér yfir það sem þér finnst aðfinnsluvert við síðuna og sjá hvort því ber saman við "todo" listann hjá vefnefndinni.
Bjarni G.
13.09.2005 at 18:39 #526648Sú vefnefnd sem kæmist að þeirri niðurstöðu að hún væri búin að ‘klára’ vefinn, ætti að setja af sem fyrst. Svona verkefni má aldrei líta á sem að fullu klárað og góð vefnefnd finnur alltaf eitthvað sem betur má fara.
Kv – Skúli
13.09.2005 at 23:39 #526650Það er verulega þreytandi þegar maður er að leita af gamalli auglýsingu, að þurfa að fletta síðu eftir síðu í stað þess að hafa allar síður númeraðar neðst í hverjum flokki og geta valið beint þá síðu sem maður heldur að innihaldi þá auglýsingu sem leitað er af.
Þessa fyrirspurn kom ég með sl.vor og man ég ekki betur en Skúli hafi tekið undir það með mér.
Datt í hug að láta það flakka aftur þegar ég sá hvað viðbrögð Bjarni við áhugav. myndir voru fljót.Kv. Júnni
14.09.2005 at 00:19 #526652smá viðbót,
Ég sakna þess að sjá ekki fleiri en 5 gamla þræði sem maður hefur sjálfur tekið þátt í. Á gömlu síðunni gat maður valið að sjá alla þræði sem maður hefur skrifað í og var það oft þægilegt ef maður vildi leita að einhverjum gömlum pælingum…..
kveðja
Agnar
14.09.2005 at 08:15 #526654Áhugaverðar myndir, þetta er miklu betra nafn en myndir úr myndasafni vegna þess að þessi fídus er áhugaverðastur á heimasíðunni. Ýktur, ég á ekki nennu til í það að tína til allt það sem menn hafa verið að skrifa hérna um það sem vantar á vefinn, ef þú hefur áhuga á því farðu bara í leit hérna efst á síðunni, leitin virkar allavega. Vefurinn hefur vissulega batnað en ekkert er svo slæmt að ekki megi venjast því.
Kv. vals.
14.09.2005 at 08:48 #526656maður er meira að segja farinn að venjast öllu þunglyndisbölvinu og svartsýnisvælinu ykkar yfir vefnum….
kv
Rúnar
14.09.2005 at 10:17 #526658Að mínu mati er búið að laga flest á síðunni sem menn hafa kvartað undan, alls ekki allt en flest. Lagfæringar/breytingar eru miserfiðar í framkvæmd, textabreyting eins og ég framkvæmdi í gær er mjög einföld en þegar kemur að því að breyta hegðun og virkni síðunnar þá þarf svolítið að velja og hafna, þetta er jú unnið í sjálfboðavinnu og menn hafa ekki endalausan tíma til setja í þetta.
Sumt væri til mikilla bóta eins og t.d. að sjá fleiri þræði sem þú hefur tekið þátt í en ýmislegt annað skiptir kannski minna máli.
Ég ætla að vona að þessi síða verði aldrei "kláruð" því, eins og Skúli bendir á, að alltaf er hægt að gera betur.Bjarni G.
14.09.2005 at 10:22 #526660Er todo listi vefnefndar leyndarmál? Hvernig væri að setja hann á vefinn þannig að menn get lagt sitt af mörkum til þess að bæta hann. Það er rétt að þróun vefsíðunnar er verkefni sem verður aldrei lokið, en það væri vissulega merkur áfangi ef það tækist að fá virkni sem ekki stæði mikið að baki gömlu síðunnar.
Það sem mér finnst vanta mest upp á í því efni, er þjónusta við nefndir og deildir (var ástandið þó ekki gott í gömlu síðunni) og að finna efni á síðunni, hvort sem um er að ræði efni í spjalli, myndir eða auglýsingar, þrátt fyrir leitarvélina. það væri til mikilla bóta (og líklega einfalt í framkvæmd) að gamlar tilvísanir fái að virka. Þær gera það að hluta til, t.d. í notenda listann.
Það er þó ekki allt í mínus, stöðugleiki síðunnar hefur batnað og slembi mynd úr myndasafni kemur vel út. Það er líka stór framför að nú er komnir vefstjórar sem sinna rekstri síðunnar.
Síðan þurfa menn að komast yfir það að ekki megi fjalla um síðuna á síðunni, Rúnar ef þetta er erfitt fyrir þig þá getur þú bara sleppt því að opna vefsíðu þræði.
-Einar
14.09.2005 at 10:42 #526662"Todo" listinn er svosem ekkert leyndarmál en hann er ekki birtingarhæfur eins og hann er í dag. Þetta er bara vinnuskjal. Ég gæti vel hugsað mér að setja inn lista yfir það hvað við ætlum að gera í náinni framtíð eftir næsta fund vefnefndar.
Það er heilmikil vinna í gangi við að stórbæta þjónustu við nefndir og deildir en á þessum tímapunkti er ekki rétt að opinbera það frekar. Það verður kynnt síðar.Bjarni G.
14.09.2005 at 13:54 #526664Ekki birtingar hæfur, mikil vinna í gangi, í náinni framtíð, þjónusta við nefndir, kynnt síðar. Er ég ekki í vitlausum þræði eða var ekki verið að gefa í skin að allt væri búið ???.
Nei, nei strákar þetta er fínt hjá ykkur og því fyrr sem þið klárið þetta, því fyrr fer að fjölga í klúbbnum.
Kv. vals.
14.09.2005 at 14:06 #526666Þetta er nú bara eins og með jeppana hjá okkur öllum, við erum í raun aldrei búnir að "klára" að breyta/smíða, það er alltaf hægt að gera meira og betur.
En ég er ekki enn búinn að fá upp úr þér, vals, hvað það er sem er svona stórkostlega vont við þennan vef. Það er búið að laga mjög mikið af því sem sem kvartað hefur verið undan og vefurinn virkar mjög vel núna, en auðvitað er hægt að gera betur.Bjarni G.
14.09.2005 at 20:04 #526668(nú er það bara heimtufrekjan sem gildir 😉 )
… fá val um fyrri og næstu mynd þegar verið er að skoða myndir í mynda-albúmi fyirr ofan myndina líka, ekki bara fyrir neðan.
Það er þessi texti sem ég er að tala um:
« Fyrri | Yfirlit | Næsta »Það þarf náttúrulega ekki að nefna að þetta var svona á gömlu síðunni og eykur þægindi sérstaklega ef myndin er full stór til að komast á skjáinn og ofangreint val lendir niðurfyrir á skjánum, þá þarf að fletta niður fyrst til að komast á næstu mynd – sérstaklega pirrandi þegar maður er á laptop með ‘touchpad’
Arnór
14.09.2005 at 21:25 #526670mér finnst þessi síða öll aðvera koma til það eina sem vantar eru góðir pennar.
kv Ási
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.