FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Aftengja túrbínu í Musso?

by Helgi Eric Björn Hallbeck

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Aftengja túrbínu í Musso?

This topic contains 8 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Elmar Snorrason Elmar Snorrason 17 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 19.09.2007 at 12:23 #200815
    Profile photo of Helgi Eric Björn Hallbeck
    Helgi Eric Björn Hallbeck
    Participant

    Er með ssangyong musso 1999 2.9 tdi. Blöð í túrbínunni brotin. Þarf lausn þar til ég fæ tíma á verkstæði.
    1. Er í lagi að draga loftinntakið framhjá túrbínunni beint inn í intercoolerinn? 2. Er í lagi að loka fyrir olíuinntakið á túrbínunni með lokaðri ró? Þar sem blöðin í túrbínunni snúast enn (með ískri..) eftir framhjátenginunni (1), er í lagi að blokkera þessi blöð með einhvernum hætti (td troða einhverju þar inn)?
    Kveðja,
    Björn

  • Creator
    Topic
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)
  • Author
    Replies
  • 19.09.2007 at 12:36 #597396
    Profile photo of Bergþór Júlíusson
    Bergþór Júlíusson
    Participant
    • Umræður: 40
    • Svör: 761

    nei ég segi svona, það sem væri heppilegast er að keyra bílinn alls ekki neitt en ef hjá því verður ekki komist verður þú að aftengja túrbínu frá vél, þ,e að aftengja afgasið ( pústið ) frá túrbínu en það er það sem snýr henni á ógnarhraða svo að tengja loftinntakið framhjá túrbínuni ( loftinntak, túrbó, intercooler, vél. ) en þetta væri stóraðgerð og auk þess með pústið opið við vélina með tilheyrandi hávaða. Svo er spurning að keyra bara með draslið vælandi ef það eru bara blöðkurnar sem eru farnar en yfirleitt fer það ekki vel með kuðunginn auk þess áttu hættu á að beigja öxulinn í túrbínu og þá ertu í slæmum málum, ekki bara túrbínu.





    19.09.2007 at 15:19 #597398
    Profile photo of Helgi Eric Björn Hallbeck
    Helgi Eric Björn Hallbeck
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 6

    Takk. Er búinn að tengja allt á sinn stað aftur. En olia lekur inn í túrbínuna, gegnum hana og inn í intercoolerinn. Eins er töluverð olíubrák í slöngunni út úr intercoolernum. Líklegast þessvegna sem bíllinn blæs miklum ljósbláum reykmekki þegar vélin er að hitna.





    19.09.2007 at 17:47 #597400
    Profile photo of Bergþór Júlíusson
    Bergþór Júlíusson
    Participant
    • Umræður: 40
    • Svör: 761

    Þessi smá leki getur verið stórhættulegur því það bendir til að öxullinn sé óþéttur og ef pakkningin sem heldur olíunni á öxlinum fer eða öxullinn brotnar getur þú fengið alla smurolíuna inn á vél sem þíðir að hún kveikir í henni með tilheyrandi yfirsnúningi 10,000+ og allt brent ofan á kollunum( stimplum)





    19.09.2007 at 18:14 #597402
    Profile photo of Helgi Eric Björn Hallbeck
    Helgi Eric Björn Hallbeck
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 6

    Hvað á ég þá að gera? Er ekki alveg klár á þessu.





    19.09.2007 at 18:18 #597404
    Profile photo of Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 103
    • Svör: 653

    Ef þú ert tilbúinn að afskrifa túrbínuna sem 100% ónýta þá er vafalaust hægt að nuddast eitthvað á bílnum, en hann verður alveg grútmáttlaus og hætt við ofhitnun á ventlum, heddi og pústgrein.
    Fyrst þarftu samt að aftengja og blinda smurlögnina að túrbínunni og frátengja loftbarkann sem liggur að millikæli eða soggrein þannig að restin af túrbínusvarfinu fari ekki inn á vélina.
    Ég lenti í því með gamla Pajeróinn minn að túrbínan gafst upp norður í Skagafirði. Af ýmsum ástæðum þótti mér skásti kosturinn að reyna að keyra hann heim til Rvk og það tókst með aðferð eins og ég hef lýst. Ég ætla ekki að lýsa því hve slappur bíllinn var og gjarn á að reykja (það merkir að díselolían nær ekki að brenna upp í strokkunum = hitamyndun o.s.frv.). Hann komst þó óskemmdur í bæinn, en túrbínan var öskuhaugamatur. Ég mun seint gleyma því hve ég vorkenndi manninum í næsta bíl á eftir mér í Hvalfjarðagöngunum þau fáu skipti sem ég sá í hann fyrir reyk.

    Ágúst





    19.09.2007 at 18:45 #597406
    Profile photo of Helgi Eric Björn Hallbeck
    Helgi Eric Björn Hallbeck
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 6

    Túrbínan er með brotið blað og ég fæ nýja eftir 2 vikur. Olían á vélinni er orðin kolsvört. Er ráð að setja á vélina "vélarhreinsi" og skipta um olíuna þegar ég hef blindað leiðsluna að túrbínunni og leitt loftið beint í millikælinn, eins og þú mælir með? Hvað með að setja "oil additive með teflon á vélina?
    Björn





    19.09.2007 at 20:53 #597408
    Profile photo of Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 103
    • Svör: 653

    Ég sé ekki að þetta snerti olíuskipti beinlínis hvort túrbínan sé farin eða ekki.
    Olía á díselvélum verður bleksvört nánast um leið og sett hefur verið í gang. Það er vegna sótmyndunar sem er mun meiri en í bensínvélum. Smám saman mettar sótið allar olíur og margfróðir menn mæla með að skipta um olíu og olíusíu á 5000 km fresti og hef ég fylgt þeirri þumalputtareglu.
    Ég hef ekki notað önnur olíubætiefni en Militec, sem ég hef reyndar ofurtrú á :-)
    Ef þú ert búinn að keyra yfir 5000 km á olíunni sting ég upp á að þú skiptir um hana ásamt síunni, en annars myndi ég láta það eiga sig.

    Sel ekkert af ráðunum dýrt og tek enga ábyrgð á að vélin þín þoli að vera keyrð túrbínulaus þótt þú setjir á hana nýjar olíur og bætiefni í bak og fyrir.

    Ath. Ef túrbínublað og/eða svarf úr túrbínunni hefur borist inn í öndunarfæri bílsins, barka, kæli og soggrein, þá ættirðu að yfirfara og hreinsa það eftir bestu getu því það getur ekki verið hollt að fá slíkt drasl alla leið inn í strokkana, jafnvel þótt sé mjúkt ál.

    Ágúst





    19.09.2007 at 23:03 #597410
    Profile photo of Elmar Snorrason
    Elmar Snorrason
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 519

    Ekkert olíubætiefni lækkar hitann sem á eftir að myndast þegar þú keyrir bílinn á svona ríkri blöndu.
    Til að mótorinn gangi eðlilega þarf að vera hæfileg blanda eldsneytis og lofts. Ef við horfum bara á díselvélina, þá finnst henni gott að fá mikið af olíu, en meiri olía skapar líka hærri hita og þessvegna viljum við ekki hafa of mikið af henni. Ef þú ætlar að aftengja túrbínuna þá er vélin að fá miklu miklu minna loft heldur en hún er sett upp til að að brenna, þe. sama magn af olíu en minna loft. Þá hitnar í kolunum og eitt og annað getur skemmst.
    Ráðið við þessu er að gefa honum minna að drekka, skrúfa olíuverkið niður. Það er fyrst og fremst það sem þú þarft að gera, auk vesenisins við að blinda olíulagnir fyrir túrbínuna og breyta loftinntakinu, en alltaf þarftu þó að þrífa loftinntakið hjá þér (intercoolerinn og lagnir) með hreinum olíuhreinsi, nudda vel þar sem þú nærð til eða setja slatta inní intercoolerinn og hrista hann til og frá og þvo svo út með heitu vatni.

    Ráðlegast er að leggja bílnum rétt á meðan þú ert að bíða eftir viðgerð í stað þess að hætta á að þú glóðasteikir hitt og þetta í vélasalnum.





  • Author
    Replies
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.