FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Afsláttarkjör

by Gunnar Ingi Arnarson

Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Afsláttarkjör

This topic contains 8 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Snorri Ingimarsson Snorri Ingimarsson 16 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 19.03.2009 at 15:01 #204063
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant

    Sælir félagar

    Ég vinn hjá fyrirtæki sem heitir Málmtækni Hf.

    Þann 4. mars síðastliðinn sendi ég eftirfarandi póst til stjórnar F4x4.


    Góðan daginn,

    Við í Málmtækni HF viljum sýna Ferðafélaginu 4×4 samstöðu með því að bjóða öllum félagsmönnum 15% afslátt af öllu efni sem við erum að selja.

    Málmtækni HF sérhæfir sig í áli, ryðfríu stáli og plasti í plötum og stangarefni í miklu úrvali. Aðrir efnisflokkar eru járnplötur, rafgalvaniseraðar plötur (boddy stál), galvaniseraðar plötur, kopar, messing, zink, litaðar álplötur, eloseraðar álplötur, dropaplötur(rifflað ál), ryðfrír fittings, gataplötur úr járni, áli og ryðfríu, svart plast í innrabretti og svartir plastöxlar í boddy hækkanir. Eða um 2.400 vörur.

    Heimasíða Málmtækni HF er http://www.mt.is

    Vonandi nýtast ykkur þessi kjör.

    Kær kveðja

    Gunnar Ingi Arnarson R-3793



    Ég hef ekki fengið nein viðbrögð við þessum póst né tilkynningu til okkar félagsmanna um þessi kjör.

    Þannig að ég vildi bara koma þessu til ykkar, þó svo að þetta sé nú frekar óvenjuleg leið….

    Með góðri jeppa kveðju

    Gunnar Ingi R-3793

  • Creator
    Topic
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)
  • Author
    Replies
  • 19.03.2009 at 16:49 #643922
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Kannki maður fari að skipta við ykkur aftur. Skipti svolítið við ykkur fyrir 10 árum en eitt skiptið varð ég fyrir þvílíkum dónaskap frá starfsmanni ykkar að ég hef ekki stigið fæti inn hjá ykkur síðan (já, ég veit að ég er langrækinn og viðkomandi starfsmaður örugglega löngu hættur….).
    .
    En gott mál, kannski maður prófi aftur að versla :)





    19.03.2009 at 17:37 #643924
    Profile photo of Snorri Ingimarsson
    Snorri Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 68
    • Svör: 971

    Ég hef alltaf fengið góðar móttökur og góða þjónustu hjá Málmtækni.

    Telst þó ekki til stórkaupenda á málmum en kaupi stundum smábúta sem þarf að saga niður.

    Málmtækni er einmitt eitt af þeim fyrirtækjum sem veita sérhæfða þjónustu sem hentar okkur jeppasmönnum mjög vel.

    Það er, að eiga gott úrval af efnum og vera tilbúnir í að afgreiða eftir máli í litlu magni.

    Gott framtak Málmtækni, hvet önnum kafna stjórnina til að drífa þetta í frétt á forsíðu vefsins.

    Snorri
    R16





    19.03.2009 at 21:26 #643926
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Getur verið að þetta fyrirtæki, Málmtækni, smíði kassa í varahjólsfestingar á jeppa?





    19.03.2009 at 22:08 #643928
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Þú verður að afsaka dónaskapinn, menn eru misjafnir eins og þeir eru margir :) en vonandi er sá hættur :)

    með kassanna… þá smíðum við þá ekki þó svo að þeir séu úr efni frá okkur. KE málmsmíði smíðar þá, þeir eru til húsa hjá Aðalblikk (fyrir aftan krónuna upp á höfða)

    Það eru klippur og beygjuvél á staðnum fyrir vana og síðan sögum við niður allt sem þarf.

    Annars bara vona ég að sem flestir nýti sér þessi kjör.

    Með kveðju

    Gunnar Ingi





    20.03.2009 at 12:17 #643930
    Profile photo of is
    is
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 994

    Já takk fyrir það Gunnar Ingi.

    Kv. Kalli





    20.03.2009 at 12:38 #643932
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Jamm, vona það líka. Kíki örugglega til ykkar í sumar þegar næsta verkefni byrjar.





    20.03.2009 at 14:52 #643934
    Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson
    Sveinbjörn Halldórsson
    Keymaster
    • Umræður: 87
    • Svör: 859

    Sæll Gunnar Ingi
    Ég er búin að fara yfir póstin minn frá þessum tíma og aðrir stjórnarmenn líka en við finnum ekkert um þennan póst. Þú mátt ekki halda að stjórnin sé að sortera út hverjir fái að gefa félagsmönnum afslátt og hverjir ekki. Pósturinn þinn hefur bara einfaldlega ekki borist til okkar og þykir mér það miður, því þetta er flott tilboð og á vel við í kreppunni.

    Að sjálfsögðu verður þetta sett á forsíðuna eins og allt er lítur að nýjum afsláttum fyrir félagsmenn.
    Kveðja
    Sveinbjörn Halldórsson
    formaður f4x4





    20.03.2009 at 17:13 #643936
    Profile photo of Snorri Ingimarsson
    Snorri Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 68
    • Svör: 971

    Fór inn á heimasíðu Málmtækni.

    Þar er síða sem kallast Athyglisvert og er með ýmsum tenglum.

    Þar sem F4x4 er mjög athyglisverð síða, þá væri etv sniðugt fyrir Málmtækni að setja þarna link á athyglisverðu síðuna okkar.





  • Author
    Replies
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.