FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Afhverju klafar burt?

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Afhverju klafar burt?

This topic contains 21 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Grimur Jónsson Grimur Jónsson 20 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 31.03.2005 at 19:27 #195774
    Profile photo of
    Anonymous

    sælir ég var að velta fyrir mér, það eru svo margir búnir að rífa klafana framan á toyotunni sinni.. Hvað er svona mikill galli við klafana, sjálfur er toddan mín á klöfum og angrar mig ekkert..
    Endilega fræðið mig um þetta

  • Creator
    Topic
Viewing 21 replies (of 21 total)
← 1 2
  • Author
    Replies
  • 06.04.2005 at 22:45 #520178
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Eins og Atli kom inn á hérna að ofan, þá er slit og þreyta algeng ástæða fyrir því að klafar eru teknir undan Hiluxum.

    Hvað styrkinn varðar, þá er frekar algengt að grindin kikni innávið rétt fyrir aftan aftari festinguna á neðri klafanum ef mikið högg kemur beint framan á dekk. Til að fyrirbyggja það hafa menn gjarna sett styrkingu á milli þessara klafafestinga til að fá styrk úr hinni hlið grindarinnar og taka út vægi sem myndast við svona högg, Jamil partasali sagði mér aftur á móti að það gæti í vissum tilfellum valdið ennþá meiri skaða, þar sem grindin bognaði bara beggja vegna í staðinn!!!

    Allavega, XTra-cabinn minn var með svona bogna grind þegar ég keypti hann, sem ég seinna lagaði og styrkti, það var alveg til friðs í sjálfu sér eftir það.
    Allmörgum hjólastillingum og slithlutareddingum síðar gafst ég upp og reif þetta undan (nýlega) og setti heila hásingu í staðinn með gormafjöðrun. Það þarf varla að taka fram að við það breyttust aksturseiginleikar bílsins mjög í áttina að því sem ég kalla jeppakarakter;

    Jákvætt: Misfjaðrar betur, minni þvingun og hallar ekki endilega alveg eins og framhjólin standa. Auðveldara viðhald.

    Neikvætt: Svagur í almennri keyrslu, hætta á jeppaveiki þegar hliðarstífugúmmí fara að slitna. Hækkar þónokkuð vegna þess hversu grindin er ólánleg til að gera þessa aðgerð. (Lækning; Lækka boddí aftur)

    Það gefur auga leið að slithlutir eru nokkru fleiri í klafabúnaði en hásingu (2 auka kúluliðir, gúmmíhosur, stýrisupphengja, og a.m.k. þrjár festingar fyrir drifið)
    Gúmmíin sem festa klafana við grind má leggja að jöfnu við stífugúmmí og spindilkúlur við spindillegur. Stýrisgangur, fjöðrunarbúnaður og drifrás er að öðru leyti sambærilegt.
    (Gaman að geta þess að gormur er bara vindustöng sem búið er að rúlla upp!!!)

    Ég get vel trúað að Mitsubishi hafi tekist vel upp við uppstillingu og smíði á klöfunum, þekki það bara ekki nógu vel, ég er samt ansi smeykur um að þeir verði líka leiðinlegir þegar þeir eru farnir að slitna, sem er alveg fullkomlega eðlilegur hlutur.
    Svo að ég vísi aftur í Atla, þá verður maður stundum að meta stöðuna í svoleiðis tilfellum eftir því hversu veskið er þykkt og hvernig nota á bílinn og þá getur komið betur út fyrir handlagna menn að setja rör heldur en að endurnýja allt fóðringa-, stýrisenda-, upphengju- og spindilkúludraslið.

    Niðurstaða mín er því sú að það er ekki alveg marktækt að bera saman klafabúnað í nýlegum Pajero og Hilux sem er búið að keyra 260.000 kílómetra.
    Ég myndi ekki brenna klafana undan glænýjum bíl bara trúarbragðanna vegna, heldur frekar taka út úr þeim það sem þeir endast og meta svo stöðuna.

    :-)





  • Author
    Replies
Viewing 21 replies (of 21 total)
← 1 2

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.