FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Áður en Ísland komst í tísku…..

by Kristján Arnór Gretarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Áður en Ísland komst í tísku…..

This topic contains 21 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Bjarki Clausen Bjarki Clausen 19 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 03.05.2006 at 20:22 #197897
    Profile photo of Kristján Arnór Gretarsson
    Kristján Arnór Gretarsson
    Participant

    Jeremy úr TopGear á Íslandi nítíu og eitthvað.

    Jeremy með sítt að aftan og Ómar Ragnarsson með hár!!!

    …gerist ekki betra :)

    http://video.google.com/videoplay?docid=7321318726886306534&pl=true

    slóðin

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 21 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 03.05.2006 at 20:53 #551836
    Profile photo of Karl Guðnason
    Karl Guðnason
    Member
    • Umræður: 28
    • Svör: 1154

    gaman að þessu ! takk fyrir þetta.
    kv:Kalli káti





    03.05.2006 at 21:05 #551838
    Profile photo of Tolli
    Tolli
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 241

    Fær mig til að halda að íslendingar séu algerir villimenn,





    03.05.2006 at 21:09 #551840
    Profile photo of Ágúst Þór Guðbergsson
    Ágúst Þór Guðbergsson
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 702

    Tók tímann sinn en alveg þess virði og held að það væri gaman að geyma þennann link eða myndina einhversstaðar.

    Agust





    03.05.2006 at 21:15 #551842
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    þetta myndband var gert 1997 þegar mótorsport var uppá sitt besta hér á landi að mínu mati….
    …allavega var þá sýnt í sjónvarpinu allt hvað varðar mótorsport, en svo fór fólk í fýlu út af nýjum reglum og LÍA að ég held varð peningagráðugt og fór að heimta fé fyrir sýningarrétt á efni frá öllu mótorsporti, allavega var einhver að tala um það, veit ekki hversu rétt það er.
    kv, Ásgeir





    03.05.2006 at 21:28 #551844
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Takk fyrir þetta,
    Kv-JÞJ





    03.05.2006 at 21:41 #551846
    Profile photo of Páll Arnarsson
    Páll Arnarsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 494

    Já það er sko gaman að þessu. Takk





    03.05.2006 at 22:01 #551848
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member
    • Umræður: 56
    • Svör: 146

    Þetta var alger snilld, gaman af þessu.





    03.05.2006 at 22:54 #551850
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Flott video og já ég held að hann hafi rétt fyrir sér; við erum dálítið bilaðir.

    Kveðja:
    Erlingur harðar





    03.05.2006 at 23:00 #551852
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Manni bara vöknar um augu að skoða þetta myndband, eins gott að það var ekki lengra. Maður var orðinn svo meir að maður hefði farið að skæla. En eftir að hafa snýtt mér og kveikt mér í langri Winston, var maður aftur orðin remo maður og harðjaxl.
    Það vöknuðu margar góðar minningar við þetta myndband. T.d þegar ég sá Guðný Úlfarsdóttur á gamla Daddanum hans Steingríms Ingasonar sem var í mínum huga sá rallíbíll sem var kannski sá best heimasmíðaði hérlendis, þó það hafi alltaf verið flöskuháls hans að vera bara afturdrifin. En gripurinn var Dadsun 1800 árgerð 1970 eða 1969, man ekki hvort. En eftir að Steingrímur fékk vél varð hann skyndilega Nissan, það þótti víst flottara. Mig minnir að hann hafi verið sagður 260 hp og voru það ekki gefi tölur. T.d man ég eftir því á sérleiðinu á Gunnarsholti hreinlega spólaði gripurinn í 5 gír, þrátt fyrir allt gripið sem bílinn hafði. Guðný hinsvegar er dóttir Úlfvars Eysteinssonar stórkokks og landfrægs snillings sem hefur átt fjöldann allan af rallýbílum og átti hann einu sinni 3 eða fjóra í sömu keppninni og var kalinn þá að mig minnir bara í servis. En Guðný dóttir hans hóf ferilinn 15 ára sem cóari. Bara snillingar.
    Reyndar var þetta nú bara snillingaþáttur og verður maður bara að ná í eintak.
    Guðbergur var þarna líka á vélsleðanum, en Guðbergur keppti lengi með Jóni S Halldórssyni á Porsche og síðan skelltu þeir sér í torfæruna og ýmislegt. Jón S lést síðan í umferðarslýsi og var það einn mesti missir mótorsports á íslandi, en ekki má þó gleyma Hafsteini Haukssyni sem lést í ARC rallinu í skotlandi.
    Og svo var nú Heimasætan mætt þarna líka, sennilega Heimasætan nr 2 en sú fyrst var ekki grind. Mig minnir nú að Árnir Kóps hafi nú meir og minna smíðað hana upp úr brotajárnshaugum í byrjum en menn leiðrétta mig bara ef svo var ekki. Og svo var Benni okkar þarna líka að sjálfsögðu, Það eru kannski margir nýir jeppakarlar sem hreinlega vita ekki hversu mikill brautryðjandi Benni Eyjólfs ( Bílabúð Benna ) var og hversu mikið hann hefur fært jeppasportinu og torfærunni og einnig kvartmílunni. Jamm maður bara smjattar á þessu.
    Hvað varðar LÍA þá þekki ég aðeins það batterý þar sem ég var ein af 6-7 stofnendum þeirrar stofnunar um kringum 1980. Ef ég man rétt. En í þá daga var nánast útiloka að halda keppnir því við sóttum um að halda keppnir til sýslumanna og þeir settur fram kröfur sem við þurftum að uppfylla og fólust þær oft í því að sækja um tugi leyfa hjá ýmsum aðilum svosem lendeigendum hreppum og ég veit ekki hvað. LÍA tók þetta að sér og létt það okkur keppnishöldurum heldur betur lífið. Ásgeir segir að þá hafi allt mótorsport verið sýnt í sjónvarpi, en reyndar var það tóm barátta og man ég t,d eftir því að RÚV vildi ekki sýna rallý og báru þeir því fyrir sig að Rallý væri helvítis auðvaldsíþrótt og ætti ekkert erindi í RÚV. Þannig að þetta hefur verið endalaus barátta.
    Best að hætt núna áður en þetta verður að Mótorsport annál íslands, sem samt virkilega vantar á markaðinn. Annars mætti hvetja Rallý Palla til þess að bæta við einni góðri Rallý sögu hérna eða aðra keppniskappa í klúbbnum en það er hellingur af þeim úr ýmsum greinum sportsins.

    Ofsi Ofsalegakátur-meðmyndbandið





    03.05.2006 at 23:20 #551854
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Ég á þennan þátt sem avi skrá (DivX 6), heil 270 megabæt. Ef menn eru mjög þurfi þá get ég brennt þetta og komið með á einhvern fund, tja kannski aðalfundinn.
    -hafi





    03.05.2006 at 23:35 #551856
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant
    • Umræður: 158
    • Svör: 1709

    Virkilega flottur þáttur. Og gaman að sjá ísland í öðru ljósi.
    og þá sem eru virkilega ríkir og keyra á stórum Amerískum trukkum 😉





    04.05.2006 at 00:17 #551858
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    "Automatic is essential"

    He he

    Gargandi snilld!

    EE.





    04.05.2006 at 10:30 #551860
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 665

    Ég er enn hávolandi! Mikið sakna ég þess að fá beint í æð það sem er að gerast í mótorsportinu hverju sinni. "Transmission is essential as well as big bucks to modify 4×4 jeeps for the glaciers". Það gleymdist alveg að segja mér þetta þegar ég var að byrja í sportinu…

    Hjölli.





    04.05.2006 at 10:31 #551862
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    það sem mér fannst best í þessum þætti var þegar Benni (var þetta ekki annars örugglega Benni sem var mest rætt við í sambandi við jeppana?) kom með rök, og það MJÖG góð rök fyrir því að ssk. sé betri í jeppa, langaði bara að deila þessu með ykkur…





    04.05.2006 at 12:13 #551864
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Hafsteinn – ég væri mjög til í að eiga eintak af þessu, en kemst ekki á þennan fund frekar en aðra (mikil er sæla hins vinnandi manns). Getum við fundið aðra lausn á málinu?

    kv.
    Einar Elí
    einareli@ee.is





    04.05.2006 at 12:15 #551866
    Profile photo of Kristinn Magnússon
    Kristinn Magnússon
    Participant
    • Umræður: 91
    • Svör: 1775

    Það er hægt að klikka á download hægra meginn og þá fær maður fæl sem maður getur geymt á tölvunni!





    04.05.2006 at 16:26 #551868
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    …en ég hefði öllu meiri áhuga á DivX útgáfunni. Þetta format er líka, af því að mér dettur ekki betra orð í hug, óendanlega furðulegt.

    kv.
    Einar Elí





    04.05.2006 at 17:41 #551870
    Profile photo of Þengill Ólafsson
    Þengill Ólafsson
    Participant
    • Umræður: 48
    • Svör: 611

    Jeremy Clarkson er bara snillingur.
    Að íslenskt landslag sé eins og Skotland á sterum.
    Bara snilld. :)

    Kveðja
    Þengill





    05.05.2006 at 02:18 #551872
    Profile photo of Arngrímur Kristjánsson
    Arngrímur Kristjánsson
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 403

    Ég man vel eftir því skemmtilegu mótorsporti hér á landi og tala ég nú ekki um árin 1995 – 1999 en á þeim árum vann ég mikið við íslenska mótorsportið, var meðal annars í 4 ár að raða upp á fyrir ræsingu í torfæru, keyrði á eftir 4 alþjóðaröllum og var einnig tímavörður í mörgum öðrum röllum, kom einnig að kvartmílu, flaggaði endaflagginu í flestöllum rallýkrosskeppnum á þessum tíma.
    þetta var gríðalega mikil vinna sem ég gaf í þetta og tók ég mér oft frí frá vinnu og ferðaðist ladshornana á milli til að leggja mitt af mörkum, en eftir sumarið 1999 breittist þetta einhverja hluta vegna hjá mér, en vonandi verður breiting þar á því það er mjög gaman að vinna við þetta og að fygjast með þessu.

    Kveðja Addi Ö-1435





    07.05.2006 at 09:42 #551874
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant
    • Umræður: 158
    • Svör: 1709

    http://www.metacafe.com/watch/108406/f1 … nowmobile/





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 21 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.