This topic contains 4 replies, has 1 voice, and was last updated by Stefanía Guðjónsdóttir 16 years, 7 months ago.
-
Topic
-
Sælir vinir. Trukkabílstjórum var boðið sýningarbás á sumarsýningunni sem er í Fífunni um helgina til að kynna kröfur sínar um lækkun á álögur á eldsneyti og þeir hafa óskað eftir aðstoð Jeppamanna við þetta dæmi. Málið er að hafa jeppa fyrir utan sýninguna og ég hef boðið fram Patrolinn minn í það og ég ætlaði að vera á staðnum einhvern hluta af sýningunni en það væri alveg svakalega gott að geta fengið aðstoð við þetta. Málið snýst um að kynna fyrir almenningi okkar kröfur og sýna fólki fram á álagningu sem er á eldsneyti frá ríkinu og olíufélögum og höfum við einhverjar töflur því til stuðnings, einnig ætlum við að hafa til sýnis afrit af plagginu sem við afhentum sturlu böðvarssyni ofl. Trukkabílstjórar eru komnir með hina ýmsu styrki frá fyrirtækjum til að létta fólki lund eins og t.d pylsur, ís , gos og fleira. En ég geri þetta ekki einn og gott væri að sem flestir myndu sjá sér fært að taka þátt í þessu. Þeir sem hafa áhuga á að hjálpa til hafið samband við mig í síma 6950020 eða á axel@rafholt.is eða mofozzi@gmail.com
athugið að þessi aðgerð er ekki í nafni f4x4 vegna þess að þetta er að sjálfsögðu frekar viðkvæmt mál en þó vil ég endilega heyra í sem flestum með þetta.
kveðja Axel Sigurðsson
R-3099LÆKKUM ÁLÖGUR Á ELDSNEYTI STRAX…
You must be logged in to reply to this topic.