This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Þengill Ólafsson 18 years, 7 months ago.
-
Topic
-
Ég ætla að leyfa mér að stofna nýjan þráð þó náskylt mál sé hér í öðrum áhugaverðum þræði sem kominn er með 66 pistla, ágætt að skipta þessu aðeins upp.
Umhverfisnefndin fékk í dag fund fulltrúa frá Vélhjólaíþróttaklúbbnum, umhverfisstofnun og Landgræðslu ríkisins til að ræða hvort þessir aðilar sjái ekki möguleika á að vinna með okkur í áróðursstarfi um utanvegaakstur. Við viljum með þessu bregðast við þessum málum sem nú eru í sviðsljósinu og eins utanvegaakstri almennt. Þó það sé aðallega og af gefnu tilefni verið að tala um akstur torfæruhjóla á Reykjanesi, er það samt staðreynd að utanvegaakstur er hvorki aðeins bundinn við hjólinn né við Reykjanesið. Klúbburinn hafði forystu í þessari baráttu fyrir nokkrum árum og náði miklum árangri og núna er þörf á að bretta aftur upp ermarnar. Vonandi næst góður árangur með því að þessir aðilar leggi krafta sína saman við að setja af stað áróðursherferð. Fyrsta verk er auðvitað að afla verkefninu fjárstuðnings og í framhaldi af því þarf að leggjast vel yfir hverju við getum áorkað með þeim peningum sem úr verður að spila og hvernig þeir nýtast best.
Vonandi verður þetta byrjun á einhverju jákvæðu og umræður á fundinum í dag voru góðar.
Kv – Skúli
You must be logged in to reply to this topic.