Forsíða › Forums › Spjallið › Klúbburinn › Aðalfundur F4x4
This topic contains 18 replies, has 1 voice, and was last updated by Páll Halldór Halldórsson 13 years, 6 months ago.
-
CreatorTopic
-
23.04.2011 at 15:30 #218701
Góðan dag
Nú þegar aðeins mánuður er í aðalfund, tel ég rétt að stjórn og nefndir upplýsi félagsmenn um mönnun og hverjir bjóða sig fram í stjórn og nefndir.
Til að ýta þessari umræðu úr vör koma hér upplýsingar um Litlunefnd. Þessir aðilar hafa setið í Litlunefnd í vetur:
Björn Guðmundsson – á 1 ár eftir
Einar Berg Gunnarsson – Hefur lokið sínum 2 árum og gefur ekki kost á sér aftur.
Guðmundur G. Kristinson – á 1 ár eftir, en ætlar ekki að sitja annað ár.
Kristján Kristjánsson – Hefur lokið sínum 2 árum og gefur ekki kost á sér aftur.
Ólafur Magnússon – á 1 ár eftirÞað eru því 3 sæti laus í Litlunefnd og getur hvaða félagsmaður sem er boðið sig fram. Nú þegar eru komin 3 framboð:
Baldur Steingrímsson
Gnýr Guðmundsson
Sigurður Már ÓlafssonAðrir áhugasamir geta að sjálfsögðu boðið sig fram og væri gaman að heyra af því.
kv. Óli, Litlunefnd
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
25.04.2011 at 12:34 #728655
Sæl öll. Hjá skálanefndinni er staðan eftirfarandi:
Logi Már Einarsson. Er búinn með sín tvö ár en gefur kost á sér aftur
Jón Emil Þorsteinsson Er búinn með sín tvö ár en gefur kost á sér aftur
Rúnar Sigurjónsson Er búinn með eitt ár
Ómar Wieth Er búinn með eitt ár
Þórður Helgason Er búinn með eitt árSkálanefnd mun þvi sitja áfram að því gefnu að ekki komi til kosninga um sæti Loga og Jóns Emils.
Kv. Logi Már.
26.04.2011 at 12:48 #728657Upplýsingar um stjórn Ferðaklúbbsins.
Sveinbjörn Halldórsson formaður búin að sitja í þrjú ár gefur ekki kost á sér aftur.
Logi Ragnarsson búin að sitja í þrjú ár gefur ekki kost á sér.
Guðmundur Sigurðsson búin að sitja í þrjú ár gefur ekki kost á sér.
Hafliði Sigtryggur Magnússon búin að sitja í eitt ár gefur kost á sér til formans klúbbsins.
Óskar Erlingsson búin að sitja í eitt ár á eitt ár eftir.Varamenn.
Ágúst á eitt ár eftir
Kristján gefur ekki kost á sér aftur.Því vantar þrjá menn í stjórn og einn varamann
Samúel Þór Guðjónsson gefur kost á sér í stjórn klúbbsins.
27.04.2011 at 10:28 #728659Sæl, hvenig væri að heyra frá öðrum nefndum klúbbsins.
27.04.2011 at 12:55 #728661Félagar !!
Eins og sjá má á stöðu mála í stjórn klúbbsins vantar þar gott fólk.
Ég hvet fólk til að hugsa vandlega hvort það er ekki tilbúið að leggja eitthvað af mörkum til þeirrar baráttu sem við stöndum í. Allir félagsmenn, hvort sem þeir hafa verið í klúbbnum frá stofnun eru nýgengnir í klúbbinn eða þar á milli, aðalfélagar sem aukafélagar eru kjörgengir í stjórn og nefndir.
Athugið að sú barátta sem klúbburinn stendur í vinnst ekki af sjálfu sér, það liggja þar á bakvið vinna fólks. Það vantar fleira gott fólk til starfa fyrir klúbbinn og slíkt hefur aldrei verið mikilvægara en einmitt núna. Góðir félagar, standið upp úr sófunum og komið og starfið með okkur. Bjóðið ykkur fram í starf nefnda og í stjórnina.
Með baráttukveðju,
Óli, sem situr enn sem fastast í Litlunefnd – en er líka að vinna í ferðafrelsismálum
27.04.2011 at 13:53 #728663Tækninefnd:
Eiga eitt ár eftir af sínu kjörtímabili:
Atli Ingimarsson
Rúnar Sigurjónsson
Valur SveinbjörnssonKjörtímabili líkur hjá:
Benedikt Magnússon
Örn Ingvi JónssonEkki er enþá ljóst hvort núvernadi nefndarmenn gefa kost á sér áfram
27.04.2011 at 17:36 #728665Góðan daginn,
er það rétt sem ég skil, að vonast sé til að þeir sem ætli að gefa kost á sér geri það hér.
Þá læt ég vita að ég hef ákveðið að gefa kost á mér í Umhverfisnefnd f4x4.
En athugið að undirritaður gefur aðeins kost á sér í EITT ÁR til að byrja með.
Kveðja [url=http://www.jakinn.is/skrar/monkey_nerd_with_glasses.jpg:3qf37fl1]Hjörtur[/url:3qf37fl1] og [url=http://www.jakinn.is/skrar/DSC_5536.jpg:3qf37fl1]JAKINN[/url:3qf37fl1]
27.04.2011 at 20:13 #728667Staðan hjá Umhverfisnefnd er eftirfarandi
Dagur Bragason – kom til starfa eftir síðasta aðalfund, án kosningar, gefur kost á sér til áframhaldandi starfa
Baldvin Zarioh – hefur setið í tvö ár, en gefur ekki kost á sér á ný
Haraldur Þór Vilhjálmsson – hefur setið í tvö ár, en gefur ekki kost á sér á ný
Sverrir Jónsson – kom til starfa eftir síðasta aðalfund, án kosningar, geftur kost á sér til áframhaldandi starfa
Sæbjörg Richardsdóttir/Didda – hefur setið í tvö ár – gefur kost á sér á nýNýjir aðilar í framboði eru:
Hjörtur og Jakinn
Anna Brynhildur SteinþórsdóttirKveðja Didda
27.04.2011 at 23:19 #728669Í þessum þræði [url=http://www.f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=228&jfile=viewtopic.php&f=12&t=27610:20hfcfdp]hér[/url:20hfcfdp] er hvatt til kosninga um allar stöður. Og það er ekki bara til þess að hægt sé að kjósa þá bestu (aftur eða ekki) heldur hefur það líka þann kost að þeir sem eru kostnir hafa þá raunverulegt umboð frá (og bera ábyrgð gagnvart) félagsmönnum til að sinna sínu starfi, en eru ekki bara þeir einu sem nenntu að sinna þessu.
Rétt að taka það fram að ég hef akkúrat engan tíma afgangs til að sinna slíkum störfum svo það væri fásinna að kjósa mig; enda býð ég mig ekki fram.
En það er mikilvægt að þeir sem telja sig geta lagt eitthvað til mála (og einhvern tíma til að sinna þeim) bjóði sig fram. Þó þeir næðu ekki kjöri, veit þó stjórnin/nefndin að viðkomandi hefur áhuga og jafnvel einhvern tíma og gætu því beðið hann að aðstoða við einhver verkefni. Svo gæti það líka gerst að félagsmenn mætu viðkomandi hæfari en a.m.k. sumra hinna og hann hlotið kosningu. Í því tilviki er félagið þá komið með mannskap í stjórn/nefnd sem félagsmenn telja betri en annars hefði verið. S.s. allt í plús!
kv.
Þorsteinn Þ.
27.04.2011 at 23:57 #728671Hæ gott fólk.
Mig langar til að mynna á það að það er engin fjölda takmörk í nefndum aðeins lámark 3 í nefnd sem þarf að kjósa. Þannig að ef menn vilja starfa í einhverri nefnd eiga menn að geta gert það og bjóða sig framm , því fleiri því betra.
Áður þurfti 5 mans í nefnd til þess að hún væri full skipuð, en þessu var breitt niður í 3 vegna þess að það gekk svo ílla að manna hefndirnar.
Ef ég fer ekki með rétt mál , mundi þá ekki einhver vilja leiðrétta mig .
Kv. S.B.
04.05.2011 at 21:43 #728673Vefnefnd:
Bergur Pálsson – býður sig fram, 2. ár.
Bragi Þór Jónsson
Sigurður Bjartmar Sigurjónsson
Guðmundur G. Kristinsson
Bjarni Þór Pálsson – hefur ekki látið vita með framhald
Halldór Hafliða – óvirkur en innan handar í sérverkefnumKoma svo, það vantar fleira fólk….
//BP
04.05.2011 at 21:53 #728675Sé það núna að Snorri formaður hefur ekki sett niður staf um fjarskiptanefnd.
Núna eru eftirfarandi í fjarskiptanefnd
Snorri Ingimars hinn fúli. Hann er formaður.
Kjartan Gunnsteins sem er farinn að ganga helst til mikið.
Jói jeppalausi sem er að sjálfsögðu jeppalaus áfram.
Simmi Sæm sem er formaður Skotlandsútbús fjarskiptanefndar um þessar mundir.
Hlynur Snæland sem verður sífelt feitari og latari.Við höfum ekki hugmynd um hver var kosin til hvaða tíma, en gefum állir kost á okkur áfram.
Góðar stundir
18.05.2011 at 00:39 #728677Af hjálparsveit er eftirfarandi að frétta.
Samúel Þór – Lýkur nefndarsetu.
Stefán Baldvinsson – Gefur kost á sér áfram
Pétur Friðrik Þórðarsson – Gefur kost á sér áfram
Baldur Harðarsson – Gefur kost á sér áframKkv, Samúel Þór
18.05.2011 at 22:12 #728679Framboð í stjórn klúbbsins.
Það þarf að kjósa formann, þrjá í stjórnina og einn varamann.
Framboð í formann er:
Hafliði Sigtryggur MagnússonÞeir sem gefa kost á sér í stjórnina eru:
Árni Bergsson
Arnþór Þórðarson
Samúel Þór GuðjónssonSá sem gefur kost á sér sem varamaður er:
Ásgeir SigurðssonEins og auglýst hefur verið, þá er aðalfundurinn nk. mánudagskvöld og verður í húsnæði klúbbsins, Eirhöfða 3 (skemma 3) og hefst kl. 20:00.
Kveðja,
Hafliði
19.05.2011 at 21:14 #728681Er ekki tilvalið að hafa leynilegar kosningar til að það sé ekki alltaf eins og í Rúslandi
Leynilegar kosningar þá geta menn kosið eins og þeir vilja án þess að móðga eitthverja
19.05.2011 at 21:35 #728683Stundum hafa verið leynilegar kosningar um ákveðin málefni, sérstaklega þegar vitað er að þau eru umdeild. Varðandi kosningar í nefndir og stjórn þá minnir mig að þær hafi verið leynilegar þegar fleiri eru í framboði til sömu nefndar, en það er lúxusvandamál og gerist mjög sjaldan. Mér sýnist að stjórn og flestar nefndir rétt skríði í að vera fullmannaðar ef það næst og þá er ekki svo mikilvægt að vera með leynilegar kosningar. eða?
Mikilvægast er auðvitað að sem flestir mæti á aðalfundinn til að taka þátt í áhrifamesta fundi klúbbsins.
kv. Óli, sem ætlar að mæta á mánudagskvöld
22.05.2011 at 07:10 #728685Ég er nokkuð viss um að allar stöður í nefndum og stjórn eru mannaðar. en ef menn hafa áhuga á að fá auka mann er ég til.
24.05.2011 at 09:53 #728687Takk fyrir fínan aðalfund í gær, það var vel mætt á fundinn, allir stólar þéttsetnir.
Það er verið að vinna í fundargerð og þegar hún liggur fyrir þá kemur tilkynning um það með tilvísun á hana.
Nýr formaður var kosinn, sem er undirritaður.
Ný stjórn var kosin í gær, í henni sitja:
Arnþór Þórðarson
Árni Bergsson
Hafliði Sigtryggur Magnússon
Óskar Erlingsson
Samúel Þór GuðjónssonVaramenn í stjórn:
Ágúst Birgisson
Ásgeir J. SigurðssonEinnig urðu breytingar á nefndunum og verða þær birtar fljótlega.
Ég vil þakka öllum sem störfuðu með okkur í vetur og ætla að taka sér hvíld frá störfum.
Ég hlakka til að starfa með því fólki sem hefur gefið kost á sér í hin ýmsu störf sem liggja fyrir hjá klúbbnum, það verður nóg að gera hjá okkur.
Fyrrverandi stjórn og formanni þakka ég fyrir samstarfið, en eins og kom fram á fundinum í gær, þá eru þeir ekkert hættir, þeir ætla að taka þátt í starfinu áfram í hinum ýmsu nefndum, þó skemmtinefnd sé vinsælust hjá þeim.
Kveðja,
Hafliði
24.05.2011 at 23:17 #728689Til lukku Hafliði. Og gangi þér vel félagi :O) (og allir hinir líka)
kv
Palli
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.