Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › að bakka 2 kerrum í einu
This topic contains 33 replies, has 1 voice, and was last updated by Markús B. Jósefsson 15 years, 6 months ago.
-
CreatorTopic
-
03.05.2009 at 22:59 #204343
hvernig er það… er ekkert flókið að bakka svona kombó? 2 kerrur og brummi
þetta eykur allavega skott-plássið töluvert
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
04.05.2009 at 22:44 #647122
Að einhverjir öfundsjukir borgarstrakar sem halda að þetta se ekki ´hægt þyrftu þa að fara að röfla
um að þetta se Olöglegt, ma ekki gera svona,
skamm skamm. Farið bara ut að æfa 😉Ps. cruser89 kynna ser malin betur og spara storu
yfirlysingarnar
04.05.2009 at 23:31 #647124hvernig er það með trukkana úti í löndum sem draga fjöldan allan af vögnum. Þetta er allaveganna ekki bannað á hraðbrautunum. ég veit ekki hvort ég myndi treysta mér í að bakka með svona
http://4.bp.blogspot.com/_hhQB_cQf-wY/R … quarry.jpg
05.05.2009 at 02:14 #647126Brjótur,
einsog ég skyldi þetta þá var Lallirafn að spekúlera að nota þetta til ferðalaga en ekki til að færa Bagga á túni.
Sjálfsagt þykir þetta ekki tiltökumál úti á túni þar sem þú hefur ekkert nema tíma og endalausa víðáttu tala nú ekki um á flugvelli. Get ekki ímyndað mér að beygjuradíus á svona kombói sé fyrir neitt annað en svona sveitastráka einsog ykkur. Íslenska vegakerfið er nú ekki þekkt fyrir mikið svigrúm.Hitt er svo annað mál, að þetta er alveg pottþétt ólöglegt. Enda þyrfti kerran að vera þá tryggð og skráð til dráttar. Grunar að ef þetta þætti löglegt væri flutningafyrirtækin búin að nýta sér þetta allvegana á flatlendinu.
Borgarakveðjur….
05.05.2009 at 02:58 #647128Það var nú þannig, síðast þegar ég las lögin, að þá mátti nú ekki vera með nema einn eftirvagn aftan í bifreið. Hins vega má vera með 2 eftirvagna aftan í dráttarvél. Ég held það sé nú bara formsatriði að breyta skráningunum á þessum Forrunnerum og Patrolum og skrá þá sem dráttarvélar. Þeir fara allavega ekkert hraðar yfir en nútíma traktorar.
Kveðjur,
Klemmi.
05.05.2009 at 08:44 #647130Til að taka af allan vafa, þá bannar 1. mgr. 62. gr. laga nr. 50 frá 1987 þetta (Umferðarlög).
"Tenging og dráttur ökutækja.
62. gr. Við bifreið, [bifhjól],1) torfærutæki og reiðhjól má tengja einn eftirvagn eða tengitæki.
Við dráttarvél og vinnuvél má tengja tvo eftirvagna eða einn eftirvagn og eitt tengitæki.
Við .1) létt bifhjól má eigi tengja eftirvagn eða tengitæki.
Við bifhjól og reiðhjól má tengja hliðarvagn, sem skal þá vera hægra megin við ökutækið. Eigi má tengja hliðarvagn við létt bifhjól.
[Ráðherra]2) setur reglur3) um tengingu eftirvagna, tengitækja og hliðarvagna. [Ráðherra]2) getur enn fremur sett reglur um hvað flytja megi með ökutækjum þessum, svo og veitt undanþágu frá ákvæðum 2. mgr. við akstur á tilteknum svæðum.
[Ráðherra]2) setur reglur3) um drátt ökutækja."Lifið heil
05.05.2009 at 09:05 #647132hvað ætli sé leyfilegt að draga þungann bremsulausan eftirvagn á reiðhjóli?
Rúnar.
05.05.2009 at 11:00 #647134Talandi um kerru aftan í kerru, hér sést hvernig Páll Ólafsson leysti flutning á vatnslögnum inn í Bása um árið.
[img:3rdvp00h]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/3742/59259.jpg[/img:3rdvp00h]Þetta er lögnin fyrir rafstöðina sem er í Básalæknum, en Páll þessi stýrði því verki af myndarskap á sínum tíma. Lögnin var flutt svona frá Hvolsvelli, en ég veit ekki hvort hann hafi mikið þurft að bakka með þetta.
05.05.2009 at 12:01 #647136Bíll sem er dreginn með beisli er það kerra eða bíll. og má þá hafa þetta þannig að maður er með bíl í beisli og svo bíl í spotta aftann í bílnum með beislið?
06.05.2009 at 15:33 #647138Myndin sem Aðalsteinn Valsson vísar í [url=http://4.bp.blogspot.com/_hhQB_cQf-wY/R4h7dPlhi3I/AAAAAAAAAAU/tDFrnZgnEEI/s1600/road-train-quarry.jpg:3m5cgngp][b:3m5cgngp]hérna að ofan[/b:3m5cgngp][/url:3m5cgngp] er allavega ekki frá Evrópu því fleiri en einn vagn er hvergi leyfður í Evrópu (ennþá, allaveg, það hefur samt verið umræða í gangi að leyfa tvo vagna).
Í Ástalíu og sumum löndum og fylkjum í Suður og Norður Ameríku eru sumstaðar hins vegar leyfðir 2-5 vagnar en yfirleitt er það leyfi bundið við aðalvegi og dreifbýlari svæði og þessum lestum er undantekningarlítið bannað að koma inn í borgir.
Að bakka tveimur kerrum er líklegast svipað og að bakka beislisvagni nema að hreyfingarnar verða væntalega aðeins ýktari af því að liðurinn er langt fyrir aftan fremri öxul en ekki beint yfir honum eins og á beislisvagninum.
Aðferðin við flutningana á rörunum hér að ofan er eiginlega ekki "tvær kerrur" heldur er þetta svipuð tækni og oft er notuð er við flutninga á óunnum trjábolum og byggist á því að farmurinn verður hluti af vagninum og verður þar með að einskonar beislisvagni.
06.05.2009 at 15:53 #647140Þar er allavega leyfilegt í einhverjum fylkjum að vera með beislisvagn aftan í trailer. Svo keyra þeir um á 70 mph eftir hraðbrautunum með þetta aftaní!
kv
Runar
06.05.2009 at 21:15 #647142Ég veit ekki betur en vegagerðinn sé með svona combo, þar að segja þeir eru með stóran kaffivagn sem dreginn er af vörubíl og aftaní kaffivagninn hengja þeir rafstöð
07.05.2009 at 20:28 #647144Ég frétti af einum á Snæfellsnesinu sem var stundum á vegheflinum með Toyota Hiace pickup aftan í og svo olíukálf aftan í honum.
07.05.2009 at 22:52 #647146fór aðeins á youtube og fann þetta:
http://www.youtube.com/watch?v=hkh2AVh30e4
reynið að bakka þessu
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.